25.10.1937
Neðri deild: 10. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í C-deild Alþingistíðinda. (1867)

38. mál, vigt á síld

*Ólafur Thors:

Ég ætla ekki að fara að blanda stjórn síldarmálanna hér á landi inn í þessar umr., þó að hún hafi verið mikil hneykslunarhella öllum, sem um það mál hafa hugsað.

En ég verð að láta í ljós óánægju mína yfir þessu svari, ef svar skyldi kalla, sem hv. 1. flm. frv. gaf við fyrirspurnum mínum.

Eins og vant er, er erfitt að deila við þennan hv. þm. og ræða við hann á þinglegum grundvelli, því að hann er allur í útúrsnúningum, aukaatriðum og illkvittni. Hann gerði það að stóru atriði, að ég héldi, að síldin væri feitust á kviðnum eins og sósíalistaburgeisarnir. Mér hefir aldrei dottið það í hug. Ég þekki þessi mál vel og var farinn að fást við síldarútgerð löngu áður en hv. flm. var falið nokkuð slíkt. Ég hefi nú starfað að þessum málum í 25 ár og þori því vel að tala við hann um síld.

Það var útúrsnúningur, þegar hann ætlaði að fræða mig á því, að síldarskipin væru 2–3 daga að fylla sig, og því væri öll síldin 2–3 daga gömul, eins og skipin fái allan sinn afla um leið og þau koma á mið og liggi svo hinn tímann til þess að síldin verði hæfilega gömul. Ég veit, að 2–3 daga gömul síld fer ekki illa í bræðslu, en ég veit líka, að síldin getur verið orðin það gömul, að hún sé ekki aðeins verri, heldur með öllu ónýt. Þetta er því ekkert nema útúrsnúningur hjá hv. þm.

Hitt er aðalatriðið, að ég spurði hv. þm. annarsvegar að því, hvort hann treysti sér að neita, að þessi sjálfvirka losun hefði orðið sjómönnum til mikilla þæginda og útgerðarmönnum og sjómönnum til hagnaðar, og hvort hægt væri að breyta þessum sjálfvirku tækjum frá mælingu til vigtar, og hvort hægt væri að fá ný losunartæki, sem losuðu með sama hraða, þar sem væri vegið í staðinn fyrir að mæla. Undan að svara þessu hefir hv. þm. skorazt. Það ætti þó að vera lágmarkskrafa til þess manns, sem gerist 1. flm. og hnýtir aftan í sig öðrum sér ófróðari mönnum. að hann gefi upplýsingar um, hvort hægt sé að fá þessi tæki, sem hann ætlast til, að keypt verði í staðinn fyrir þau tæki, sem hafa öllum reynzt til blessunar. Það minnsta, sem hægt er að krefjast af þessum hv. þm., er það, að hann segi, hvar hægt sé að fá þessi tæki, sem hann er að tala um. Aðalatriði málsins er þetta: Á að banna útgerðarmönnunum og sjómönnunum að nota sjálfvirku tækin? Og við þeirri spurningu hefi ég ekkert svar fengið. Ég skora á hv. þm. Ísaf. að svara ekki tómum skætingi og persónulegri illkvitni, en segja mér í þess stað, hvar hægt sé að fá þessi tæki, sem hann er að tala um, svo að ég geti fengið mér einhverjar upplýsingar um kostnað og annað þeim viðvíkjandi. Ég mun því ekki beina fleiri orðum til hv. flm. nú, en vona, að hann haldi sig við aðalefni málsins, en láti ekki tal sitt allt lenda í öðru.