27.10.1937
Neðri deild: 12. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í C-deild Alþingistíðinda. (1747)
25. mál, niðursuðuverksmiðjur
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Umr. um þetta mál hafa slitnað nokkuð í sundur vegna þess, að þær hafa staðið yfir marga þingfundi. Þess vegna má vera, að menn hafi gleymt tilefninu til sums af því, sem ég þarf að taka fram. — Þessar umr. hafa snúizt nokkuð almennt um stefnur, og var það flm. frv., sem gaf tilefni til þess með ræðu sinni. Í ræðu, sem hv. þm. G.-K. flutti í gær til svars við ræðu minni, sagði hann sem fyrr, að ég hefði átt að flytja fyrirfram till. um, hvernig vega ætti upp á móti halla þeim, sem er á fjárlfrv., og móti útgjaldaaukningu þeirri, sem hugsanlegt væri, að yrði gerð af Alþ. Um síðara atriðið er það að segja, að mér bar ekki skylda til að sjá fyrir, hvaða útgjöld mundu bætast við á Alþ., en ef ég eða minn flokkur berum fram till., sem hækka útgjöldin, verða líka lagðar fram á sínum tíma till. um, hvernig eigi að vega á móti því.
Um hitt atriðið vil ég segja það, að þar sem samningar standa yfir um það, hvort núv. stj.flokkar geti komið sér saman um afgreiðslu mála á Alþ., þá er ekki eðlilegt, að ég. að svo stöddu máli, geri ákveðnar till. um þetta. Þetta álít ég nægilegt svar við því, sem hv. þm. G.-K. sagði. En þetta leysir ekki hann eða Sjálfstfl. undan þeirri skyldu, að um leið og þeir bera fram till. um aukin útgjöld, þá ber þeim að bera fram till. um, hvernig vega skuli upp á móti þeim. En það hafa þeir enn látið undir höfuð leggjast. Það er hinsvegar ekkert nýtt, þótt hv. þm. G.-K. færist undan slíkum skyldum eða Sjálfstfl., en það, sem er nýtt í þessu máli og því eðlilegt að umr. snúist um, er það, sem hv. form. Sjálfstfl. heldur fram, að það þurfi ekki að sjá fyrir neinum nýjum tekjum til að koma á móti útgjöldum þessa og annara útgjaldafrv., sem Sjálfstfl. stendur að. Þetta atriði er alveg nýtt og því ástæða til að ræða það frekar nú þegar.
Að vísu halaði hv. flm. nokkuð í land, þar sem hann sagði í gær, að þar bæri þó að undanskilja frv. um tekjur bæjar- og sveitarfélaga. Ég get gert það fyrir hv. þm., til þess að gera umr. einfaldari, að undanskilja þetta frv. og taka þá skýringu hans gilda, að ef þetta frv. yrði samþ. og þessar 2 millj. og 300 þús. væru teknar úr ríkissjóði, þá þyrfti að afla einhverra nýrra tekna í staðinn. En ég leyfi mér að mótmæla því, sem hv. þm. sagði, að þörf bæjar- og sveitarfélaga fyrir auknum tekjum sé til orðin vegna frv. eða laga frá Alþ. á árum núv. ríkisstj. Eg mótmæli þessu og vil um leið benda á, að í tíð núv. ríkisstj. hafa verið aukin framlög til atvinnubóta, sem um leið hafa létt sveitarframfærslu í bæjum og sveitum. Það getur ekki heldur talizt álag á sveitar- og bæjarfélög, þótt fátækralögin hafi fært framfærsluskylduna nokkuð til milli héraða; það skapar ekki þörf fyrir nýjar tekjur, enda reyndi hv. þm. G.-K. ekki að færa nein rök fyrir þessari staðhæfingu sinni. Það mun vera einn lagabálkur frá þessu tímabili, sem eykur byrðar bæjar- og sveitarfélaganna; það eru tryggingarlögin. En ég hygg, að atvinnubótaframlagið muni vega á móti því, enda lækka framlög ríkissjóðs til trygginganna framfærið hjá sveitar- og bæjarfélögum. Ég skal ganga inn á það, sem hv. þm. sagði, að það mundi að sönnu þurfa að afla tekna á móti þessari upphæð og ekki hægt að treysta þar þeirri skýringu hans, að ný gjöld skapi nýjar tekjur. Bara að hann gleymi því ekki þegar þetta mál verður leyst hér á Alþ., að hann viðurkenndi, að það myndi þurfa að bæta ríkissjóði þetta tap á tekjustofni.
