20.10.1937
Neðri deild: 6. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í C-deild Alþingistíðinda. (1768)

15. mál, hraðfrystihús fyrir fisk

*Héðinn Valdimarsson:

Það eru aðeins tvær aths., sem ég þarf að gera við ræðu hv. þm. Snæf. Hann sagði, að það þyrfti að rannsaka, hvar staðhættir væru heppilegastir fyrir frystihús. Ég veit ekki, hvort á að kalla þetta rannsókn, en þetta er hægt að gera hér á staðnum. Fyrst og fremst má ekki vera mjög langt í flatfisk, og í öðru lagi þarf að vera brúkleg lending og höfn. Og það er vitað, að menn óska á ýmsum stöðum eftir að hafa frystihús, þar sem það getur ekki komið til greina.

Hitt atriðið er það, að eftir því sem málið hefir legið fyrir undanfarið, þá er þörfin fyrir styrkinn allmismunandi. Ef eingöngu er um hraðfrystitæki að ræða til húsa, sem þegar eru starfandi, mun kostnaðurinn sennilega ekki fara mikið yfir 20 þús. kr. Sé hinsvegar um það að ræða að reisa ný hús, þarf vitanlega miklu meira fjármagn, og þar af leiðir, að þörfin fyrir styrk verður brýnni.