16.12.1937
Efri deild: 51. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (1532)

26. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Út af því, sem hv. 1. þm. N.-M. sagði, vil ég taka það fram, að vitanlega gæti stafað mikið misrétti af því, ef vaxtatillagsbeiðni, sem kæmi eftir 1. jan. væri vísað frá, þótt hún hljóðaði upp á vexti, sem hefðu verið greiddir 1937. Ég vil lýsa því yfir, að sá skilningur er réttur, að þetta ákvæði yrði að miðast við vexti á gjalddögum 1938. En ég vil taka það fram, að það getur farið svo, að menn þreytist á því að greiða vaxtatillag frá löngu liðnum tímum, þótt það sé frá þeim tíma, að heimild var í l. til að greiða þennan styrk. Eftir því, sem ég hefi heyrt, eru sumir bændur nú fyrst að uppgötva þessa heimild og senda margra ára reikninga yfir vaxtatillög. Þetta getur haldið lengi áfram, og vil ég því áskilja mér rétt til þess að mæta slíku. En það er rétt skilið hjá hv. 1. þm. N.-M., að hér er átt við gjalddaga 1938.

Ég vil út af því, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði um sína till., taka það fram, að æskilegt væri, að hægt væri að greiða í þessa sjóði, sem hann gat um, og ég býst ekki við að því fé yrði varið til neins ónytsams. En við verðum að gá að því, að við verðum að gera upp á milli þeirra nytsömu hluta, sem fyrir liggur að veita fé til. Og þegar verið er að taka af bændum þann vaxtastyrk, sem þeir hafa haft, og lækka framlög til sýsluvega, og þegar frestað er ár eftir ár framlagi til bjargráðasjóðs o. fl., þá finnst mér ekkert óeðlilegt, þó að þetta sé tekið með.

Ég man ekki, hvað. miklu þetta framlag nemur, en ég ætla, að það skipti tugum þús. í báða sjóðina. Það fer nokkuð eftir því, hvað mikið er af óskipuðum embættum.

Ég mun leggja á móti því, að þessi till. hv. þm. verði samþ. Ég veit ekki betur en framlag til bygginga á prestssetrum hafi verið aukið úr 12 þús. upp í 24 þús. kr., og ég veit ekki betur en það sé á leiðinni till. um að setja aðstoðarprest hér í Reykjavík, og mér finnst, að það verði því að fresta þessu nú í bili.