23.10.1937
Efri deild: 9. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í C-deild Alþingistíðinda. (2115)
33. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga
Bernharð Stefánsson:
Það má segja, að það sé kostur við þetta frv., hvað það er einfalt. Það hefir ekki verið skipuð nein mþn. til þess að semja það, eins og einu sinni var gert um annað frv., enda ber frv. það með sér. Það er þessi einfalda leið, sem hér er farin, að vísa á ríkissjóð til þess að bæta úr þörfum sveitar- og bæjarfélaga. Það er sú leið, sem kommúnistar hafa verið einna harðsnúnastir í að fara hingað til. En þetta frv. gengur nú svo langt, að þeim virðist alveg ofbjóða.
Það, sem hér er farið fram á, er, eins og hv. síðasti ræðumaður gat um, að taka rúmlega 2 millj. kr. af tekjum ríkissjóðs handa sveitar- og bæjarfélögum; það er að afhenda fasteignaskattinn, sem er um 400 þús. kr., helminginn af tekju- og eignarskattinum, um 850 þús. kr., og 25% af útsöluverði áfengis, sem mun vera um 900 þús. kr., eða vel það. Mér skilst þetta vera samanlagt um 2100000 kr. — En hvað á svo að koma í staðinn? Hv. 1. flm. þessa frv. minntist ekkert á það. Maður skyldi þó ætla, að frá honum og hans flokksmönnum lægju fyrir einhverjar till. um sparnað á útgjöldum ríkisins að sama skapi. En svo er ekki, heldur þvert á móti. Ef hv. flm. gæti fært nokkur rök fyrir því, að honum mundi takast að framkvæma slíka fjármálapólitík, sem hér kemur fram í hans till., þá hygg ég, að ekki mundi standa á neinum þm. að styðja að því, að hann yrði fjmrh.
Viðvíkjandi því, sem hv. flm. sagði um frv. mþn. frá í hitt eð fyrra og gallana á því, t. d. viðvíkjandi Hafnarfirði, þá skilst mér, að svipað sé að segja um þennan ágóða af áfengisútsölunni. Ekki drekka Hafnfirðingar líklega allt það áfengi, sem selt er í Hafnarfirði. Ætli Keflvíkingar drekki ekki eitthvað af því? Og verða þeir því skattlagðir til Hafnarfjarðar.
Ég vil ekki beinlínis lýsa andstöðu minni við þetta frv. Ég hefi sýnt það áður með mínum till. hér í d., að ég viðurkenni fyllilega þörfina á því að útvega bæjar- og sveitarfélögum aukna tekjustofna, svo að ég þarf ekki að fara neinum orðum um það. En ég vil aðeins fá að vita, úr því hv. flm. leggur til að fara þessa einföldu leið, að taka úr ríkissjóði, hvað hann á að fá í staðinn og hvernig hann á að fá tekjur til þess að fullnægja hinum öðrum kröfum, sem þessir sömu þm. bera fram, og þá væntanlega þeim kröfum, sem aðrir þm. kynnu að bera fram og kannske væru alveg eins réttlátar. Þetta finnst mér verði að koma skýrt fram, áður en hægt er að taka þetta frv. alvarlega. Það er ekki til neins að slá því fram, að það verði að spara; það verður að sýna fram á, hvar eigi að spara. Það verður eitthvað að koma fram, sem hægt er að festa hendur á.
Annars fannst mér hv. flm. líta nokkuð einhliða á þetta mál frá sjónarmiði Hafnarfjarðar, og er honum það kannske nokkur vorkunn. En mér er spurn: Er ekki a. m. k. sumt af vandræðum Hafnarfjarðar þannig, að rekja megi þau til bæjarbúa sjálfra eða þeirrar stjórnar, sem þeir hafa á sínum bæjarmálum?Nú t. d. er búið að reisa þar stórhýsi mikið, Flensborgarskólann. Var nauðsynlegt að ráðast í slíkt á sama tíma sem kvartað er undan því, að bærinn sé að verða gjaldþrota? Ég legg engan dóm á þetta, ég bara spyr, og svo mun vera um fleiri.
Hv. flm. sagðist vera á móti því að auka álögur á þjóðina. Ég býst við, að allir séu á móti því, ef hægt er hjá því að komast. En ef frv. þetta yrði samþ. og svo tollahækkanir til handa ríkissjóði í skarðið, mundu þá ekki hann og hans flokksmenn halda því fram, að þær tollahækkanir væru auknar álögur á þjóðina? Af þeirri reynslu, sem fengin er af hv. stjórnarandstæðingum, tel ég alveg víst, að svo yrði gert í „agitationum“. Það er náttúrlega ágætt að bera fram till., sem ætla má, að fólkinu falli vel í geð, en menn eru nú samt farnir að átta sig á því, þegar till. eru bornar fram í algerðu ábyrgðarleysi. Ef það kæmi skýrt fram hjá hv. flm., hvernig eigi að bæta ríkissjóði það tap, sem af frv. þeirra leiddi, og hvernig eigi að afla fjár til þessara og annara hluta, sem þeir stinga upp á, þá væri allt öðru máli að gegna. Þá væri sjálfsagt að taka þeirra till. alvarlega, en fyrr er það ekki hægt.