03.12.1937
Efri deild: 41. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1205 í B-deild Alþingistíðinda. (1593)
63. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.
Hv. þm. á þriðju till. um það, að reglur um úthlutun gjaldeyris- og innflutningsleyfa skuli sett með samþykki þeirra banka, sem eiga fulltrúa í gjaldeyrisn:
, eins og gert er ráð fyrir í núgildandi l., en ekki að fengnum till. þessara stofnana. Ég geri ráð fyrir, að það hljóti alltaf að vera svo, að slíkar reglur verði í aðalatriðunum settar með samkomulagi á milli þessara aðilja, en mér þykir óviðkunnanlegt, hvað sem lá í gjaldeyrisl., þegar þau voru sett á sínum tíma, að t. d. annar bankinn gæti með því að setja sig upp á móti einhverju ákvæði, komið í veg fyrir, að það yrði sett í slíka reglugerð, svo að ráðh., sem ætti að framkvæma l., gæti ekkert gert og það yrði að fella ákvæðið niður vegna þessarar mótstöðu frá öðrum bankanum. Það sjá allir, að það er langeðlilegast, að í allri lagasetningu sé einhversstaðar til eitthvert úrskurðarvald, enda er ákvæði hliðstætt þessu í gjaldeyrisl. í Danmörku, þar sem hið endanlega vald er hjá þeim ráðh., sem málið heyrir undir. Hitt er annað mál, að um þetta verður vitanlega að reyna að ná sem beztu samkomulagi milli bankanna og stj., vegna þess hvað það snertir báða aðilja mikið. En hitt er ekki rétt hjá hv. þm., að það sé ekki hægt að hugsa sér að það geti verið lítilsháttar ágreiningur um sjálfar reglurnar milli banka og ríkisstj. um einstök atriði, og sá ágreiningur hlyti alltaf að leiða til þess, að ekki væri hægt að framkvæma reglurnar vegna mótstöðu bankanna, en ef reglurnar eru löglega settar, þá mundu bankarnir fara eftir þeim, þó að þeir fengju ekki að öllu leyti að hafa það eins og þeir vilja. Mér dettur ekki í hug að gera ráð fyrir því fyrirfram, enda geri ég ekki ráð fyrir ágreiningi um þetta efni. Hann sagði, að bankarnir hefðu einkarétt á gjaldeyrinum, og þess vegna væri ekki óeðlilegt, að þeir teldu sig þurfa að fara eigin götur, þó að ráðuneytið setti ákvæði um þetta. Þetta er ekki rétt, því að bankarnir hafa einkarétt á sölu gjaldeyrisins með l. frá Alþingi, — og því skyldi Alþingi ekki gegnum sína umboðsmenn setja skilyrði, sem það telur eðlileg? Ég vil þess vegna mæla á móti því, að þessi till. verði samþ., vegna þess að mér þykir óviðkunnanlegt, að það standi í l., að ekki sé hægt að setja slíkar reglur nema með samþykki þessara tveggja stofnana, ekki fyrir það, að það sé ósamlyndi milli þessara tveggja aðilja, heldur til þess að gera lagasetninguna eðlilegri.
Þá kem ég að þeim till., sem ég flyt við frv., og þær snerta það atriði málsins, sem í raun og veru er stærsta atriðið af þeim, sem hér um ræðir. Í hv. Nd. var því ákvæði bætt inn í frv., að útgerðarmönnum skyldi heimilað að ráðstafa erlendum gjaldeyri, sem fæst fyrir útflutningsvörur þeirra, að því leyti, sem þeir þurfa til greiðslu á vörum til útgerðarinnar. Þetta ákvæði var sett inn í 1. gr., og aðalbrtt. mín, og sú eina, sem þarf að mæla fyrir, er um það, að þetta ákvæði verði fellt niður, og skal ég færa rök að því, að ég tel brýna nauðsyn á að gera það. Það mun hafa vakað fyrir þeim, sem hafa sett þetta ákvæði inn í frv., að þetta yrði til þess, að útgerðarmenn hefðu frjálsar hendur um innkaup á útgerðarvörum, eða svo hefir mér skilizt. En ég vil leyfa mér að benda þeim sömu mönnum á það, að þetta ákvæði tryggir ekki það, út af fyrir sig, að útgerðarmenn geti gert innkaup á vörum sínum, því að þrátt fyrir þetta ákvæði 1. gr. stendur ákvæði 2. gr. um það, að ríkisstj. geti ákveðið, að engar vörur séu fluttar til landsins, nema með leyfi gjaldeyrisn., m. ö. o., að ákvæði 1. gr., að útgerðarmenn megi halda eftir af gjaldeyrinum til greiðslu á útgerðarvörum, hlýtur að takmarkast við vörur, sem þeim er gefið innflutningsleyfi fyrir. Og þá komum við að því, að með þessu er alls ekki tryggt, að útgerðarmenn fái frekar innflutningsleyfi en verið hefir, ef það er það, sem vakir fyrir hv. flm. þessarar till. og þeim, sem með þessu ákvæði kunna að vera. Ég held, að það eina, sem ynnist með þessu, væri það, að útgerðarmenn gætu tekið af andvirði varanna til þess að greiða með vöru, sem þeir hafa áður fengið innflutningsleyfi fyrir til útgerðar sinnar. Nú vil ég í fyrsta lagi upplýsa það, að yfirleitt hefir ekki staðið á því, ég hefi fengið upplýsingar um það frá bönkunum —, að þessar greiðslur hafi farið fram; þeir hafa lagt sig í lima til þess að láta ekki standa á greiðslu fyrir þessar vörur, svo að ég finn ekki sérstaka ástæðu til þess að setja ákvæði til að tryggja greiðslu á vörum