13.12.1937
Neðri deild: 48. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1092 í B-deild Alþingistíðinda. (1429)
124. mál, alþýðutryggingar
*Ísleifur Högnason:
Það eru nú fáir í deildinni, eins og í fyrradag um þetta leyti, er fundur var settur, en ég ætla samt að taka til máls og gera grein fyrir afstöðu minni til þessa frv.
Ég vil fyrst minnast á brtt. okkar hv. 5. þm. Reykv. við 16. gr. frv. Hv. frsm. meiri hl. hefir ekki andmælt því, að þessi brtt. sé réttmæt. En 16. gr. frv. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
31. gr. laganna orðist svo: Leita skal staðfestingar Tryggingarstofnunar ríkisins á samningum sjúkrasamlaga við lækna, lyfjabúðir og sjúkrahús um greiðslur til fullnægingar á ákvæðum 30. gr.
Tryggingarstofnun ríkisins er heimilt, í samráði við landlækni, að semja fyrir sjúkrasamlög um slíkar greiðslur, ef hlutaðeigandi samlag óskar þess. Náist ekki samkomulag, eða að svo miklu leyti sem ósamið verður, er stjórn sjúkrasamlags heimilt að greiða læknishjálp, lyf og annan sjúkrakostnað meðlimum samlagsins, eftir reglum, sem Tryggingarstofnun ríkisins setur, jafnvel þótt slík greiðsla nægi ekki til að standa straum af öllum kostnaði, er annars leiðir af ákvæðum 30. gr.“.
Með þessu er tryggingarstofnuninni í fyrsta lagi gefið einræðisvald til að ákveða hámark þess, er greiða má til lækna og sjúkrahúsa og fyrir lyf. Nú hefir í ýmsum kaupstöðum orðið ágreiningur milli sjúkrasamlags og sjúkrahúsa um það, hvað greiða beri fyrir sjúklinga í dagpeninga. Hér í Reykjavík n bærinn ekkert sjúkrahús, og er enginn vafi á því, að til slíks ágreinings kemur einnig hér. Og ef ekki nær saman, er tryggingarstofnuninni gefið einræðisvald til að ákveða dagpeningaupphæðina. Hver á svo að greiða mismuninn, sjúklingurinn eða framfærslusveit hans? Hugsum okkur, að maðurinn sé öreigi eða sveitarþegi. Bæjarsjóður mun þá eflaust svara kröfum um greiðslu því, að maðurinn sé tryggður, og því beri sjúkrasamlaginu að greiða upphæðina. En færist það undan, og eigi maðurinn ekki fé, hvernig fer þá, ef leggja þarf hann inn í spítala, segjum, að gera þurfi á honum holskurð? Sjúkrahúsið neitar að taka við honum, nema trygging sé sett fyrir greiðslunni, en bærinn neitar að gefa þessa tryggingu. Þetta þarf auðsjáanlega að taka til athugunar.
Það er enginn vafi á því, að með þessu ákvæði er tryggingarstofnuninni í öllu borgið, og það virðist vaka fyrir hv. meiri hl. n. að sjá borgið hagsmunum hennar, hvað sem hinum tryggðu liður. Dagpeningar í sjúkrahúsum nema venjulega 6–7 kr. á dag, en tryggingarstofnunin vill t. d. ekki greiða meiri en 4–5 kr. Sjúkrasamlagið má þannig nota þessa stofnun til að raka saman peningum.
Þessi grein er til þess fallin að gera tryggingarnar enn óvinsælli en þær eru nú, og jafnvel líkleg til að eyðileggja þær að miklu leyti. Ég leyfi mér því að leggja til, að hv. d. felli 16. gr. frv.
Þá er 9. gr. frv. Í henni er svo fyrir mælt, að það, sem þar um fjallar, skuli fara eftir nánari ákvæðum í reglugerð. En það er ekki tekið fram, hver eigi að setja þá reglugerð, hvort það eigi að vera ráðuneytið eða tryggingarstofnunin. Að gefa tryggingarstofnuninni vald til þessa, væri að gera henni mögulegt að haga þessum ákvæðum svo, að margir menn yrðu undanskildir tryggingunum, sem annars ættu að njóta þeirra.
Viðvíkjandi því, sem hv. frsm. sagði, að við kommúnistar vildum rugla saman skattal., tryggingarl. og framfærslul., vil ég benda á, að lífeyrissjóðsgjöld eru innheimt á þann hátt, sem við höfum í Ed. lagt til, að notaður yrði við innheimtu tryggingariðgjalda. Lífeyrissjóðsgjaldið er ákveðin krónutala og 1% af skattskyldum tekjum. Þetta er því vindhögg hjá hv. flm., þar sem löggjöfin sjálf ákveður fyrirkomulag, er beinlínis blandar saman skattalöggjöf og tryggingarlöggjöf á þennan hátt.
Ég hefi ekki kynnt mér þessi l. sem skyldi, m. a. af því, að við kommúnistar eigum engan mann í n. En svipað mun vera að segja um ýmsa aðra hv. dm., og verða þeir því í ýmsu að treysta á álit samflokksmanna sinna í n. En að því er snertir brtt. þær, sem við höfum flutt, er ég ekki í vafa um, að þær eru réttmætar, enda eru gallarnir á frv. í því efni svo augljósir, að ekki verður um villzt.