27.10.1937
Efri deild: 12. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í C-deild Alþingistíðinda. (2120)
33. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga
Bernharð Stefánsson:
Ég varð dálítið undrandi yfir því, hvað hv. 9. landsk. tók það illa upp, sem ég sagði um þetta mál, þegar það var síðast til umr., því að mér virtist, þegar leið á ræðu hans, að hann hefði líka ýmislegt við frv. að athuga, og jafnvel eins mikið og ég. Hann benti t. d. alveg réttilega á það, að þó að þetta frv. yrði að 1., þá mundu sveitahrepparnir hafa mjög lítið gagn af því, og vitanlega var honum ljóst, hvílíkt skarð ætti með þessu að höggva í ríkissjóð. En hann vildi afsaka flutning þessa máls með því, að till., sem áður hefðu legið hér fyrir þinginu um þetta mál, hefðu ekki náð fram að ganga. Það er nú svo, að fyrir tæpum tveimur árum var mþn. skipuð til þess að bera fram till. um þessi efni, og á þingi í hitteðfyrra var frv. hennar lagt fyrir, en náði ekki fram að ganga, eins og oft er um stórmál, að þau ná ekki fram að ganga á fyrsta þingi. Síðan voru í fyrra bornar fram till. um þetta sama efni, en þó með dálítið öðrum hætti en upphaflega, bæði af mér hér í Ed. og Jónasi Guðmundssyni í Nd. Og getur hv. 9. landsk. fullyrt það, að þessar till., eða eitthvað af þeim, hefðu ekki náð fram að ganga, ef þinginu hefði lokið með venjulegum hætti? Ég hygg, að fullyrða megi, að það hafi eingöngu verið vegna þingrofsins, að ekkert var samþ. um þessi efni í fyrra.
Hv. 9. landsk. spurði mig um daginn að því, hvort ég vissi nokkuð um það, hvort flm. þessa frv. hefði ekki dottið neinar leiðir í hug til þess að bæta ríkissjóði upp þann halla, sem af þessu frv. leiddi. Ja, ég veit náttúrlega ekki, hvað menn hugsa, en þetta hefir hvergi, komið fram, hvorki í grg. frv. né ræðu hv. 1. flm.; og hvað á ég þá að vera að gera ráð fyrir því, sem hvergi kemur fram?
Þá sagði hv. 9. landsk., að sjálfstæðismenn væru ekki svo heimskir, að þeir héldu, að ríkissjóður gæti misst þessar tekjur án þess að fá skaðabætur. Ég er honum alveg sammála um þetta. Ég álít alls ekki, að sjálfstæðismenn séu svo heimskir, að þeir álíti þetta hægt, en hitt er annað mál, hvort þeir eru reiðubúnir til þess að játa þetta og taka afleiðingunum af þeirri játningu. Ég veit, að sjálfstæðismenn eru ekki svo heimskir, að þeir trúi yfirleitt á þær ádeilur, sem þeir eru með, bæði í blöðum og ræðum, á ríkisstj., en þessar ádeilur koma fyrir því. — Og hv. þm. fannst það langt gengið af mér að spyrjast fyrir um það hjá flm., hvaða tekjustofna ríkissjóður ætti að fá í staðinn, eða hvar ætti að spara á fjárl. til þess að vega upp á móti tekjumissi þeim, sem frv. gerði ráð fyrir. Mér skildist helzt á honum, að þetta væri ósvífni af mér. En það er fullkomin ástæða til þess að spyrjast einmitt fyrir um þetta. Ég er ekki að tala persónulega til hv. flm., heldur til Sjálfstfl. í heild, sem er yfirleitt alltaf að tala um sparnað, en er svo alltaf á móti öllum sparnaðartill. og till. um skatta til ríkisins. Hv. þm. tók dæmið af því, þegar tryggingarlöggjöfin var sett, og sagði, að þá hefði ekkert verið um það spurt, hvar ríkissjóður ætti að fá tekjur til þess að standast þann kostnað, sem hann óhjákvæmilega hefði at tryggingunum. En þetta er rangt. Þetta sama þing samþ. tekjuaukalög, sem voru bein afleiðing af tryggingunum. eða ég man ekki betur en að þau l., sem við kölluðum „klauflax“, hefðu einmitt þá verið samþ. beinlínis af þeim ástæðum, að verið var að setja tryggingalögin.
