04.12.1937
Efri deild: 42. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1228 í B-deild Alþingistíðinda. (1604)

63. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Jóhann Jósefsson:

Herra forseti! Ég sé nú varla nokkurn hv. þdm., en það, sem ég ætlaði að segja, var nokkurt svar til hæstv. fjmrh., sem ekki er hér staddur. — Hæstv. fjmrh. gerði lítilfjörlega tilraun til að bera í bætifláka fyrir sig gegn því, sem ég hélt fram með fullri einurð í ræðu minni, að hæstv. ráðh. færi fram með óréttlæti í garð sjávarútvegsins. Hæstv ráðh. var að tala um, að ég hefði verið með skæting í sinn garð. Ég kannast ekki við, að það sé rétt, a. m. k. var það ekki gert að yfirlögðu ráði. (Fjmrh.: Það hefir máske verið óviljandi). En hæstv. ráðh. verður að skilja það, að þegar hann annaðhvort vísvitandi eða óafvitandi ber fram og beitir sér fyrir lagaákvæðum, sem auðsjáanlega stofna til misréttis meðal þegnanna, þá verður að velja þeirri framkomu hans þau orð, sem verðskulduð eru. Það er kannske af því, að ég er meiri skapmaður en hæstv. ráðh., að ég get ekki að því gert, að mér hleypur kapp í kinn við að horfa á það þing eftir þing, að hlutur útvegsmanna er fyrir borð borinn og neitað er um lítilfjörlegustu ákvæði til að greiða fyrir útgerðinni, og sjá og heyra hæstv. fjmrh. standa fremstan í flokki gegn hagsmunum útvegsins. Hann hélt því fram, að þau miklu fríðindi, sem eitt fyrirtæki í landinu, Samband ísl. samvinnufélaga, hefir, þar sem það hefir óskorað vald yfir meiri hluta af öllum sínum gjaldeyri, væru ekki gefin fyrirtækinu frá honum, heldur væru það bankarnir og gjaldeyrisn., sem hefðu úthlutað S. Í. S. þessum fríðindum. En þessar stofnanir, bankarnir og gjaldeyrisnefnd, eru fyrst og fremst undir yfirstjórn hæstv. fjmrh., og ef hann hefði ekki lagt sitt samþykki á þessa ráðstöfun, þá hefðu bankar og gjaldeyrisn. ekki veitt S. Í. S. þessa undanþágu upp á sitt eindæmi. Ég er ekki að sakast um það, þó S. Í. S. fái þessi fríðindi; hitt vil ég ásaka hæstv. ráðh. fyrir, að hann skuli standa í vegi fyrir því, að önnur fyrirtæki, sem eins stendur á fyrir og S. Í. S., fái samskonar réttindi. (Fjmrh.: Hvar er ég með brtt. mínum að fara fram á það, að S. Í. S. fái nokkur sérréttindi?). Það stendur hvergi neitt um það í frv., en þessi fríðindi eru veitt í „praksis“, eins og hæstv. ráðh. veit. Það, sem hæstv. ráðh. vill, er, að S. Í. S. sé hafið yfir lög og rétt, og ef nokkur dirfist að átelja þetta ranglæti, þá er hann bara sakaður um óviðurkvæmilegt orðfæri.

Hæstv. ráðh. var að tala um það með miklum fjálgleik, að valdið ætti að vera í höndum bankanna og gjaldeyrisn. framvegis, og vildi hann þvo hendur sínar af gerðum þessara stofnana, sem eru óskeikular í hans augum, og var sannfæring hans um óskeikulleik bankanna aldrei sterkari en í síðustu ræðu. En hvað segir svo það frv., sem hér liggur fyrir? Í 2. gr. frv. er einmitt verið að draga þetta vald úr höndum bankanna og gjaldeyrisn. og flytja það í hendur ráðh. Það, sem áður þurfti samþykki bankanna til þess að fá gildi, getur nú orðið gildandi að fengnum till. bankanna. Allir, sem komnir eru til vits og ára, skilja að, hver munur er á samþykki og tillögum. Þetta skýtur nokkuð skökku við hjá hæstv. fjmrh., að reyna að skjóta fyrir sig sem skildi þeim stofnunum, sem verið er að draga valdið frá.

