19.10.1937
Neðri deild: 5. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í C-deild Alþingistíðinda. (1804)

7. mál, alþýðutryggingar

*Flm. (Gísli Sveinsson):

Herra forseti! Ég þarf ekki að fjölyrða mikið á þessu stigi málsins um þau einstöku atriði, sem hæstv. atvmrh. kom inn á. Það eru sumpart þau sömu atriði og á síðasta þingi, en ég hélt, að búið væri að leiðrétta, að sumt af því, sem hann nú endurtekur, er ekki tímabært, með því að sumpart hefir það ekki stoð í lögum og að sumu leyti hefir það ekki verið framkvæmt, hvorki að því er snertir ellistyrktarákvæðin né heldur síðasta kafla alþýðutrygginganna, atvinnuleysistrygginguna. Hæstv. ráðh. talaði um, eins og frv. ber með sér, að það væri ekki aðeins ætlazt til þess, að gjaldskyldualdurinn yrði lækkaður, heldur yrði styrkaldurinn líka rýmkaður, þannig að menn gætu fengið styrk áður en þeir væru komnir á grafarbakkann. Það má segja, að þetta sé atriði, sem vel gæti haft áhrif á afkomu lífeyrissjóðs og ellistyrktarsjóðanna, en það er mikill misskilningur, ef hæstv. atvmrh. álítur, að við, sem berum þetta frv. fram, séum einir um þetta. Það hafa komið fram till. og verið framkvæmdar með vilja allra flokka, og er það atriði, sem vitanlega gerir það að verkum, að gjaldmátinn breytist. Það er sem sé áreiðanlegt, að í frv., sem lágu fyrir síðasta þingi frá hinum stjórnmálaflokkunum, voru ákvæði um það, að bætur hækkuðu annarsvegar, og hinsvegar var það tekið fram, að úthlutað skyldi úr lífeyrissjóði allmikilli fúlgu, sem sé vöxtum ellistyrktarsjóðanna, sem vitanlega gerði það að verkum, að einhversstaðar að yrði að koma meira fé til hvorstveggja en nú er ætlað af hálfu þess opinbera til sjóðsins. En frv., sem lágu fyrir síðasta þingi, bæði frá Alþfl. og Framsfl., fóru einmitt fram á að rýmka bótaskylduna og bótagreiðsluna hjá slysatryggingasjóðnum, þar sem foreldrar áttu að fá viðtækari réttindi en þeir hafa samkv. þessum l., svipuð réttindi og þeir höfðu ettir eldri l., og það eykur vitanlega útborgun hjá slysatryggingasjóðnum. Og eins var það með vexti ellistyrktarsjóðanna, að í raun og veru ætluðust allir flokkar til þess — og mátti nú heyra það á orðum hæstv. ráðh. — að úthlutun vaxtanna færi hér eftir væntanlega fram óskorað í héruðunum, en samkv. núgildandi l. telur tryggingarstjórnin tilfalina vesti ellistyrktarsjóðanna með í sínum framlögum. Það gefur að skilja, að í því falli þyrfti að sjá lífeyrissjóði fyrir tekjum annarsstaðar frí en nú er gert ráð fyrir; m. ö. o., hæstv. ráðh. og stjórnarflokkarnir fallast á að breyta þessu þannig, að gjaldskyldan og útgjöldin verði með öðrum hætti, væntanlega meir af hálfu lífeyrissjóðs en verið hefir, án þess að aukið verði gjaldið, sem til hans rennur. Eins og kunnugt er, ríkir almenn óánægja um öll héruð út af þessu gjaldi, sem nú er komið á hvert heimili og hverja manneskju, sem komin er af blautu barnsbeini, og verður að greiða það fram á elliár. Fyrr eða síðar verður að lækka þessi gjöld, og það enda þótt það hefði þau áhrif, að minna yrði veitt úr lífeyrissjóði og ellitryggingin yrði lægri en hún er áætluð samkv. þeim ákvæðum, sem sett hafa verið. Nú er þess að geta, að nákvæm áætlun um það, hvernig greiðslu úr ellitryggingarsjóðnum verður háttað, liggur ekki fyrir hendi, og hefir aldrei legið fyrir, svo að það verður ekki hægt að segja um, hvernig þetta kemur út, fyrr en yfirlit um þetta er fullbúið, enda er tryggingunni ekki ætlað að taka til starfa fyrr en eftir mörg ár. Á ríkinu hvílir sú skylda að veita nægilegt fé til styrktar þessu, það sem tekinn hefir verið frá sveitunum stofn til frjálsrar úthlutunar á þessu tímabili, sem þær fá hverfandi litið á móti úr sjóðum tryggingarinnar.

