18.12.1937
Neðri deild: 54. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1235 í B-deild Alþingistíðinda. (1621)

63. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Frsm. minni hl. (Ólafur Thors) :

Þetta frv., sem lagt var fyrir þessa hv. d., er nú komið hingað aftur eftir að hafa sætt meðferð í báðum d. Hér í hv. Nd. voru gerðar nokkrar breyt. á frv., og þar á meðal ein breyt., sem miklu máli skiptir, sú, að heimila útvegsmönnum að ráðstafa sjálfir þeim hluta síns eigin gjaldeyris, sem þeir þurfa til þess að kaupa vörur fyrir til sinnar útgerðar. Í hv. Ed. hefir þessi stefna hv. Nd.. verið fyrir borð borin og þetta ákvæði numið burt úr frv. Ég mun því að nýju leyfa mér að bera fram skrifl. brtt. við frv. um þetta sama. Það er alveg orðrétt endurtekning á þeirri till., sem hv. Nd. samþ. og er prentuð á þskj. 114. Um rökstuðninginn fyrir þessari till. vísa ég til fyrri umr. um þetta mál ásamt upplýsingum, sem síðar hafa fallið í þinginu, m. a. í útvarpsumr. í gær, um nauðsynina á því, að útgerðin fái að njóta þessara fríðinda.