Þá sagði hæstv. ráðh., að vald það, er S. Í. S. hefir yfir sinum gjaldeyri, væri svipað því, sem aðrar stofnanir hefðu fengið eftir ráðstöfun gjaldeyrisn. Þetta er algerlega rangt. Það er ekki hægt að kalla það neitt svipað, þó einstök félög eða fyrirtæki hafi fengið leyfi á litlum ákveðnum hluta af sínum gjaldeyri í einstökum tilfellum. Slíkt er ekkert hliðstætt réttindum S. Í. S., sem hefir frían gjaldeyri til að kaupa fyrir það, sem því sýnist, hvort sem það er korn, nýlenduvörur, vefnaðarvörur eða annað. Því það er engin stofnun í landinu, sem hefir rétt til svo mikið sem að spyrja S. Í. S., til hvers það noti sinn frjálsa gjaldeyri, hvað þá að gera nokkrar aths. um það, hvernig hann sé notaður. Enginn annar þegn í þjóðfélaginu á við slík skilyrði að búa. Hæstv. ráðh. stóð hér á Alþingi fyrir 2 árum í sömu sporum með sömu röksemdir og nú, og ég sýndi honum fram á þá, að hann hefði algerlega rangt fyrir sér, en hann hefir ekkert lært síðan. Nei. Það stendur hvergi í l., að S. Í. S. eigi að hafa undanþágu með sinn gjaldeyri, en ég fullyrði, að sú undanþága er engu að síður veitt með vilja og leyfi hæstv ráðh., þess sama ráðh., sem vill útiloka það, að nokkur annar, útgerðarmaður eða aðrir, fái frjálsan gjaldeyri til allra nauðsynlegustu hluta. Þetta skarð, sem hann er að tala um, að við viljum höggva í gjaldeyri landsins, er ekkert nýtt skarð, því hvort sem það væri nú hæstv. ráðh., bankarnir eða gjaldeyrisn., sem veitt hefir S. Í. S. yfirráð yfir meiri hl. af sinum gjaldeyri, þá er þar komið þetta skarð, sem hann er að tala um. Það er því ekkert nýtt skarð, sem við erum að gera með okkar till. Ég skal játa, að þetta út af fyrir sig getur verið rétt hjá hæstv. ráðh., að sem gjaldeyrismúrveggur séu l. traustust án undanþágu. En það er undarlegt, að hæstv. ráðherra heldur þessu fram um leið og hann liður slíka framkvæmd á lögunum sem ég hefi lýst.

Við, sem vitum, við hvaða kjör útvegsmenn eiga að búa, gerum okkur ekki ánægða með löggjöfina, þó að hæstv. ráðh. sé ánægður með hana. Þess vegna viljum við reyna að fá löggjafann sjálfan til að unna útvegsmönnum einhvers hluta af þeirri sanngirni, sem þeir eiga óskoraðan rétt á. Hæstv. ráðh. getur með fjálgleik vísað á bug öllum ádeilum í þessu efni, en það verður harla haldlítið, þegar verkin sjálf tala.

Út af þeim sérstöku ummælum hæstv. ráðh., sem snerta þau afrek, sem Alþ. væri nú búið að vinna í þágu útvegsins, verð ég að segja, að þó að það sé út af fyrir sig þakkarvert, að útflutningsgjaldi var létt af saltfiski, eru svo margir aðrir nýir skattar lagðir á sömu mennina, að ég er viss um, að þeirra Hagur batnar ekki, þegar á allt er litið. Það kostar ríkissjóð 220 þús. kr. að gefa eftir útflutningsgjald af saltfiski, en hinir nýju skattar nema á 2. millj. kr. Ekki lítill hluti af því kemur niður á útvegsmönnum. Með þessu frv. er enn vegið í sama knérunn, þar sem lögð eru 2 0/00 á öll leyfi, þannig að þegar útgerðarmaður fær 1000 kr. leyfi fyrir hlutum til útgerðarinnar, á hann að gjalda 2 kr. Það er rétt að viðurkenna þá tilraun að létta undir með útgerðinni með því að létta útflutningsgjaldi af saltfiski, en þegar litið er á hitt, hvað við bætist í sköttum, er sú hjálp ekki þung á metunum.

