09.11.1937
Neðri deild: 23. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í C-deild Alþingistíðinda. (1949)

71. mál, aðför

*Bergur Jónsson:

Þetta frv. er um breyt. á aðfararl., sem voru sett 1887 og eru einn af stærri liðunum í réttarfarslöggjöf okkar. Það hefir verið þannig með þessi l., að það hefir yfirleitt ekki þótt ástæða til að breyta þeim. vegna þess, að þau hafa verið og eru enn í samræmi við ákvæði, sem gilda í öllum menningarlöndum viðvíkjandi fjárnámi. Eins og lögfræðingum er a. m. k. kunnugt, þá eru þau líka notuð, ettir því sem við á, við lögtök. Það er ein gr. í l., sem hefir verið breytt á síðari tímum, og aðallega af þeim sömu ástæðum og hv. flm. telur sig hafa fyrir því að flytja þetta frv., að gera l. nokkuð mannúðlegri. 1932 var 27. gr. aðfararl. breytt þannig, að í stað þess að sá, sem aðför var gerð hjá, mátti ekki undanskilja nema 20 kr. virði, og ef um fjölskyldumenn væri að ræða 120 kr. í nauðsynlegustu áhöldum og hlutum frá fjárnámi, þá má eftir l. frá 1932, sem þetta frv. vill gera breyt. á, undanskilja allt að 500 kr. að virðingarverði, þar sem heimilisfaðir á í hlut, og svo 100 kr. fyrir hvert barn á skylduframfæri, en 100 kr. et maður hefir ekki heimili, og sama ákvæði, ef einhver börn eru honum áhangandi. En jafnframt því, að með l. frá 1932 var gerð breyt. á 27. gr. l. frá 1887, þá var ekki breytt því ákvæði, að rétturinn til þess að benda á muni — því hér er aðeins að ræða um rétt til þess að benda á muni, sem skuldunautar óska eftir, að ekki sé gert fjárnám í — næði ekki til skatta og gjalda, sem hér um ræðir.

Ég veit, að hv. 5. þm. Reykv. er ekki nægilega kunnugur erfiðleikunum á því fyrir embættismenn ríkis og bæja að ná inn opinberum gjöldum, til þess að hann sé dómbær um það án þess að fá upplýsingar frá þeim mönnum, sem meiri reynslu hafa í þessum málum. Það er fullkomin ástæða til að gera mun á því tvennu, hvort það eru einstaklingar, sem eiga skuldina, eða hið opinbera, því í flestum tilfellum ganga einstaklingar harðar eftir skuldum en hið opinbera, hvort sem það er ríkissjóður eða bæjar- og sveitarsjóðir, sem ganga þar eftir gjöldum, sem hverjum manni eftir getu sinni er skylt að greiða. Ég vil upplýsa hv. þm. um það, að eftir minni reynslu sem embættismaður fyrir það opinbera, eru það yfirleitt ekki þeir menn, sem erfitt eiga með að greiða gjöldin, sem láta vera að greiða þau. Þeir, sem aðallega reyna að koma sér undan því að greiða opinber gjöld, eru menn, sem hafa þesskonar aðstöðu, að það er vont að ná til þeirra, t. d. einhleypingar, sem fara staður stað og reyna að láta ekki skrifa sig neins staðar. Þannig er ástatt um fjölda lausafólks, og það er sérstökum erfiðleikum bundið fyrir ríki og bæi að innheimta gjöld hjá þessu fólki. Það er misskilningur hjá hv. 5. þm. Reykv., ef hann heldur, að hann sé að vinna fyrir mannúðina með því að ætla að gera þessum mönnum hægara fyrir með að koma sér undan því að borga opinber gjöld. Það er alger misskilningur hjá honum.

