20.10.1937
Neðri deild: 6. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í C-deild Alþingistíðinda. (1765)
15. mál, hraðfrystihús fyrir fisk
Flm. (Thor Thors):
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, var, eins og flestum hv. þm. er kunnugt, flutt á síðasta þingi. Það fékk þá allgóðar undirtektir hjá öllum flokkum þingsins, eins og ég skal síðar víkja að.
Þetta frv. byggist á því, að brýn nauðsyn er á að breyta til um verkun sjávaraflans. Það hefir oft verið bent á þessa nauðsyn, bæði utan þings og innan, svo það er í rauninni óþarfi að fara mörgum orðum um hana. En ef við rekjum ástandið í þeim löndum, sem við höfum aðallega selt saltfisksframleiðslu okkar hingað til, og athugum, hvaða kjör við eigum við að búa nú á þessum stöðum, þá er greinilegt, að það má einskis láta ófreistað til að breyta til á þessu sviði. Við áttum þess einu sinni kost að selja á Spáni yfir 36 þús. smálestir saltfiskjar, og fengum það greitt í frjálsum gjaldeyri. En nú er svo komið, að sá markaður má heita lokaður. Það var svo komið áður en borgarastyrjöldin skall á, að við áttum þess kost að selja þar 6000 smálestir, og urðum að taka spánskar vörur fyrir þennan innflutning. Við það, að borgarastyrjöldin skall á, raskaðist eðlilega verzlunarsambandið við þessa þjóð. Og þó að við höfum undanfarin ár selt smáslatta til þessarar þjóðar, þá má segja, að allt sé í óvissu um það, hvort nokkur innflutningur tekst til þessa lands á næstunni. Og þó svo fari, sem við verðum að vona, að þessum hildarleik verði brátt lokið, þá er það víst, að ástand þjóðarinnar verður þannig, að það hlýtur að verða mjög erfitt fyrir hana að flytja inn þessa matvöru, og sérstaklega er ástæða til að ætla, að hún hafi ekki ráð á að greiða hana í frjálsum gjaldeyri.
Ástandið á Ítalíu er þannig, að þar sem við seldum þar áður yfir 23 þús. smál., og fengum það goldið í frjálsum gjaldeyri, þá er svo komið, að við getum ekkert selt þangað nema taka ítalskar vörur í staðinn. Það er álitamál, hversu hagkvæm þessi viðskipti eru okkur, en þau eru nauðsynleg meðan svo er ástatt, að saltfisksframleiðslan er sú sama, sem verið hefir undanfarin ár. Eina landið í Suður-Evrópu, sem goldið hefir saltfiskinn með frjálsum gjaldeyri, er Portugal. Við höfum átt þar góðan markað og vaxandi, og íslenzk framleiðsla nýtur þar hins mesta álits. En það er sá galli á gjöf Njarðar, að þar verður að selja ódýrt til þess að fá innflutt. Innflutningurinn er þar undir umsjón sérstakrar nefndar, sem er skipuð af ríkisstjórninni þar í landi. Þessi nefnd ræður innflutningsmagninu og einnig verðlaginu. Okkur er því að verulegu leyti skammtað það verð, sem við fáum í þessu eina frjálsa markaðslandi í Suður-Evrópu. Það hefir nokkuð bætt úr á síðustu árum, að við höfum fengið stöðugt vaxandi markaði í SuðurAmeríku og á Cuba. Það er svo komið, að við seljum þangað nokkur þúsund smálestir árlega. En þetta getur samt engan veginn vegið upp á móti því markaðstjóni, sem við höfum beðið í Suður-Evrópu.
