20.11.1937
Neðri deild: 31. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1195 í B-deild Alþingistíðinda. (1570)
63. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.
Ísleifur Högnason:
Ég endurtek það, að ég hefi borið fram þessa brtt. af því, að ég álít óbeina tolla og gjöld af innfluttum nauðsynjum ranga tekjuöflunarleið. Þetta er ekki svo lítil fjárhæð, að hún skipti engu, og líklegt að hún vaxi. Ef innflutningur er 20 millj. kr., eins og hér er reiknað með, gerir það 40 þús., skatt, en verði innflutningurinn 30–40 millj., eins og vænta má framægis, hleypur skatturinn á 60–80 þús. krónum. Með því að ég geri ekki ráð fyrir, að stjórnarflokkarnir hafi samið fyrirfram um þennan nýja toll, sem stuðlar ekki að öðru en dýrtíðinni, sé ég ekki ástæðu til, að hann verði samþ. — nema það eigi að taka upp þá reglu, í trássi við hverja heilbrigða hugsun í skattakerfinu, að ná inn öllum kostnaði við hverja opinbera starfrækslu með sérstökum óbeinum álögum og tollum. — Ég mun ekki orðlengja um málið, en vona, að brtt. mín um að afnema gjaldið nái samþykki.