08.12.1937
Neðri deild: 44. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í C-deild Alþingistíðinda. (2061)
128. mál, þangmjöl
*Frsm. (Emil Jónsson) :
Mig langar til að segja nokkur orð út af brtt. hv. 10. landsk. Þegar sú málaleitun kom til okkar í iðnn. að flytja þetta frv., þá var það í allmikið öðru formi en n. hefir lagt það fyrir d. Það var í því formi, að þingið samþ. að veita þessum mönnum sérleyfi eftir þeim upplýsingum, sem þá lágu fyrir. N. sá sér ekki fært að mæla með þessu og breytti því frv. í þá átt, að ríkisstj. skuli heimilt að veita þessum mönnum sérleyfi, þegar þeir hafa fært fyrir því þau rök, sem ríkisstj. tekur gild, að þeir séu hæfir til þessarar framleiðslu og geti rekið hana og framleitt góða vöru. Í þessu felst nægileg trygging fyrir því, að ekki verði veitt sérleyfi nema því aðeins, að þetta sé rekið á heilbrigðan hátt. Í 3. gr. er ennfremur tekið fram, að sérleyfishafar skuli háðir þeim reglum, sem ríkisstj. kunni að setja við veitingu sérleyfisins til þess að tryggja vörugæði framleiðslunnar.
Þetta telur hv. 10. landsk. ekki nóg, því brtt. hans er á þá leið, að auk þess sem þeir skuli háðir þeim ákvæðum, sem ríkisstj. kann að setja um tryggingu vörugæða, þá skuli þeir einnig háðir ákvæðum stj. um vinnslustað. Þetta er kannske ekki stórt atriði og ekki nauðsynlegt að gera mikið úr því. En ég segi fyrir mitt leyti, að ég kann heldur illa við það og mun ekki fylgja því, vegna þess að mér finnst, að með því sé þeim markaður svo þröngur bás, að þeim geti verið settur stóllinn fyrir dyrnar með því að binda þá við þann stað, sem stj. kann að óska eftir, að þeir vinni á. Ef þeim eru sett þau skilyrði að vinna í Árnessýslu, en ekki annarsstaðar, þá er sérleyfið bundið við ákveðinn landshluta og nær ekki þeim tilgangi, sem ætlazt er til með flutningi frv., þar sem þeim er frjálst að inna starfið af hendi hvar sem er á landinu, ef þeir geta framleitt þar góða vöru, sem er samkeppnishæf. Þeir eru sjálfráðir, hvar þeir stofna til fyrirtækisins, ef þeir geta framleitt þar góða vöru og samkeppnishæfa. Þetta er framkvæmdaratriði hjá mönnunum sjálfum, enda hljóta þeir að setja sig niður þar, sem þeir telja sér mesta arðsvon og haganlegast er til þessarar framleiðslu.
Ég fyrir mitt leyti legg á móti því, að þessi till. verði samþ., því mér finnst hún takmarka um of athafnafrelsi þessara manna, úr því verið er að veita þeim sérleyfi á annað borð.