25.10.1937
Neðri deild: 10. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í C-deild Alþingistíðinda. (1842)
22. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Flm. (Ólafur Thors):
Ég get tekið undir með hv. þm. Ísaf. um það, að lítið þýði yfirleitt ræða frv. okkar sjálfstæðismanna hér í hv. þd., en ég vil í því sambandi skjóta því fram, hvort ekki væri einlægast að fresta hreinlega þinginu meðan stendur á þessum samningum milli stjórnarflokkanna, með því frv. þau, sem tekin eru fyrir í þessari hv. d., eru hvort sem er öll frá okkur sjálfstæðismönnum.