18.12.1937
Efri deild: 52. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1179 í B-deild Alþingistíðinda. (1541)
26. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég vil taka það fram, að þessi „bandormur“, sem kallaður er, stendur í nánu sambandi við fjárlfrv. sjálft, og fjvn. hefir miðað sínar brtt. við það, að „bandormurinn“ væri að mestur leyti afgr. óbreyttur. Ég vildi því biðja menn að fara gætilega í það að breyta frv. úr því sem komið er vegna þess að ef farið yrði að gera breyt. á annað borð, þá gæti það raskað því samkomulagi, sem annars hefir orðið um þetta mál og kostað hefir töluverða vinnu að fá fram. Því vildi ég mælast til þess, að brtt. þær, sem fluttar hafa verið, verði dregnar til baka. Þær eru náttúrlega ekki stórvægilegar, en mundu þó geta valdið því, að fleiri till. kæmu á eftir.
Hvað viðvíkur till. hv. 1. þm. Reykv., þá skal ég viðurkenna, að þar er ekki um stóra upphæð að ræða, aðeins 6 þús. kr., en þegar við verðum að fara jafnsmásálarlega í þessa hluti eins og t. d. það að færa einn vegarspotta úr 3 þús. kr. niður í 2700 kr. og allt þar fram eftir götunum, þá munar þó dálítið um þessar 6 þús. kr., og mundu margir álíta, að þær ættu frekar að fara til annars. Þess vegna vildi ég eindregið skora á hv. þm. að reyna að sameinast um þennan „bandorm“ eins og hann liggur fyrir eftir 2. umr. og taka sínar till. til baka.