17.11.1937
Efri deild: 29. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í C-deild Alþingistíðinda. (1727)

50. mál, drykkjumannahæli

Guðrún Lárusdóttir:

Það þurfa ekki að vera nema örfá orð. Ég vil aðeins leiðrétta það, sem hv. sessunautur minn sagði um, að ég væri ánægð með þessa breyt. Það er ég ekki. Það er ekki alveg sama að vera ánægður og geta sætt sig við eitthvað. Ég get eftir atvikum sætt mig við þessa afgreiðslu á frv., en hitt er mér fullljóst, að það nær ekki að tryggja þann tilgang, sem ég ætlaði frv. mínu að gera. Ég álít, að þjóð, sem verður fyrir miklum skakkaföllum af völdum áfengisins, eigi rétt til fullkominnar löggjafar um ráðstafanir til að varna skaða, sem af því leiðir. Það skal skýrt fram tekið, að þau hörkulegu ákvæði, sem eru í 4. gr., eiga auðvitað ekki við nema þá drykkjumenn, sem stendur beinn háski af fyrir bæði þá sjálfa og aðra. Féleysi er um kennt, máli þessu til fyrirstöðu. Ég skal játa, að við erum ekki rík þjóð, Íslendingar. En höfum við þá ráð á að kaupa ógæfu yfir þjóð vora, með síaukinni áfengisnautn.

Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri. Þetta hefir verið mitt hjartans mál, og ég vona, að allshn. beri gæfu til þess að geta útvegað þá fjárhæð, sem með þarf, svo að þessi litli vísir geti orðið undirstaða annars meira.