Allt þetta sýnir, að það er mjög vafasamt, í sæmilegu árferði og þegar um sæmilegan afla er að ræða, hvort tekst að koma saltfisksframleiðslunni í verð yfirleitt, og jafnvel þó hægt væri að selja hana, þá er það þó vitað, að með því að breyta til um framleiðsluhætti, þá getum við átt þess kost að fá meira verð fyrir afurðirnar og átt betri og meiri markaðsstaði en hingað til hefir verið. Saltfiskurinn hefir verið seldur til hins fátækari hluta íbúanna í Suður-Evrópu, en með því að selja fiskinn nýjan eða hraðfrystan náum við til hinna efnaðri neytenda, sem geta goldið fiskinn hærra verði. En þegar á að breyta til um framleiðslu, þá verður fyrst á vegi okkar að hraðfrysta fiskinn. Til þess að það sé unnt verður að byggja hraðfrystihús, og það hefir þegar verið gert talsvert að því.
Þetta frv. miðar að því, að ríkið skuli leggja fram ¼ sem óafturkræfan styrk til þessara bygginga, og jafnframt ábyrgjast lán, svo unnt sé að koma þessum fyrirtækjum upp. Við teljum það réttmætt, að þessi ríkisstyrkur sé veittur og óafturkræfur. Við teljum þetta sanngjarnt með tilliti til þess, að þegar nauðsyn var á því að hraðfrysta kjöt til útflutnings, þá var samsvarandi styrkur veittur til byggingar kælihúsa í þessu skyni. Það verður að teljast sanngjarnt, að sjávarútvegurinn njóti sama stuðnings nú, þegar breyta þarf um framleiðsluhætti, eins og landbúnaðurinn hefir áður notið hjá Alþ. Það hafa þegar verið reist frystihús nokkuð viða um landið, og hafa þessi frystihús verið styrkt úr fiskveiðasjóði, en hann er undir umsjón fiskimálanefndar. Það er þegar komið frystihús í Keflavík, sem hefir fengið 10 þús. kr. Þar er líka komið annað frystihús, sem enn hefir ekki fengið styrk hjá n. Á Akranesi hefir verið byggt frystihús, sem hefir fengið 10 þús. kr. styrk, á Bíldudal, sem hefir fengið 17 þús. kr. styrk, á Ísafirði, sem fengið hefir 30 þús. kr. styrk, á Húsavík, sem fengið hefir 10 þús. kr. styrk, á Seyðisfirði, sem fengið hefir 5 þús. kr. styrk, og á Norðfirði, sem fengið hefir 25 þús. kr. styrk. Svo hefir verið lofað að veita 10 þús. kr. styrk til að koma upp húsi á Þingeyri, og einnig hefir verið lofað 10 þús. kr. styrk til að koma upp húsi á Þórshöfn. Þetta er að vísu allt veitt sem lán, en það má gera ráð fyrir, að þeim verði breytt í styrki, þegar athugað er, að allir þingflokkar virtust vera sammála um, að rétt væri, að ríkisvaldið veitti nokkurn styrk til þessara fyrirtækja. Þó að frystihús séu nokkuð víða og von sé á fleirum, þá er takmarkinu samt ekki náð, því húsin verða að vera mjög víða, svo að útgerðarmönnum, einkum hinum smærri, notist að miðunum, sem nærri eru bústöðum þeirra. Ég vil t. d. benda á einn stað, sem ekki hefir fengið neinn styrk ennþá til að koma upp hraðfrystihúsi, enda þótt mjög mikill áhugi sé hjá héraðsmönnum fyrir því. Þessi staður er Ólafsvík. Það er vitað, að út af Ólafsvík eru einhver auðugustu mið landsins af kola og flatfiski yfirleitt, en það er sá verðmætasti fiskur til hraðfrystingar. Einn lítill bátur frá Ólafsvík hefir stundað þessar veiðar í sumar og lagt aflann í Reykjavík inn hjá fiskimálanefnd. og fengið meira en 20 þús. kr. greiðslu fyrir hann. Þessi bátur hefir orðið að fara 10 ferðir til Rvíkur, og hefir það kostað hann í ísnotkun 600 kr., og olíunotkun í þessum ferðum hefir kostað um 1200 kr. Þetta hefir valdið veiðitjóni fyrir þennan litla bát, sem eftir áliti sjómannanna hefir numið jafnmiklu og báturinn hefir getað aflað, eða allt að 20 þús. kr. Allir hv. þm. sjá, hversu mikið tjón það er fyrir fátæka útvegsmenn að þurfa að sækja alla þessa leið til þess að koma aflanum í peninga. Þetta tjón verður enn ljósara, þegar það er aðgætt, að á þessum stað eru 8 bátar, sem gætu stundað þessar veiðar, ef hraðfrystihús væri á staðnum. Ef allir þessir bátar hefðu fengið sama afla og þessi eini bátur, eða fyrir 20 þús. kr. hver, þá hafa það verið um 160 þús. kr., sem þetta fátæka sjávarþorp hefir tapað við að hafa ekki frystihús á staðnum.
