22.12.1937
Sameinað þing: 21. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1264 í B-deild Alþingistíðinda. (1715)

Þinglausnir

forsrh. (Hermann Jónasson):

Það eru nú liðin eitt þúsund og sjö ár síðan Alþingi Íslendinga var stofnað, og þetta er fimmtugasta og annað löggjafarþingið, sem háð er síðan Alþingi var endurreist.

Ég leyfi mér í umboði konungs og í hans nafni að segja Alþingi slitið.

Ég vil biðja alþingismenn að minnast ættjarðar vorrar, Íslands, og svo konungs vors, með því að rísa úr sætum sínum.

[Þingheimur stóð upp].

Var síðan af þingi gengið.