15.12.1937
Neðri deild: 50. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1132 í B-deild Alþingistíðinda. (1453)

124. mál, alþýðutryggingar

*Bergur Jónsson:

Þegar ég talaði hér í kvöld, þóttist ég vera svo óádeilinn við aðra og gerði aðeins grein fyrir brtt., sem ég hafði borið fram hér, og afstöðu minni til annara brtt., að ég bjóst ekki við, að ég þyrfti að taka til máls aftur, en svo skeður það undarlega, að einn hv. þm. hér í hv. d. leyfir sér að standa upp og snúa út úr orðum mínum á mjög óviðeigandi hátt. Viðvíkjandi afstöðu minni gagnvart kröfu simamanna um að fá að komast undir lífeyrissjóð Íslands og losna undan lífeyrissjóði embættismanna og fá þaðan endurgreitt það, sem þeir hafa greitt þangað, sagði ég, að það væri talsvert óhagræði samfara því fyrir lífeyrissjóð embættismanna að þurfa að greiða allri þessari fjölmennu stétt í einu lagi iðgjöldin, sem hún hefir greitt í sjóðinn. Hv. 6. þm. Reykv. leyfir sér að leggja þann skilning í þessi ummæli mín, að lífeyrissjóður embættismanna sé ekki fyrir hendi á þann hátt, sem hann á að vera l. samkvæmt, og er hér með dylgjur út af þessum ummælum mínum í garð hæstv. stj. um það, hvort það. sé meiningin samkv. orðum mínum, að þessi sjóður sé ekki fyrir hendi, honum ætti að vera eytt í annað; ég veit ekki, hvað hann meinar, að annað hafi getað orðið af honum. Ég skil ekki, hvernig þessi hv. þm. leyfir sér að snúa út úr máli þm. Hann veit vel að það lá ekkert í mínum orðum, sem gaf í skyn, að ég álíti, að lífeyrissjóður embættismanna væri ekki fullkomlega fyrir hendi, eins og hann á að vera, enda munum við hvorugur efast um það, og ekki heldur hv. 6. þm. Reykv., þrátt fyrir allt hans pólitískt offors, og ég vil segja þessum hv. þm. það, að ef hann hefði með einhverja sjóði að gera, þá mundi hann ekki kæra sig um að fá svona dylgjur, eins og hann leyfir sér að viðhafa í garð hæstv. ríkisstj. og þeirra, sem eiga að hafa umráð yfir opinberum sjóðum í landinu.

Viðvíkjandi því, hvort rétt sé að fella niður 2. málsgr. 62. gr. alþýðutryggingarl., eins og lagt er til í þessu frv., þá vil ég endurtaka það, að ég sé ekki neina hættu bundna við það, þó að þetta væri gert að þessu sinni með tilliti til þess, að það er þegar fyrir lagaákvæði, sem frestar framkvæmd þessara lagaákvæða til 1. apríl á næsta ári, ef ég man rétt. Þess vegna er nægur tími á næsta þingi til að taka til yfirvegunar óskir og kröfur símamanna í þessu máli, og ég fyrir mitt leyti vil gjarnan vinna að góðri lausn þessa máls, þannig, að simamenn fái óskir sínar uppfylltar, en því hagar þannig til, að það er ekki mikið óhagræði fyrir lífeyrissjóðinn að greiða iðgjöld, ef greiðslunni er t. d. dreift á nokkur ár. Hv. 6. þm. Reykv. vil ég benda á það, að það mun engin sú tryggingarstofnun vera til, að það sé ekki óhagræði fyrir hana, ef stór hópur af þeim mönnum, sem greitt hafa til hennar iðgjöld um langt árabil, vilja á einum og sama degi fá útborgað allt, sem þeir hafa greitt, með vöxtum og vaxtavöxtum. Ummæli hv. þm. eru því ekkert annað en óeðlilegur útúrsnúningur, þegar hann leggur þá merkingu í orð mín, að ég hafi gefið í skyn, að sjóðurinn hafi gefizt upp; annars vona ég, að hæstv. stj. svari hv. þm. út af þessu, því að það má ekki ómótmælt vera.