til útgerðarinnar frá því, sem verið hefir, og í því efni styðst ég við það, sem bankarnir hafa gefið mér upplýsingar um. Og þá skal ég koma að því, hvers vegna ég er á móti þessu ákvæði; það er vegna þess, að það hefir enga þýðingu aðra en þá, að gera framkvæmd gjaldeyrisl. erfiðari. Það, sem er eitt aðalatriði gjaldeyrisl., er það, að allur gjaldeyririnn komi til bankanna og gangi þaðan allur út, nema sérstakt leyfi sé til þess að halda honum eftir, því að það geta bankarnir og gjaldeyrisn. Ef svo á að fara að leyfa heilli stétt manna að halda eftir andvirði varanna, þá skapar það, eins og hv. 1. landsk. sagði, möguleika til fjárflótta. því að það er misjafn sauður í mörgu fé, –möguleika til þess að menn geti smyglað gjaldeyri undan, því að þó að þeir þurfi að gera grein fyrir, í hvaða vörur gjaldeyririnn á að fara og hvaða verð sé á þeim vörum o. s. frv., þá skapar það bönkunum ófyrirsjáanlega erfiðleika að hafa eftirlit með því, að allur gjaldeyririnn komi inn og sé ekki notaður til annars en leyfi hefir verið veitt til. Ég vil þess vegna skora á þá, sem telja nauðsynlegt að halda uppi gjaldeyrisl., — og ég býst við, að það séu allir, — að athuga afstöðu sína til málsins og hvort þeir geta ekki fallizt á að fella þetta ákvæði niður, því að í framkvæmdinni gerir það, eins og það er, ekki annað en að auka erfiðleikana á því að hafa eftirlit með því, hvort allur gjaldeyririnn kemur inn eða ekki.
Hv. 1. þm. Reykv. vill bæta inn í því ákvæði, að veittur verði gjaldeyrir til greiðslu á endurtryggingargjöldum skipa, sem eru endurtryggð erlendis. Ég vil beina því til hans, hvort hann geti ekki fallizt á það, þar sem það er aðalreglan, að allur gjaldeyrir komi til bankanna og gangi þaðan út, að það sé varhugavert að taka einstaka greiðslu út úr, því að það er fleira en endurtryggingariðgjöld, sem þarf að greiða. En ef við byrjum að gera undantekningar og taka undan greiðslur, sem má taka af andvirði varanna, þá er erfitt að gera grein fyrir, hvar eigi að stöðva það, þegar fyrst er byrjað á því að brjóta niður það kerfi, sem við höfum nú um þessi mál. Ég vil því beina því til hv. þm., hvort hann vilji ekki fallast á að taka þessa till. um endurtryggingariðgjöld til endurnýjaðrar athugunar, og helzt að taka hana aftur nú við umr. Ég vil líka benda á það, að ef haldið er þessu ákvæði í 1. gr., um að útgerðarmönnum sé heimilt að ráðstafa erlendum gjaldeyri fyrir vörur sínar, þá sé ég ekki betur en að það geti komið till. um, að bændur megi gera sama, og aðrir eftir því sem hliðstæður standa til, og ég sé ekki, að það sé fært að gera slíkar undantekningar af þeim ástæðum, að það er fyrsta sporið í þá átt að brjóta gjaldeyrisskipulagið niður, og það gefur ekki útgerðarmönnum aukna tryggingu fyrir því að fá aukin innflutningsleyfi. Ég skal taka það fram, að ég lít svo á, að það sé eðlilegt, að útgerðarmenn fái sem mest leyfi til þess að flytja sínar vörur inn sjálfir, að svo miklu leyti sem það kemur ekki í bága við hagkvæm innkaup til landsins, og ég hefi beitt áhrifum mínum þó nokkuð í þá átt, að þeir fengju það frá því, sem var fyrst, þegar farið var að framkvæma gjaldeyrisl., og ég held, að það sé sú rétta leið, að útgerðarmenn komi málum sínum á framfæri við gjaldeyrisn. og ríkisstj., en ekki að hafa ákvæði í frv., sem gæti orðið til þess að brjóta niður framkvæmd gjaldeyrisl., enda mun það ekki vera meiningin með þessari brtt. Ég býst við, að við séum allir sammála um, að það þurfi að hafa þessi höft, eins og sakir standa.
Till. hv. 1. landsk., sem er viðbótartill. við þetta ákvæði, sem ég hefi gert að umræðuefni, er á þá leið, að gjaldeyrisn. skuli skyldug til að veita gjaldeyrisleyfi, og það á að vera til þess að tryggja það, að útgerðarmenn fái innflutning. En það ákvæði út af fyrir sig er ekki nægilegt til þess, því að þeir yrðu að fá bæði innflutnings- og gjaldeyrisleyfi, og ég tel, að það sé ekki hægt að setja það skilyrðislaust inn í l., að það sé skylt að veita hverjum útgerðarmanni innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir því, sem hann fer fram á. Það gæti orðið til þess að drepa verzluninni svo á dreif, að það fengjust stórum óhagkvæmari kaup. Hitt er það rétta, að útgerðarmenn reyni að mynda samtök um innflutning á vörum, og þau sámtök leiti síðan til gjaldeyris- og innflutningsn. um innflutningsleyfi, og að svo eigi að teygja sig eftir því að mæta þeim óskum, sem þau á heilbrigðum grundvelli gera um gjaldeyrisleyfi. En að taka fram í l. ákvæði um slíkt, eins og hér er farið fram á, verður bara til þess að gera f. næstum að segja óframkvæmanleg.