Það er ekki fyrr en eftir 20–30 ár, sem tryggingin kemur til fullra framkvæmda, en á meðan yrði of fjár plokkað út úr almenningi. Þetta var ekki svo áður, og þó að það sé viðurkennt. að sú fúlga væri ekki há, sem ellistyrktarsjóðirnir veittu, þá var hún vel þegin, og þá heyrðust ekki um héruðin neinar raddir um breyt. á þessu. Þær raddir eru meira og minna komnar annarsstaðar að en úr héruðunum. Þær hafa ef til vill eitthvað til síns máls, en hóf er bezt í hverjum máta. Það fékkst ekki í upphafi að athuga málið. Því var neitað á Alþingi, að málið fengi að biða til næsta þings, til þess að hægt væri að leggja málið fyrir héruðin. Ofsinn var svo mikill af hálfu Alþfl., eins og við erum orðnir vanir á síðasta kjörtímabili. Framsfl. varð að lúta í lægra haldi, þrátt fyrir það, þótt hann ætti héruðin að baki sér. Þessi öld er nú að renna til víðar, og ég býst ekki við, að á þessu kjörtímabili þurfi hnefinn í borðið að hræða framsóknarmenn, sem sumir komust inn í Alþingi með nokkrum styrk, frá því að gæta hagsmuna héraðanna. Tillag ríkissjóðs til ellistyrktarsjóðanna gömlu var að vísu mjög lágt, en í raun og veru kvörtuðu menn ekki yfir því og þótti, sem sú fúlga, er kom til úthlutunar væri tiltölulega rífleg, og hún var ávallt vel þegin. En það er engin goðgá að ætlast til þess, þegar það opinbera tekur á sínar herðar slíkt bákn, að þá verði það að mestu leyti borið uppi af hinu opinbera, en það er ekki hægt að hugsa sér, að það yrði borið uppi með nefskatti um land allt, því að ríkið hefir öll tök á því að afla tekna til þess að geta staðið undir þeim gjöldum, sem ábyrgir flokkar vilja að sé. Hæstv. ráðh. gat um, hvað það hefði verið, sem aukningin næmi nú á síðasta ári móts við fyrri ára úthlutun, annarsvegar úr ellitryggingarsjóðnum nú og hinsvegar áður úr ellistyrktarsjóðunum. Á því sjá menn, að munurinn er hverfandi lítill, að ég ekki segi hlægilega lítill, þegar þess er gætt, hvernig fjár er aflað nú í ellitryggingarsjóð með stórum tillögum af hálfu þess opinbera, með þungbærum sköttum á öllum almenningi, með miklum tillögum úr sveitarsjóðum og með nýjum tekjuskatti. Og svo er úr þessu gerður mikill sjóður, og úr honum eru ekki veittar nema 400 þús. kr. á síðasta ári á móti því, að úr ellistyrktarsjóðunum gömlu var veitt á 3. hundr. þús. kr. með þessu litla gjaldi. Þetta er ekki til að hrósa sér af. En hitt er ekki umtalsvert, þó að það hafi verið plokkað á móti úr aðþrengdum sveitarsjóðum, sem hingað til hefir verið neitað um að afla tekjustofna, eins og raun gefur vitni um. Ég held, að hæstv. ráðh. ætti að finna sér eitthvað annað og verulegra til þess að hrósa sér af en þetta.

