06.12.1937
Efri deild: 43. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í C-deild Alþingistíðinda. (1790)

8. mál, eftirlit með skipum

Páll Zóphóníasson:

Hv. þm. Vestm. er hér með till. til rökst. dagskrár, sem mér skilst hann byggi á því, að málið sé ekki nægilega undirbúið. Hann las hér við 1. umr. málsins samþykkt, sem gerð hafði verið á fyrsta þingi farmannasambands Íslands, þar sem í fyrsta lið þessarar samþykktar var gert ráð fyrir, að félagið léti undirbúa og flytja á þessu þingi frv. um eftirlit með skipum. Ég vil nú spyrja hv. þm., hvaða hv. þm. hefir verið beðinn að flytja slíkt frv. fyrir félagið, úr því það hefir ekki komið til sjútvn., eða hvort stjórn félagsins hefir daufheyrzt við samþykkt þessari og engar till. gert.

Hv. 2. þm. S.-M. taldi, að lítið mundi græðast á því að fresta málinu og að við mundum verða litlu nær. En hvað er þetta litla, sem hann hyggur, að hafast mundi upp úr því að bíða? Mér skilst, að það sé þó eitthvað. Hv. sessunautur minn vill samþ. frv. strax og ekki bíða eftir neinum frekari upplýsingum. Mér finnst það koma úr hörðustu átt frá honum, þar sem mér virðist hann vanta ýmsar nauðsynlegar upplýsingar í málinu, og þar sem málið á að falla undir vernd og eftirlit hans ráðh., sem bæði hann og ég treystum til hins bezta til að afla hinna ýtrustu gagna, jafnhliða því, að þá kæmi einnig til álita frv. farmannasambandsins, þá finnst mér, að ekki geti hjá því farið, að það yrði málinu til heilla að biða með afgreiðslu þess til næsta þings. Að þessu öllu athuguðu finnst mér rétt að samþ. dagskrártill. hv. þm. Vestm.