13.12.1937
Efri deild: 48. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (1614)

63. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

Sigurjón A. Ólafsson:

Ég heyrði hv. frsm. ekki minnast á afstöðu n. til hinna ýmsu till., m. a. til till. minnar, hvort hv. n. er með henni eða móti. Ég óska eindregið eftir umsögn n. um það, hvort gjaldeyrisn. hefir leyfi til að neita um gjaldeyri, ef till. mín verður felld, þar sem það mundi vera í ósamræmi við lögin.