26.10.1937
Efri deild: 11. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í C-deild Alþingistíðinda. (2141)

46. mál, síldarverksmiðjan á Norðfirði

*Flm. (Ingvar Pálmason):

Ég flyt þetta frv. samkv. ákveðinni ósk frá bæjarstjórn Neskaupstaðar. Í grg. frv. eru færðar fram ástæður fyrir því, að frv. er fram borið, og tel ég, að þar sé nokkuð skýrt fram sett, hve knýjandi ástæður eru fyrir því, að frv. þetta nái fram að ganga. Ég tel þó rétt að láta nokkur orð fylgja auk þessara upplýsinga, sem gefnar eru í grg., og þykir mér þá hlýða að byrja fyrst á tildrögunum til þess, að þessi verksmiðja var reist.

Eins og mörgum hv. þdm. er kunnugt, var fyrir á þessum stað fóðurmjölsverksmiðja, sem rekin var um nokkurra ára skeið með sæmilegum árangri, fyrst af útlendum manni, og þegar hann hvarf héðan, réðst bærinn í að kaupa verksmiðjuna og starfrækja hana. Á meðan hún var rekin sem fóðurmjölsverksmiðja má segja, að árangurinn af rekstri hennar hafi verið mjög sæmilegur, þar til draga fór úr þorskveiðunum við Austurland. Þá minnkaði auðvitað verkefni verksmiðjunnar og rekstur hennar gekk þá erfiðlega, þar sem ekki var hægt að hafa handa henni verkefni síðustu árin nema mjög stuttan tíma ársins. Þá var engin síldarbræðsla á Austurlandi, og það var álitið rétt að gera tilraun með síldarbræðslu á Austurlandi í sambandi við fóðurmjölsverksmiðjuna, og menn litu þannig á, að bæði þar sem þetta væri tilraun, þá væri ekki ástæða til annars en að byrja með litla verksmiðju, og sérstaklega var það þó, sem reið hér baggamuninn í því, að menn voru bjartsýnir um afkomu lítillar verksmiðju á Austurlandi, að árin 1931–1933 hafði verið töluverð síldveiði í fjörðum þar eystra. Það var smásíld og millisíld mest, sem veiddist, og markaðurinn fyrir hana var að vísu nokkuð sérstakur, þar sem hún var send út í ís til Þýzkalands, því að það fékkst nokkuð meira fyrir hana þannig. Það var gerð tilraun með söltun á síld, en hún bar ekki góðan árangur. En á þessu ári kom það í ljós, að mikill meiri hluti síldaraflans var ónothæfur. Það var sérstaklega seint á árinu 1932 og í byrjun ársins 1933, en þá var þessi síldveiði svo mikil, að það varð iðulega að moka síldinni í sjóinn aftur, fleiri hundruð tunnum daglega. Þetta gerði það að verkum, að bæjarstjórn og íbúar Neskaupstaðar yfirleitt töldu, að það væri óforsvaranlegt að reyna ekki að hefjast handa og koma upp verksmiðju í sambandi við fóðurmjölsverksmiðjuna, sem gæti unnið úr þessum hráefnum, og menn voru svo bjartsýnir, að þeir gerðu sér vonir um, að þessi veiði héldist áfram, og ef svo hefði reynzt, hefði verið tryggt verkefni fyrir litla verksmiðju, en það var ekki þörf á stórri verksmiðju vegna þessarar veiði. Að þessu var svo horfið, og bærinn réðst í að byggja síldarbræðslustöð, sem átti að geta brætt 200–300 mál á sólarhring. Þegar verksmiðjan var komin í fullt lag, skeður tvennt í senn, fyrst það, að fjarðaveiðin bregzt alveg, og hefir ekki verið siðan verksmiðjan var reist, og í annan máta skeður það, að þorskveiðin á Austfjörðum bregzt líka alveg, svo að eitt af aðalverkefnum verksmiðjunnar vinnsla úr fiskúrgangi, bregzt. Þegar svo er komið, er það sýnilegt, að það vantar verkefni handa verksmiðjunni, og þá er ráðizt í það, með hálfum huga þó, að fá togara, sem aðallega var notaður til