En þó er eftir aðalatriði málsins, sem er sú nýja uppfinning, sem hv. form. Sjálfstfl. hefir gert, að að öðru leyti séu útgjaldatill. Sjálfstfl. þess eðlis, að þær muni hafa í för með sér stórkostlega aukningu á tekjum ríkissjóðs. Það þurfi ekki annað en að bæta nýjum útgjöldum á ríkissjóð og hækka svo tollaáætlanirnar, þá hækki tekjurnar af sjálfum sér. Við skulum athuga á ný þessa nýstárlegu kenningu og greiðslur þær, sem fram eiga að fara. Þá er fyrst niðurfelling útflutningsgjalds 600 þús., styrkur til niðursuðuverksmiðju 100 þús., frystihúsabyggingar 100 þús., byggingar í sveitum 100 þús., landhelgisgæzla 250 þús. og aukið framlag til fiskveiðasjóðs 200 þús., eða alls 13–14 hundruð þús. Um þessar greiðslur heldur hv. flm. því fram, að þær muni strax á næstu árum auka svo tekjur ríkissjóðs, að það sé alveg óhætt að bæta þeim á fjárlögin, þar þurfi engar auknar tekjur né nokkurn niðurskurð, það jafni sig allt sjálfkrafa. Eins og nokkrum hv. þdm. detti í hug að trúa því, að afnám útflutningsgjalds á saltfiski muni auka svo gífurlega útgerð og útflutning, að skatttekjur til ríkissjóðs hækki öll ósköp. Ég veit, að engum hv. þdm. dettur í hug að trúa því, að ef þessar 6–7 hundruð þús. væru látnar falla niður, þá mundi það valda stórbreytingum á útgerðinni og auka útflutningsmöguleika. Alveg er sama að segja um það. ef farið væri að styrkja 2–3 hraðfrystihús og svo sem eina niðursuðuverksmiðju; það mundi ekki valda þeim stórbreytingum á tolltekjum, að mikil tekjuaukning yrði að því. Það má vera, þegar búið er að starfa þannig fyrir útveginn í mörg ár, að tolltekjurnar aukist, en að það hafi nokkuð að segja fyrir tolltekjurnar hin næstu ár, býst ég við, að hv. þm. G.-K. sé einn um að halda.
Sama er að segja um landhelgisgæzluna. Hún er talin vera í góðu lagi og engar kvartanir hafa komið um hana utan af landi nú síðustu ár, sem var þó algengt áður. Ég held ekki, að okkur sé nein þörf á því að auka framlög til hennar um 250 þús., og engum mundi detta í hug, að þótt sú upphæð væri sett í fjárlög nú, þá myndi hún koma inn aftur í auknum sköttum og tolltekjum hin næstu ár. Því myndi enginn treysta; ég efast meira að segja um, að hv. fim. trúi því sjálfur. Það er ekki minnsti vafi á, að ef einhverjum hv. þm. eða þingmeirihl. dytti í hug að veita till. hv. þm. G.-K. fylgi sitt, yrði afleiðingin sú, að hin mikla tekjuaukning, sem hv. þm. reiknar með, myndi alls ekki koma fram næstu ár.
