27.10.1937
Neðri deild: 12. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í C-deild Alþingistíðinda. (1894)

47. mál, bókhald

Flm. (Skúli Guðmundsson):

Lög þau um verzlunarbækur, sem nú gilda, eru orðin aldarfjórðungsgömul og að ýmsu leyti orðin úrelt og ófullnægjandi, vegna þeirra miklu breytinga, sem orðið hafa á atvinnu- og viðskiptalífi þjóðarinnar. Þetta er ástæðan til þess, að ég ber hér fram frv. til l. um bókhald, sem í ýmsu er frábrugðið núgildandi h; t. d. verða fleiri bókhaldsskyldir en áður, ef frv. nær samþykki. Ennfremur er gert ráð fyrir tvöfaldri bókfærslu, en þó eru gerðar undantekningar, þannig að smáatvinnurekendur geta fengið leyfi fyrir ákveðinn tíma í senn til að komast hjá því að færa bækur sínar ettir reglum tvöfalds bókhalds. En yfirleitt er hægt að færa svo tvöfalt bókhald, að það hafi lítinn eða engan meiri kostnað í för með sér en það fyrirkomulag, sem nú er lögboðið. Og kostir þess yfir einfalt bókhald eru mjög miklir. Það er þýðingarmikið fyrir atvinnurekendur að geta hvenær sem er haft greinilegt yfirlit yfir atvinnurekstur sinn, en það er ekki hægt nema með glöggu bókhaldi.

Ég tel ekki þörf á því að útskýra frv. nánar, en vísa til grg. Legg ég svo til, að frv. verði vísað til 2. umr. og allshn.