Á Sandi, sem er næsta veiðistöð, eru 20 bátar, sem gætu stundað þessar veiðar, ef hraðfrystihús væri við hendina, en þeir hafa ekki getað það vegna þess, að þeir eru ekki nógu stórir til þess að geta siglt með aflann til Rvíkur. Ef þessir bátar á Sandi hefðu aflað samsvarandi og þessi eini bátur úr Ólafsvík, eða fyrir 20 þús. kr. hver, þá þýðir það tjón fyrir sjávarþorpið, sem nemur 400 þús. kr. Það virðist því vera nægilegur grundvöllur fyrir að koma upp frystihúsi á þessum stað.
Ég tek þetta aðeins sem dæmi, en það kann að vera viðar á landinu eins ástatt, að útvegsmenn eigi þess ekki kost að hagnýta sér aflamiðin vegna þess, að frystihús vantar svo nálægt, að hægt sé að setja aflann á land. Nú er svo komið, að frystihúsum hefir verið komið það víða á fót um landið, að það fer að verða nauðsyn á því að sjá betur fyrir útflutningi fiskjarins en til þessa hefir verið gert. Má svo heita að það sé svo komið nú, að erfiðleikar séu á því að fá skipsrúm fyrir þennan útflutning, enda þótt í skipum Eimskipafél. séu kælirúm, sem taka 1250 smál.
Það er því næsta sporið, sem þarf að stíga í þessum málum, að koma upp kæliskipi, sem sæi um flutning þessa fiskjar frá landinu. Hitt sporið, sem verður að stíga, er að hefja eða öllu heldur halda áfram markaðsleitinni erlendis fyrir þessa vörutegund, því það fer varla hjá því, að frysti fiskurinn verði að taka við af saltfisksframleiðslunni á næstunni að verulegu leyti.
Þegar þetta mál var flutt á síðasta þingi, var því vel tekið af sjútvn. Nd., sem fjallaði um málið og skilaði sameiginlegu nál. um það. Sjálfstæðismenn vildu samþ. frv., en voru hinsvegar reiðubúnir til að taka brtt. Alþflmenn sögðust hafa flutt frv. um sama efni, þ. e. frv. um viðreisn sjávarútvegsins, og létu í ljós, að þeir myndu flytja brtt. við þetta frv., ef þeirra frv. næði ekki fram að ganga. Og Framsfl. taldi sig ekki hafa tekið ákveðna afstöðu og vildi bíða átekta með málið. Síðar á þinginu flutti svo hv. þm. Barð. till. þess efnis, að ¼ af stofukostnaði yrði greiddur úr ríkissjóði.
Þessar undirtektir sýna, að það virðist vera ríkur vilji hjá öllum flokkum, eða a. m. k. hjá öllum þremur stærstu þingflokkunum, til þess að hrinda þessum málum rösklega í framkvæmd. Og vegna þessarar framkomu á síðasta þingi leyfi ég mér að vænta þess, að þetta frv. fái nú eins góðar undirtektir og nái fram að ganga.
Ég vel svo mælast til, að málinu verði vísað til sjútvn.