Hæstv. ráðh. gat um það, að sér hefði fundizt of rík tilhneiging hjá héruðunum til að nota þennan nýja styrk til þess að losa fólkið við að komast á sveit, og hann vildi gefa í skyn, eins og reyndar var meir fullyrt á síðasta þingi, þegar rætt var hér um ráð til að komast að bráðabirgðaniðurstöðu um viðkvæmt mál, slysabætur og vexti af ellistyrktarsjóðunum, að það hefði verið misbeiting, hvernig sveitirnar hefðu ætlað sér að nota ellistyrkian til þess að losa fólk við að fara á sveit. Hæstv. ráðh. hlýtur að vita, að sjálf alþýðutryggingalögin gefa til kynna, að svo eigi þetta að vera, því að 81. gr. 2. málsgr. segir, að þeir, sem séu á sveit, eigi líka að koma til greina. 2. mgr. 81. gr. hljóðar svo (með leyfi hæstv. forseta):

„Til greina við úthlutun koma öll gamalmenni sveitarinnar, sem náð hafa hinu tilskilda aldursmarki, og jafnt þau, sem áður hafa þegið sveitarstyrk, sem önnur.“

Að hæstv. atvmrh. hafi missézt í þessu, er ákaflega einkennilegt, eða ef hann er svo þrunginn af tilhneigingu til að verja allt, sem hann og hans flokksmenn hafa gert, ætti hæstv. ráðh. þó að gæta þess að rasa ekki um sjálf ákvæði þessara laga. Þetta er ofmælt hjá hæstv. ráðh., því að hann getur á engan hátt hafa haft tök á að rannsaka í hverju tilfelli, hvort þetta fé hafi verið meira eða minna misnotað í sveitunum. Engar skýrslur liggja fyrir, sem á nokkurn hátt geta réttlætt þessar fullyrðingar hæstv. ráðh. Ég fullyrði hinsvegar, að þetta fé hefir ekki verið notað til að létta fátækraframfærið í héruðunum, nema að því marki, sem l. sjálf heimila. Og vitanlega var, um það leyti er l. voru sett, hrópað upp með það af Alþfl. út um allt land, að löggjöf þessari fylgdi sá höfuðkostur, að með henni ætti að létta af sveitunum svo að segja öllum fátækrakostnaði. Ef svo á að banna sveitarfélögunum að leggja sinn hlut þessa fjár til þess fólks, sem mest þarf þess í sveitunum, hver verður þá niðurstaðan? Þá er löggjafinn kominn í mótsögn við tilgang sinn, ef tilgangurinn hefir verið sá, sem var básúnaður út um landið þvert og endilangt.

Þá taldi hæstv. ráðh., að það væri í sjálfu sér að því er virtist ekki óeðlilegt að hremma líka sjóði einstakra stétta, sem þær eru búnar að safna undan blóðugum nöglum sér, til framfæris sér í ellinni. Það verður ekki almennt sagt um embættis- og starfsmannastétt þessa lands, að hún baði svo í rósum, að rétt sé að taka þá fúlgu, sem hún hefir safnað í lífeyrissjóð sinn, hernámi til annara nota en þeirra, sem stéttin ætlaðist til með sjóðstofnun þessari. Hæstv. ráðh. taldi, að það hvíldu svo miklar skyldur á þessum sjóðum, að þegar búið væri að útleysa skyldugreiðslur þeirra, þá væri lítið af tekjum þeirra eftir. Ég verð að segja það, að hæstv. ráðh. getur ekki hafa reiknað þetta út. Menn vita nú, hverjir eru embættismenn í landinu; hvað þeir eru margir. Glöggir menn, sem hafa athugað það, segja, að meginfúlga tekna lífeyrissjóðanna verði eftir, þegar skyldugreiðslur þeirra hafa verið útieystar, m. a. af því, að embættismenn þessa lands hafa, þrátt fyrir sultarlaun, reynt að þjóna embættum sínum fram í andlátið, eða þangað til þeir hafa verið komnir að fótum fram. Það eru eftir útreikningi kunnáttumanna engar líkur til, að meginhluta þessara sjóða verði varið til að borga lífeyri þessara uppgjafa embættismanna. Það lag, sem haft er á þessu nú, tel ég algerlega óviðeigandi, og ætti að færa þetta í betra horf.

Þá skal ég loks með örfáum orðum drepa á það, sem hæstv. atvmrh. gat um, þ. e. a. s. l. um atvinnuleysistryggingar. Þar hefi ég fyrir mér athafnir hæstv. ráðh. sjálfs. Því að hann, hæstv. atvmrh., með því að geta hvorki né vilja framkvæma neitt af þeim kafla tryggingarl., hefir játað, að ákvæðin um atvinnuleysistryggingar séu ótímabær.