Það er líka misskilningur hjá honum, að svo miklu leyti, sem ég þekki til, að nokkurntíma sé gengið með harðneskju að fátæku fólki, sem getur ekki borgað opinber gjöld. Það er yfirleitt ekki gert hér á landi. Það er farið linar í sakirnar þar heldur en þegar einkaskuldeigendur eiga hlut að máli, menn, sem hafa hagsmuna að gæta í því að ná skuldunum.

Þess vegna tel ég, að það, sem þetta frv. hefir að geyma, sé í raun og veru alls ekki til neinna bóta frá því, sem nú er í löggjöfinni.

En ég verð að benda á, að það er einkennilegt hjá hv. flm., sem er talinn skýr maður, að hann virðist vera úti á þekju með það í grg. frv., hvaða breyt. hann er að fara fram á með frv. Í 27. gr. l. frá 1932 er fyrsti málsl. um það, að það megi undanþiggja fjárnámi rúm og sængurföt, sem nauðsynleg eru skuldunaut, konu hans og börnum, og svo íveruföt. Næstu 2 gr. eru svo um rétt manna til þess að benda á muni, allt að 500 kr., og 100 kr. fyrir hvert barn, sem ekki megi taka fjárnámi. Samkv. frv. er aðeins farið fram á að fella niður undanþáguheimild hins opinbera til þess að meina mönnum þessar undanþágur, sem gefnar eru í 2. og 3. málsgr. Undanþáguheimildin um íveruföt og sængurföt samkv. 1. málsgr. þessara l. stendur óhögguð eftir sem áður, en undanþágan í 27. gr. byggist á því, hvort um er að ræða skuldakröfur einstakra manna eða þess opinbera. Ég ætla að biðja hv. flm. að líta á lagagr., sem hann hefir hugsað sér að breyta, og lesa svo 1. málsgr. í grg. frv., sem er algerlega út í loftið, vegna þess, að hún ræðir um undanþágu, sem skilyrðislaust er gefin fyrir allar skuldir, hvort sem það eru skattar eða gjöld eða skuldir einstakra manna, og hafa alltaf verið gefnar samkv. aðfararl.

Ég sé ekki ástæðu til að gefa hv. flm. — ráð um það, hvernig hann skuli fara að því að breyta þessu. Þetta sýnir, að hann hefir ekki skyggnzt nógu vel í lagagr., sem hann sá ástæðu til að breyta. Hann segir í grg., með leyfi hæstv. forseta: „Það virðist engin sanngirni mæla með því að hið opinbera gangi svo ríkt eftir gjöldum hjá þeim fátækustu, að það taki af þeim rúm, sængurföt og fatnað og annað, sem þeir geta ekki án verið“. Þetta er skilyrðislaust bannað, hver sem í hlut á. Svo segir ennfremur: „Hinu opinbera er að þessu lítið gagn, því eignir þessar eru næsta lítils virði og eyðileggjast oft, meðan þær eru geymdar til uppboðs.“ Ég er ekki viss um, að þetta skemmist frekar en aðrir munir, sem eru geymdir. Ég held, að matvæli og jafnvel fín húsgögn skemmist frekar við langa geymslu. En það skiptir ekki máli. En þetta er alveg fyrir ofan garð og neðan, því það kemur ekki frv. við og ekki l. heldur, vegna þess, að l. setja þetta skilyrðislaust upp sem undanþáguheimild, og það meira að segja heimild, sem fógeta er skylt að gæta, þegar hann gerir lögtök. Ég held þess vegna, að úr því hv. flm. hefir í grg. aðallega lagt áherzlu á að ráðast á draug, sem er alls ekki til, þá sé lítil ástæða til þess að samþ. þetta frv. Ég vil jafnframt vísa til ástæðu, sem ég gat um áðan, að ég held það sé misskilningur hjá hv. fim., þó felldar séu niður 2. og 3. málgr. h frá 1932, að þá verði nokkur meiri mannúð sýnd frekar eftir en áður. Það verður aðeins til þess, að erfitt verður fyrir hið opinbera að ná réttmætum tekjum hjá mönnum, sem af þrjózku en ekki getuleysi borga ekki.