21.12.1937
Efri deild: 55. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1158 í B-deild Alþingistíðinda. (1496)
124. mál, alþýðutryggingar
Páll Hermannsson:
Ég get ekki neitað því, að ég er í hópi þeirra manna, sem kunna því illa, er nú kemur fyrir hvað eftir annað, að stórmál geta enga athugun fengið í annari deildinni. Svo er með þetta mál. Hér er um að ræða lagasetningu, sem er tiltölulega ný hjá okkur, og frv. felur í sér allmiklar breyt. á lögunum. Lagabálkurinn sjálfur er í 90. gr., og breytingarnar í frv. í 44. gr., svo að nærri má geta, hvort hv. Ed. fær tóm til að athuga þessa lagasetningu á tilskildum tíma. Ég skil það vel, að nýir þm., sem ekki eru vanir þessu sleifarlagi, finni meira til þess en við hinir. Þó svona standi á, mun ég samt fylgja þessu frv., af því að í því eru ákvæði, sem breyta lögunum til bóta. Vil ég þar taka til ákvæði 38. gr. frv., sem gerir það loks tvímælalaust, að bæjar- og sveitarfélög fá að njóta vaxtanna af þeim ellistyrktarsjóðum, sem þau eiga sjálf. Það er nógu lengi búið að ganga svo, að sveitar- og bæjarfélögin hafa ekki fengið að njóta þessara vaxta óskorað. — Ég tel þýðingarlaust að fara að káka við brtt. úr því sem komið er. Það verða alltaf eftir ágallar á frv., sem næsta þing verður að taka til athugunar. Hv. 1. landsk. lýsti því yfir, að hann bæri ekki fram allar þær brtt., sem hann hefði hug á. Þannig mun það vera um fleiri; menn eru sammála um, að ef afgreiða á málið á þessu þingi, verður það að fara óbreytt héðan úr hv. d. — Ég mun ekki halda hér uppi neinu málþófi, en vildi ekki, skiljast svo við þetta mál, að ég vítti það ekki, að d. skuli vera otað að afgreiða stórmál án þess að hún fái tóm til að athuga það. En hinsvegar hefi ég bent á a. m. k. eitt atriði, sem ég tel þess virði, að ég geri mitt til þess, að frv. verði að lögum.