20.12.1937
Efri deild: 53. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1143 í B-deild Alþingistíðinda. (1467)
124. mál, alþýðutryggingar
*Árni Jónsson:
Ég verð að lýsa því yfir, að ég er mjög illa undir það búinn að tala í þessu máli. Það er skammt síðan málið kom til hv. d., og þótt það væri rétt, sem hv. frsm. meiri hl. n. sagði, að n. hefði athugað frv., var sú athugun allflaustursleg, þar sem tími vannst ekki til nákvæmrar athugunar. Ég hafði ekki búizt við, að þingfundur yrði í hv. d. í dag, en hv. þm. hafa verið mjög uppteknir undanfarið, bæði við nauðsynleg þingstörf og svo að hressa sig, sem hvorugt er að lasta, svo ég bjóst ekki við, að málið kæmi til umr. fyrr en í fyrsta lagi á morgun og hafði hugsað mér að nota þessa kvöldstund til að geta gert því nánari skil þegar þar að kæmi. En það er huggun fyrir mig, sem stend svo illa að vígi í þessu máli sem ég hefi lýst, að ég geri ekki ráð fyrir, að það hefði mikið að segja, þótt ég hefði meiri rök fram að bera en ég hefi nú á takteinunum. Hv. frsm. meiri hl. n. hefir lýst því yfir, að þetta væri vandasamt mál, og er ég honum sammála um það, og mér þykir raunalegt, hve flausturslega meðferð það hefir fengið. Því var lýst á fundi í allshn. 1d., hverja meðferð það fékk í þeirri hv. d. Það kom þangað þegar langt var liðið á þingtíma og var afgr. þar með miklum flýti, sem jókst þó enn meir þegar hingað kom í þessa hv. d. Tel ég óafsakanlegt, að stórmál sem þetta, sem líklega er vandasamasta mál þingsins, hljóti slíka meðferð. Það má segja, að þegar eins stendur á og um þetta mál, þá hafi það ekkert að segja, hvort tækifæri gefst til að athuga það, þar sem ákveðið er, að engar brtt. skuli ná fram að ganga, jafnvel þótt það sé viðurkennt af frsm. meiri hl. allshn., að í frv. séu ákvæði, sem hann telur í nál. að séu varhugaverð, og að eina ástæðan til þess, að meiri hl. reyni ekki að bæta þessi ákvæði, sem þeir sjálfir lýsa yfir að séu varhugaverð, sé sú, að komið sé að þingslitum og málinu sé stofnað í hættu, verði farið að hrekja það milli deilda. Vitanlega er þetta engin afsökun. Það er engin afsökun fyrir því, að málið kemur fyrst fyrir þegar liðið er að þingslitum; það átti að undirbúa það svo snemma, að hægt væri að sinna því á þann hátt, sem Alþ. er sæmandi.
Ég gekk einu sinni inn í hv. Nd., þegar verið var að ræða frv. þar, og á þeim skamma tíma, sem ég var þar inni, varð ég þess áskynja, að málið var svo flókið, að þeir lögvitringar og sérfræðingar í þessum greinum, sem þar leiddu saman hesta sína, brígzluðu hver öðrum um fávizku. Er þá sýnilegt, að málið er mjög flókið, þar sem þeir, sem hafa lagt mikla vinnu í að kynna sér það og fylgzt með framkvæmd l., bera hver öðrum fákænsku á brýn. Er þá sýnilegt, að það er svo vandasamt, að það far ekki viðunandi. afgreiðslu á þennan hátt. Ég hefi það eftir lögfróðum mönnum, að þetta muni vera flóknasta löggjöf af nýrri l. vorum.
Hv. frsm. meiri hl. n. lýsti því yfir, að ekki mundi þýða að bera fram brtt., ekki elnu sinni þær., sem þeir telja nauðsynlegar til að bæta úr helztu ágöllum frv., þó að gera megi auðvitað tilraun með það við 3. umr. og sjá þá, hvort hv. þm. viðurkenna að málið hafi ekki fengið viðunanlega afgreiðslu á þessu þingi. Ég mun bera fram nauðsynlegustu brtt. við 3. umr.
En áður en þessari umr. lýkur vil ég gera tilraun með, hvort hv. þm. er í raun og veru alvara með að hespa málið af eins og það er og ber því fram rökst. dagskrá, samhljóða þeirri, sem borin var fram í hv. Nd.
Aldrei hefir borið eins mikið á því og á þessu þingi, að menn gæfu sér ekki tíma til að athuga málin gaumgæfilega. Öllum er kunnugt, að fyrri hluta þings gekk tími og starf stjórnarflokkanna í allt annað en að afgreiða þau mál, sem fyrir hv. Alþ. lágu. Ég hefi engin rök heyrt fyrir því, hvers vegna þarf að hraða þessu máli svo mjög, að það megi ekki biða þessa tæpa tvo mánuði til næsta þings. Því ætla ég að leyfa mér að bera fram þessa rökst. dagskrá, sem hljóðar á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Í trausti þess, að ríkisstjórnin skipi hið fyrsta þriggja manna nefnd samkv. tilnefningu stærstu þingflokkanna, til að rannsaka ýtarlega og alhliða lögin um alþýðutryggingar og leggi till. sínar fyrir næsta Alþingi, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“