22.12.1937
Neðri deild: 59. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1242 í B-deild Alþingistíðinda. (1641)

63. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

Héðinn Valdimarsson:

Í samningum þeim, sem Alþfl. og Framsfl. gerðu með sér um stjórnarsamvinnu, var ætlazt til þess, að gjaldeyrismálin yrðu leyst á sérstakan hátt. Þessi liður hefir aldrei verið haldinn af Framsfl., og gjaldeyrismálin hafa verið leyst á annan hátt en til var ætlazt, og að mínu áliti á óviðunandi hátt. Af þessari ástæðu og einnig með tilliti til þeirrar afgreiðslu, sem síldarverksmiðjumálið hefir fengið hér á þingi, greiði ég ekki atkv.