08.12.1937
Neðri deild: 44. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í C-deild Alþingistíðinda. (2060)

128. mál, þangmjöl

*Eiríkur Einarsson:

Við 1. umr. þessa frv. hér í hv. d. hreyfði ég aths. við það, og er brtt. á þskj. 272 komin fram til staðfestingar á þeirri skoðun minni, sem ég vék þá að. Hún er hvorki löng né margbrotin, en miðar að því, svo langt sem hún nær, að tryggja betur en mér finnst koma fram í frv. íhlutunarrétt ríkisstj. um meginatriði, er lúta að stofnun og fyrirkomulagi iðnaðarfyrirtækja eins og þessa. Atriði það, sem ég legg til, að breytt verði, er þannig, að ég tel það skipta miklu máli, en það er um, að sérleyfið skuli háð þeim reglum, sem ríkisstj. kann að setja viðvíkjandi ákvörðun vinnustaðar, þar sem þangvinnslan á að fara fram. Ég álít það alls ekki þýðingarlítið, enda myndi það bezt sjást, ef út af bæri um heppilega ákvörðun vinnslustaðar í öndverðu, að þá þætti það eftir á vítavert af hinu háa Alþ., að hafa ekki gengið sæmilega traustlega frá hnútunum þegar í byrjun. Sérleyfi á ekki að veita samkv. frv. nema til 10 ára. Við skulum segja, að þetta fyrirtæki kæmist síðar í hendur ríkis eða einhvers héraðs, þá skiptir það miklu máli, að fyrirtækið sé stofnað og rekið á þann hátt, sem heppilegast er fyrir þá, sem eiga að njóta góðs af fyrirtækinu.

Ég gat þess við 1. umr. þessa máls, og einmitt með tilliti til þess atriðis, sem ég gerði að meginatriði, að ríkisvaldið hefði íhlutun um ákvörðun vinnslustaðar, að þeir, sem leitað hafa sérleyfis til þess að vinna fóðurmjöl úr þangi við suðurströndina, og þá helzt á Eyrarbakka eða Stokkseyri, hefðu það helzt í ráði, eftir því sem ég hefi heyrt, að flytja þessa hrávöru frá sjávarströndinni og út í Hveragerði í Ölfusi, sem er milli 20 og 30 km. vegur. Þegar um svona mikla þungavöru er að ræða, þá er það ekkert aukaatriði. Þetta mun vera gert í ákveðnu skyni, eða til þess að hveraorkan geti komið að notum við vinnsluna. Og þar hafa þeir auðvitað mikið til síns máls. Þó hafa þeir ekki svo mikið til síns máls, að það sé ekki ástæða til að gera þetta að álitamáli og rannsaka með fyllstu gaumgæfni, hvort ekki sé eins rétt og ráðlegt að vinna úr þessu á hráefnastaðnum sjálfum, eða í því kauptúni, sem um er að ræða, með tilliti til þeirra vona, sem maður gerir sér um raforkunot þessara kauptúna í framtíðinni. Ég álít því, að það eigi svo að vera, að ríkisstj., sem á að binda um hnútana og veita sérleyfið, láti rannsaka, hvað bezt kann að reynast í þessum efnum, og láti stofna til fyrirtækisins þar, sem það sé haganlegast fyrir alla aðilja. Eins og ég hefi sagt, þá vil ég sérstaklega óska eftir því, að þessi samanburður sé tekinn og l. áskilji, að ríkisstj. gefi gaum að þessu, svo það réttasta og haganlegasta fáist út úr málinu.

Ég skal svo ekki eyða fleiri orðum að þessu, en vil að síðustu láta þess getið sem minnar skoðunar á málum sem þessu, að það verði að gæta þess, þegar sérleyfi er veitt, að veita það ekki út í bláinn. Ríkisvaldið á með afskiptum sínum að tryggja, að þetta fari sem bezt og haganlegast úr hendi, án þess að vera þar nokkur þrándur í götu.