22.12.1937
Efri deild: 56. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1261 í B-deild Alþingistíðinda. (1706)

Starfslok deilda

Magnús Jónsson:

Af því að mér virtist síðasti ræðumaður hafa nokkurn fyrirvara um það, hvort hann talaði fyrir hönd allra hér í þessari hv. deild, þegar hann þakkaði hæstv. forseta fyrir góða fundarstjórn og góða samvinnu á því þingi, sem nú er að enda, og þar sem ég gæti hugsað mér, að hann kannske meinti það sérstaklega til þeirra, sem eru í stjórnmálaandstöðu við forsetann, þá vil ég aðeins – án þess að bæta nokkuð um þau fögru orð í garð hæstv. forseta — taka það fram, að ég hygg alveg óhætt að þakka

hæstv. forseta fyrir hönd okkar allra. Það er að rísa ágreiningur um málefnin, og kannske ekki óblandin ánægja um allt, sem starfað hefir verið á þessu þingi, eins og oft vill verða. En það er alveg víst, að það snertir ekkert stjórn hæstv. forseta, sem hefir verið með jafnmiklu réttiæti og mildi eins og af honum má vænta. Ég vil einnig taka undir þá góðu kveðju og ósk um ferðina norður. Og ég vil segja fyrir hönd okkar Reykvíkinga, að honum er velkomið að dvelja hér hjá okkur þangað til næsta þing kemur saman.