Við ættum að geta verið sammála um, að þessi kenning mundi ekki skapa jafnótt tekjur til ríkissjóðs, væri henni fylgt. Við ættum líka að geta verið sammála um, að þessi kenning er sköpuð út úr vandræðum, þeim vandræðum, að form. Sjálfstfl. virtust engar útgöngudyr færar aðrar en þær, að viðurkenna, að till. hans hér á Alþ. um niðurfelling tekna og aukin útgjöld myndu hækka skatta og tolla og niðurskurð fjárveitinga til atvinnubóta. Formann Sjálfstfl. skortir aðeins kjark til þess að viðurkenna þessa staðreynd, að ekki er hægt að gera allt í einu, að hækka útgjöld og lækka skatta, og því fundið upp þessa fáránlegu kenningu. Það er ekki hægt að gera allt í senn, lækka skatta og tolla, hækka útgjöld og afgreiða tekjuhallalaus fjárlög.
Það er ýmislegt í framkomu hv. fulltrúa Sjálfstfl. viðvíkjandi þessum málum, sem er í raun og veru ákaflega einkennilegt. Við 1. umr. fjárl. var 1. þm. Reykv. fulltrúi Sjálfstfl. Deildi hann þá mjög á núv. stjórnarflokka fyrir það, að útgjöld ríkissjóðs færu alltaf hækkandi. Og ekki nóg með það, að hann almennt deildi á stjórnarflokkana fyrir það, heldur slær föstu, að í þessu sé fólgin þjóðnýtingarstefna. En svo kemur hv. 1. flm. þessa máls, form. Sjálfstfl., nokkrum dögum síðar hér fram á Alþingi og segir, að verið sé að stórauka ríkissjóðsútgjöldin til stuðnings við atvinnuvegina, — m. ö. o., að það verði að ganga ennþá lengra í þjóðnýtingunni, sem frsm. flokksins við 1. umr. fjárl. deildi á núv. stjórn og flokka fyrir að hafa framkvæmt. Að ég ekki tali um, að form. flokksins bætti við, að um tekjur þurfi ekki að hugsa, þær komi af sjálfu sér, bara ef gjöldin eru hækkuð nógu mikið. því að annað er ekki hægt að lesa úr þeim ummælum, sem hv. þm. G.-K. hafði um þetta mál. Hann segir, að ef þess sé aðelns gætt, að greiðslurnar fari til þess að styrkja atvinnuvegina, þá þurfi engar áhyggjur að hafa, peningarnir skili sér aftur. En hvað nú er orðið af þjóðnýtingarkenningunni, það er mér ekki kunnugt.
Að lokum vil ég minnast á þá staðhæfingu, sem sett var hér fram á laugardaginn og í gær, að núv. stjórnarflokkar hefðu nær því einskorðað sig við auknar atvinnubætur, sem væru óarðbærar, og að þrengja innflutningshöftin. En engin rök hafa komið fram um þetta síðan á laugardag. Ég hefi sýnt fram á það í umr., að við höfum þvert á móti reynt að auka framlög til atvinnuveganna sjálfra. Ennfremur, að útgjöldin til atvinnubóta hafa verið notuð til að draga úr hinum mestu vandræðum meðan væri verið að stuðla að auknum framkvæmdum í sjálfum atvinnuvegunum. Og reynsla okkar undanfarin þrjú ár sýnir það ákaflega vel, hve mikil villukenning þessi nýja kenning hv. þm. G.-K. er undir núv. kringumstæðum, að með auknum útgjöldum komi alltaf auknar tekjur í ríkissjóð. Því að þótt ráðstafanir núv. stjórnarflokka síðustu árin hafi óneltanlega orðið að miklu gagni fyrir framleiðsluna og aukið hana í mörgum greinum, þá hefir ekki veitt af þeirri aukningu beinlínis til að vega upp það hrun, sem verið hefir í eidri atvinnugreinum, eins og t. d. saltfisksútgerðinni, og í innflutningi okkar til landsins, sem hefir skert mjög tolltekjurnar. Þetta sýnir ennþá betur en kannske nokkuð annað af því, sem ég hefi tekið fram, hversu mikil villukenning það er hjá hv. þm. G.- K., að það þurfi ekkert annað en auka útgjöld ríkissjóðs til atvinnuveganna, þá skili sér tekjur á móti.