30.10.1937
Efri deild: 15. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1251 í B-deild Alþingistíðinda. (1668)

Þingvíti

Jón Baldvinsson:

Hv. þm., sem talað hafa, láta svo sem þeir hafi verið settir í þingvíti.

(PZ: Ég sagði, að mér hefði verið tjáð það). Nú er þetta ekki svo. Það var að vísu tekið fram í gerðabókinni, að þessir hv. þm. hefðu verið fjarverandi og ekki haft leyfi forseta. (PZ: Þeir höfðu forsetaleyfi). Mér skildist á hv. 1. þm. N.-M, að hann hafi farið á þennan fund án þess að vera sérstaklega til þess kvaddur. Hann hefir því farið þessa ferð af einskærum áhuga fyrir málinu. Það er ljóst, að hann hefir haft meiri áhuga fyrir að sækja þennan fund en að vera á fundum Alþ., svo sem þingsköp mæla fyrir.

Hv. 6. landsk. var töluvert þungur út af þessu máli. Hann vildi láta líta svo út sem væri verið að hafa það vandræðaástand, sem nú ríkir í þessum sveitum, í fíflskaparmálum. Ég hefi aldrei minnzt á slíkt, en hitt talaði ég, að et þm. þyrftu að fara frá til að gegna alvarlegum störfum, þá færu þeir þar um eftir þingsköpum. sem þeir hafa gengizt undir, og fá til þess nauðsynleg leyfi. Hv. 6. landsk. var að beina því til mín, að ég mundi ekki hafa sérstaklega mikinn áhuga fyrir málum sveitanna. Ég veit ekki, hvort hann hefir á þeim tíma, sem hann hefir átt sæti á þingi, borið fram fleiri mál til sigurs, landbúnaðinum til góða, heldur en ég hefi gert á sama tíma. Ég hugsa, að ef athugað væri, þá mundi það koma í ljós, að ég hefi ekki síður en hann litið á hag bændanna. Og ég hefi talið það sjálfsagt, að ríkissjóður hlypi undir bagga og legði fram stórfé til þess að reyna að hefta útbreiðslu þessarar skæðu veiki, jafnvel þó að ég hafi ekki haft trú á, að allt það, sem gert hefir verið, komi að gagni. Og ég skal taka það fram alveg sérstaklega, að ég ætla, að ég hafi verið einn allra þm., sem benti á þá smitunarhættu, sem gæti stafað af innflutningi á karakúlfé. Nú skildist mér allir vera á einu máli um það, að ég muni hafa haft rétt fyrir mér í þessu.