Hæstv. ráðh. minntist á ádeilur frá hv. 1. þm. Reykv. og mér vegna skilyrðisins um lögreglyfirheyrslu áður en menn taka sér ferð á hendur til útlanda. Hæstv. ráðh. fannst ekki mikið að þessu, að mæta hjá lögreglustjóra í þessu erindi, og gerði samanburð á því og að fá sér vegabréf. Það er nú tvennt ólíkt enda var það ekki það, sem fyrir mér vakti, að menn væru hræddir við að „sjá framan í sýslumanninn“, heldur er það niðurlæging fyrir landsfólkið að eiga að gera lögreglunni grein fyrir hverju smáatriði, hvar þeir ætli að búa erlendis og hver hjálpi þeim um peninga til fararinnar. Allt þess háttar er fullkomið einkamál, þar sem um frjálsa þjóðfélagsborgara er að ræða. Hæstv. ráðh. talar um þetta eins . og maður, sem lítið hefir ferðazt og lítið vit hefir á þessum hlutum. Vegabréf eru sjálfsögð í öllum löndum. Maður á það ekki undir neitt yfirvald að sækja að fá vegabréf. Hitt ákvæðið er allt annars eðlis. Það er lagt undir úrskurð og duttlunga gjaldeyrisn. og lögreglustjóra, hvort þeir aðiljar láta sér nægja þær upplýsingar, sem borgararnir gefa. Það getur verið, að framkvæmdin á þessu verði meinlaus, en það er jafnóviturlega til hennar stofnað eigi að síður. Vegabréf eru hálmstrá hjá hæstv. ráðh. Það er hvarvetna sjálfsagt, að menn, sem ferðast landa á milli, hafi vegabréf til þess að geta sýnt, hverjir þeir eru, og lögregluyfirvöldunum er skylt að láta þau af hendi, ef þau eiga ekkert útistandandi við manninn. Hitt er nýmæli í löggjöf þjóðanna, að frjálsir borgarar eigi það undir lögreglunni, hvort þeir megi ferðast til annars lands.

Hæstv. ráðh. segir, að þeir séu nokkuð margir, sem fari ónýtisferðir og erindisleysur. En það er ekki hægt að vita fyrirfram. Það er eins og hver annar sleggjudómur, að enginn hafi neitt að gera til útlanda nema t. d. kaupmenn eða bankastjárar. Það er eins og hv. 1. þm. Reykv. tók fram, einkamál hvers borgara, hvort hann tekur sér ferð á hendur lengri eða skemmri tíma, og eins er það einkamál, við hvaða menn hann ætlar að skipta og hvað hann ætlar að hafa sér til uppihalds. Ég gæti trúað, að það yrði almennt, að menn vildu alls ekki lúta þessu, heldur ferðuðust með togurum og flutningaskipum, en þá gæti Eimskipafél. misst mikils í af fargjöldum.

Ég held, að ég hafi þá nokkurnveginn gert mótbárum hæstv. ráðh. skil og sýnt fram á, að lítið hald er í hans vörn, enda er þess ekki að vænta, þar sem hann er að berjast við að lögfesta nýmæli, sem hefir í för með sér óeðlilega þvingun og setur á þjóðina stimpil menningarleysis, en hitt, sem hæstv. ráðh. er að reyna að verja, er, að haldið sé áfram að sitja á hlut útvegsmanna með gjaldeyrisráðstöfunum, um leið og vitanlegt er, að aðrir aðiljar, sem selja vörur til útflutnings, fá að græða stórfé á því að hafa sinn gjaldeyri frjálsan. Ég öfunda ráðh. ekki af málstað hans. Og þó að hann fyrir flokksfylgi fái hrundið viðleitninni til þess að beina þessum málum á réttan veg, tel ég hann ekki öfundsverðan af þeim sigri.

Ég mun gangast inn á að taka aftur brtt. minar til 3. umr., en ég vænti, að hv. n., sem fær brtt. til meðferðar, geri einhverja yfirbót, sem viðunandi sé.