23.10.1937
Neðri deild: 9. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í C-deild Alþingistíðinda. (1736)
25. mál, niðursuðuverksmiðjur
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég heyrði því miður ekki alla ræðu hv. þm. G.-K., en það af henni, sem ég heyrði, gaf mér tiletni til þess að segja nokkur orð, og eins 1. málsgr. grg., en þar stendur:
„Atvinnuleysi og óhagstæð verzlun eru nú sem stendur almennasta böl þjóðfélagsins og það, sem þyngstum búsifjum veldur. Löggjafarvaldið og stjórnarvöldin hafa reynt að lækna þessar meinsemdir með atvinnubótastyrkjum og innflutningshöftum, en með þeim árangri, að báðar aukast án afláts“.
Mér skildist á ræðu hv. þm. G.-K., að þetta frv. og fleiri frv. frá sjálfstæðismönnum ættu að marka einhverja stefnubreyt. Það, sem í grg. stendur, er rangt, og ég býst við, að flm. sé það ljóst, að það er rangt, því að nú á að reyna að efla atvinnulífið með fyrirgreiðslum þess opinbera. Við skulum bera saman fjárlögin 1934 og 1935 og svo nú. Þá kemur í ljós, að það hefir einmitt verið reynt að efla atvinnulífið með styrk frá því opinbera. Þess vegna er það svo þveröfugt við það, sem hv. þm. G.-K. vill vera láta, að þetta frv. er einmitt viðurkenning flm. fyrir því, að stefna stj. í atvinnumálum undanfarin ár er rétt.
Öllum þingheimi er kunnugt um það hróp, sem gert var að ríkisstj. fyrir hin hækkandi fjárlög, og það hefir einkum verið sá hv. þm., sem stendur að þessu frv., og flokkur hans, sem það gerðu. Þessi hækkuðu útgjöld hafa einmitt gengið í sömu átt og þetta frv., til þess að styrkja og efla atvinnuvegina. Hvenær var fyrst farið að styrkja nýmæli í sjávarútvegsmálum? Ég hygg, að það hafi verið 1935, fyrsta ár núv. ríkisstj., og það var gert með fé fiskimálasjóðs, sem er fengið beint úr ríkissjóði og hv. flm. þessa frv. hefir skammað ríkisstj. fyrir að greiða. Þetta er sannleikurinn í þessu máli. En það er engin ástæða til að vera með vonzku út af þessu, enda hefi ég ekki ætlað mér það, heldur vil ég lýsa ánægju minni yfir þeirri viðurkenningu, sem felst í þessu frv. þeirra sjálfstæðismanna. En ég vil minnast á annað atriði. Við l. umr. fjárlfrv. söng enn við sama tón hjá hv.
1. flm. þessa frv., að skattar séu of háir og að það verði að lækka fjárlögin. Nú skyldu menn ætla, eftir að þessi „prógram“-ræða var haldin, að stefna Sjálfstfl. mundi verða sú, að flytja till. til að lækka útgjöld ríkissjóðs og jafna þann halla, sem er á fjárl., ekki sízt þar sem flm. þessa frv. heldur því fram, að hækkaðar greiðslur fjárl. stefni í þjóðnýtingarátt. En hvað skeður svo? Á fyrstu 12 dögum þingsins flytja sjálfstæðismenn frv., sem, ef þau næðu fram að ganga, mundu hækka fjárl. um hálfa fjórðu millj. kr. Hvernig á nú að skilja þetta? Ætlast flokkurinn til þess, að ekkert mark sé tekið á þessum frv., eða eru sjálfstæðismenn reiðubúnir til þess að skera niður hálfa fjórðu millj. af núgildandi fjárlögum? Og af hvaða liðum ætti að strika þessa upphæð? Það er bezt að telja upp þessi frv. Í Ed. er borið fram frv. um tekjur bæjar- og sveitarfélaga, sem mundi kosta um 2150 þús., þá kemur frv. um afnám útflutningsgjalds af sjávarafurðum, sem mun nema um 600 þús. Þá er frv. um hraðfrystihúsin, sem ekki mundi kosta undir 100 þús. árlega, og niðursuðuverksmiðjurnar mundu ekki heldur kosta undir 50–100 þús. á ári. Þá er till. til þál. um að byggja stórt gæzluskip til landhelgisgæzlu og reka í stað bátanna, sem mundi kosta um 100 þús., frv. um landhelgissjóð, flutt af Thor Thors og Sigurði Kristjánssyni, sem ekki verður undir 150 þús., till. um fiskveiðasjóð Íslands, um 200 þús., till. til þál. um dýpkun Vestmannaeyjahafnar. sem mundi kosta um 30 þús., frv. til l. um byggingarsjóð sveitanna, 100 þús., og till. til þál. um að gera Bolungavíkurhöfn að öruggu skipalægi, um 150 þús. Ég sé, að hv. þm., sem að frv. standa, koma þessar tölur á óvart, en þess mátti vænta, að minnzt yrði á þær. Þetta leyfi ég mér að kalla skrípaleik. Ég veit, að Sjálfstfl. er ekki reiðubúinn að fella þessa upphæð niður úr fjárl. eða hækka skatta, sem þessu nemur. Það er víst, að litið yrði eftir til að hlaupa undir bagga með atvinnuvegunum, ef taka ætti öll þessi lög til framkvæmdar. Ég endurtek þau orð mín, að ég tel það skrípaleik að bera fram svo gáleysisleg frv. án þess að hafa gert sér grein fyrir, hvernig eigi að taka afleiðingunum.