Bæði hv. 9. landsk. þm. og fleiri sjálfstæðismenn hafa látið skína í, að þeir mundu verða með einhverjum tekjuaukum til handa ríkissjóði í staðinn. Hv. 9. landsk. þm. sagði það ákveðið, en aftur var það bundið ýmsum skilyrðum hjá hv. flm. Þetta er nú ekki nóg fyrir mig. Ég vil vita, hvort þessir hv. þm. eygja nokkra ákveðna leið til að bæta ríkissjóði tekjumissinn. Ég viðurkenni þörf bæjar- og sveitarfél. á að fá auknar tekjur, og ef hv. flm. geta sýnt fram á það með skýrum rökum, að hægt sé að bæta ríkissjóði skaðann á skynsamlegan hátt, og bent á leiðina til þess, þá skal ég ekki vera á móti frv.
Ég sé ekki ástæðu til að svara hv. þm. Hafnf. miklu, því að það kom lítið nýtt fram í ræðu hans, og ég hefi að nokkru leyti svarað honum jafnhliða hv. 9. landsk. þm. Hv. þm. Hafnf. kallaði það firru, að ég spurði, hvar ætti að spara eða hvernig að afla ríkissjóði tekna á móti þessu. Hann má gera það, en það er sú firra, sem hver þm. með ábyrgðartilfinningu verður að gera sig sekan í. Hv. þm. var að lofa því, að ef hann sæi viðleitni til sparnaðar á ríkisfé, skyldi hann vera með því, að ríkissjóður fengi auknar tekjur. En ég vil engin eftirkaup eiga við hv. þm. um þetta. Ég vil vita leiðina áður en ég samþ. slíkt frv. sem þetta.
Hv. þm. talaði mikið um, hvílík nauðsyn væri á því fyrir sveitar- og bæjarfél. að fá auknar tekjur. Ég er sammála honum um það, en það hafa verið bornar fram till. um að bæta úr þessu, og þær hafa verið samþ. hér í d., og það er full ástæða til að vænta, að þetta þing samþ. tekjuauka fyrir sveitar- og bæjarfél., og ég álít, að það þurfi að gera, en það er bara engin lausn að taka ríkistekjurnar handa þeim. ríkinu veitir ekki af þeim tekjum, sem það hefir nú.
Út af því, sem ég spurði um vandræði Hafnarfjarðarkaupstaðar, hvort ekki mætti kenna bæjarfél. sjálfu um, vildi hv. þm. telja, að þingið bæri ábyrgð á byggingu Flensborgarskóla, þar sem það hefði veitt fé til hans. Nú býst ég við, að féð hafi verið veitt af því, að nauðsynlegt hafi verið að byggja skólann, en hinsvegar var það bæjarfél. að meta það, hvort það var fært um að leggja í kostnaðinn strax. Vitanlega hefði ríkið styrkt bygginguna, þó að henni hefði verið frestað.
Ég orðlengi þetta ekki frekar. Ég veit, að nauðsynlegt er, að sveitar- og bæjarfél. fái auknar tekjur, en að samþ. þetta frv. án þess að bæta ríkissjóði það, sem af honum er tekið, er óforsvaranlegt, og ég trúi því ekki, að flm. hafi dottið það í hug í alvöru. Mér finnst það engin goðgá, þó að manni verði á að halda, að frv. sé fram borið til þess að geðjast hv. kjósendum. Þó að flm. fyndist það ósvífni af mér að ætla slíkt, er ég ekki grunlaus um, að svo sé.