28.10.1937
Efri deild: 13. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 3 í C-deild Alþingistíðinda. (1718)

50. mál, drykkjumannahæli

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti! Ég vil aðeins leyfa mér, áður en málið fer til n., að benda á, að ég tel dálítið hæpið, hvort rétt sé að gera sérstakar ráðstafanir, sem hafa það í för með sér, að almenningsálitið stimplar þessa menn, hér um ræðir, í annan flokk heldur en aðra þegna þjóðfélagsins. Ég vil benda á, hvort ekki væri rétt að láta þær ráðstafanir, er gera þarf, koma meira óbeint fram sem almenna sjúkrahjálp til þessara manna, án þess að þeir séu álitnir einhver sérstök tegund manna. sem þurfi sérstakrar meðferðar með. Ég held, að það gæti frekar orðið til þess að hjálpa a. m. k. sumum til þess að rétta við heldur en ef þeir eru stimplaðir sem drykkjumenn og settir á hæli, sem stofnað er til þess eins að taka við þessu úrhraki, sem þjóðfélagið telur ekki fært að hafa meðal borgaranna almennt. Þessir menn eru sjúklingar, og það á að fara með þá í samræmi við það, og ef mönnum sýnist, má stofna hæli fyrir þá. en það á ekki að kalla þau drykkjumannahæli. Ég vil láta það heiti hverfa. Þetta vildi ég aðeins segja áður en málið fer lengra.