16.12.1937
Efri deild: 51. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1174 í B-deild Alþingistíðinda. (1528)

26. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Til að fyrirbyggja allan misskilning vil ég taka það fram, að það ber ekki að líta á það sem ávítur til hv. fjhn., þótt þetta mál sé tekið á dagskrá án þess að nál. liggi fyrir. Ég talaði við form. n. í gær og spurði hann, hvort hann vildi halda fund um málið, áður en það yrði. tekið á dagskrá. Mér skildist á honum, að það væri sama, þótt það yrði tekið fyrir, áður en fundur hefði verið haldinn. Annars er ég reiðubúinn til þess að taka allar aths. aftur til 3. umr., ef n. óskar.