27.10.1937
Neðri deild: 12. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1170 í B-deild Alþingistíðinda. (1515)
26. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson) :
Þetta frv. er flutt af fjhn. eftir tilmælum hæstv. fjmrh. Það er í samræmi við núgildandi lög að öðru leyti en því, að hér er ekki sett hámark um fjárveitingu til verkfærakaupasjóðs, en þar kemur nýtt ákvæði í jarðræktarlögunum nýju. Hér er og talað um að fresta ýmsum fjárframlögum úr ríkissjóði, og er ekki ástæða til að rekja það nánar en gert er í frv.