22.10.1937
Neðri deild: 8. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í C-deild Alþingistíðinda. (1819)
16. mál, vinnudeilur
*Héðinn Valdimarsson:
Þetta frv. er gamall draugur. Ég man ekki. hvað það hefir oft verið borið fram og aldrei náð samþykki. Og það er áframhald þeirrar tilraunar, sem er gerð af hálfu Sjálfstfl. og fyrirrennara hans, Íhaldsfl., til að setja takmarkanir á rétt verkalýðssamtakanna í landinu. Því hefir verið svarað áður af alþýðuflokksmönnum á svipaðan hátt eins og hv. 5. þm. Reykv. talaði. Og ég veit, að verkalýðsfélögin í landinu eru þeirrar skoðunar, að ekki sé hægt að setja löggjöf um þetta mál á móti þeirra vilja. Þessi skoðun hefir oft komið fram og er margyfirlýst af hverju einasta verkalýðsfélagi á landinu. Og ég hefi þá trú, að Alþingi muni ekki færast í fang að setja löggjöf um mál, sem varðar svo mikið öll lífskjör svona 20–30 þús. manna, ef ekki fleiri, beint á móti þeirra vilja. meðan aftur á móti aðrar stéttir þjóðfélagsins fá meiri og meiri forráð um sín mál. Ég vil benda sérstaklega á landbúnaðinn, sem á síðustu árum hefir fengið forráðin mjög til Búnaðarfél. og annars félagsskapar bænda. Að mörgu leyti er sama hægt að segja um samvinnufélög bænda. Það hafa komið fram af hálfu þess flokks, sem ber fram þetta frv. — sérstaklega áður — ýmsar till. um skerðingu á rétti bænda, og því hefir verið svarað af hálfu samvinnufélaganna og fulltrúa þeirra á þann hátt, að samvinnubændur álitu, að það ætti aðeins að gera þá löggjöf um þau mál, sem þeir álitu sér vera réttláta og hagkvæma. Og það var gert með samvinnulögunum og þeirri viðbót, sem síðar var gerð.
Ég hefi þá trú, að eins og Alþingi er nú skipað, þar sem þessi flokkur er í minni hl., að honum muni ekki takast að koma fram vilja sínum í þessu máli frekar en áður. Honum mun ekki takast betur með það en tilraunirnar með ríkislögreglufrumvarp hér á árunum.
Ég mun ekki fara út í einstök atriði frv. Fulltrúar Alþfl. hafa áður lýst yfir afstöðu sinni til þeirra, og stendur hún óbreytt. Ég hefi áður, einmitt í sambandi við þetta mál, talað um þann aðstöðumun í þjóðfélaginn, sem er á atvinnurekendum og verkamönnum. Það er aðeins í orði, sem þessar tvær stéttir hafa sama rétt. Það má segja, að á uppboði hafi allir viðstaddir sama rétt til að bjóða í og kaupa þá muni, sem á boðstólum eru. En þeir einir geta neytt þess réttar, sem hafa peninga í vösunum. Þannig er það viðar. Þó að atvinnurekandi og verkamaður eigi að hafa jafnan rétt í vinnudeilum, þá verður reyndin öll önnur, eins og hv. 5. þm. Reykv. tók réttilega fram.
Annars furða ég mig á því, að hv. flm. skuli enn koma með þetta frv. sitt inn í þingið. Þeir vita það vel, að það er unnið að málinu af milliþinganefnd. Sú nefnd hafði ekki lokið störfum á síðastl. vori, en mun nú langt komin í starfi sínu.
Verkalýðssamtökin munu aldrei telja það réttmæt lög, sem sett væru um þetta efni gegn vilja þeirra. En verkalýðssamtökin gætu hugsað sér að láta skipa þessum málum með lögum, en þau yrðu að vera á þá lund, að réttur verkalýðsfélaganna yrði meiri og tryggðari en nú er, og aðstaða verkalýðsins í þjóðfélaginu betri. Þar mættu einnig vera ákvæði, sem takmörkuðu rétt atvinnurekenda til að stöðva atvinnutækin, hvenær sem þeim sýnist, og aðrar þær kvaðir á félagsskap atvinnurekenda, sem miðuðu að því að minnka aðstöðumuninn fyrir atvinnurekendur og verkamenn. Á þessum grundvelli gætu verkalýðssamtökin athugað, hvort ekki væri rétt að setja löggjöf um þessi máli En hitt kemur ekki til mála, að setja löggjöf, þar sem verkfallsrétturinn er skertur og á annan hátt gengið á hluta verkalýðssamtakanna.