15.11.1937
Neðri deild: 27. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í C-deild Alþingistíðinda. (1925)
64. mál, menntun kennara
*Bjarni Bjarnason:
Frv. þetta er flutt af menntmn., en þess er getið í grg. þess, að nefndarmenn hafi óbundnar hendur um einstök atriði þess.
Það er að vísu leiðinlegt að þurfa að afgr. málið þannig, að ekki hafi komið fram brtt. við það, sem fyrirhugaðar eru, þegar það er til 2. umr. En ég verð, úr því sem komið er, að láta þess getið, að fyrir því eru í raun og veru tvær ástæður. Önnur er sú, að ég, sem er einn af flm., hefi haft svo miklar annir nú undanfarið, og því hefi ég ekki haft tíma til að athuga frv. sem skyldi. Hin ástæðan er sú, að einn af nm., einmitt samflokksmaður minn, hv. 1. þm. Skagf. (PHann), hefir verið veikur og því ekki getað sinnt þingstörfum nú um tíma, eins og hv. þm. vita. vil ég því lýsa því yfir hér, að við munum koma með brtt. við þetta frv. fyrir 3. umr. vænti ég, að þær ástæður, sem ég tilfærði fyrir því, að brtt. eru ekki tilbúnar nú, verði teknar til greina, þó að það sé að vísu lakara að hafa þær ekki til nú við 2. umr.