21.12.1937
Efri deild: 54. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1154 í B-deild Alþingistíðinda. (1486)

124. mál, alþýðutryggingar

*Árni Jónsson:

Það er náttúrlega dálítið einkennilegt, að það skuli koma fram nú, að þarna eru ákvæði í frv., sem rekast á gilda samninga milli sjúkrasamlaga og lækna. En ég stóð upp aðeins til þess að benda á, hvernig þetta sannar það, sem við héldum fram í gær um það, hvernig þessu máli er hroðað hér af í þinginu. Meiri hl. allshn. hefir lýst því yfir, að í frv. séu nú ákvæði, sem hann telur óskynsamleg. En samt hefir hann ekki komið með brtt. vegna þess, að hann treystir sér ekki til þess að láta frv. hrekjast milli d., og nú sýnir það sig, að atvmrh. lýsir því yfir við síðustu umr. málsins, að ekki sé betur gengið frá þessu en það, að þarna séu ákvæði, sem reki sig á gerða samninga. Ég álít þess vegna, eins og ég sagði í gær, að það sé sannað með því, sem fram hefir komið, að öll meðferð þessa máls sé svo flaustursleg og óhæfileg, að ég tel afgreiðslu þess Alþ. gersamlega ósamboðna.