síldveiða við Norðurland, með hálfum huga, vegna þess að það var trú manna, að það gæti ekki borið sig að reisa síldarbræðslu á Austurlandi með það fyrir augum, að hún fengi verkefni frá síldarmiðunum við Norðurland; það yrði of langt fyrir skipin að sækja þangað og erfitt að fá skip til þess að leggja þar upp, vegna þess að það tæki svo langan tíma að sigla þangað. Samt var í þetta ráðizt, og þessi togari stundaði síldveiðar á hinum vanalegu norðlenzku síldarmiðum sumarið 1936 með þeim árangri, að hann fiskaði eftir aðstöðu og veiðarfæraútbúnaði fullt eins vel og önnur skip af sömu stærð fyrir Norðurlandi, þó að hann þyrfti að fara með síldina til Austfjarða. Í sumar er þessi sami togari hafður til veiða, en þá eru líka hafðir 5 heldur smáir bátar, sem stunda síldveiði við Norðurland, en eru gerðir út frá Norðfirði. Og reynslan er sú, að þessir bátar hafa sóti eftir að fá að leggja upp aflann í þessa verksmiðju, og það er þægilegt fyrir þá, sem eiga þar heima, að leggja aflann þar upp. En þó hefir það nú reynzt svo, að það hefir ekki verið hægt að fullnægja þeirri þörf að taka af þeim alla veiðina, vegna þess að verksmiðjan er samningsbundin við togarann, sem á að tryggja henni verkefni, svo að bátarnir verða að sitja á hakanum, og það hefir komið fyrir, að þeir hafa orðið að biða í viku áður en hægt var að afgreiða þá, og stundum hafa þeir orðið að fara aftur óafgreiddir, því að þá hefir togarinn komið aftur, svo að það hefir ekki verið hægt að taka veiðina af bátunum. Það hefir m. ö. o. sannazt þessi tvö ár, sem verksmiðjan hefir fengið verkefni frá síldarmiðunum við Norðurland, að þau skip, sem hafa lagt upp í þessa verksmiðju, hafa fiskað eins vel og hver önnur skip af sömu stærð, sem lagt hafa upp á Norðurlandi. Ég veit, að hv. þdm. geta gengið úr skugga um þetta með því að fara yfir síldaveiðilista skipanna frá síðasta sumri, og þá kemur í ljós, að þessi skip, sem eru af mismunandi stærð, frá togara og niður í 17 tonna báta, eru hlutfallslega með þeim allra hæstu af sinni stærð. Með þessu er það sannað, að það er hégilja ein, að verksmiðjan liggi svo óheppilega fyrir miðunum norðlenzku, að það sé ekki hægt að hyggja á því, að þar geti þrifizt sæmilega stór verksmiðja, sem er fyrsta skilyrðið fyrir því. að síldarbræðsla geti borið sig, að hafa afkastamöguleika fyrir nægilega miklu til þess að reksturinn verði ekki hlutfallslega allt of dýr, miðað við afköst. Það hefir líka komið í ljós, að þó að verksmiðjan gæti borið sig, ef hún hefði átt kost á að fá hráefni á þann hátt, sem upphaflega var hugsað, þá er undir núv. kringumstæðum óhugsandi, að verksmiðjan verði rekin með sæmilegri afkomu, nema því aðeins, að hún verði stækkuð. Hitt er líka sannað, að skilyrðin þarna fyrir síldarbræðslu eru alveg eins góð eins og viðast hvar annarsstaðar á landinu. Af þessu leiðir það, að nú liggur ekki annað fyrir en að stækka þessa verksmiðju eða að leggja hana niður. Hv. þdm. er öllum kunnugt um, að jafnlitlu bæjarfélagi og Neskaupstaður er og ekki betur stæðu fjárhagslega en bæjarfélög eru yfirleitt nú, er algert ofurefli að ráðast í að stækka verksmiðjuna ofan á annað, sem bærinn þarf að hafa með höndum, til þess að hún geti orðið það fullkomin, að vænta megi af henni sæmilegs rekstrar. Þess vegna er það, að bæjarstj. hefir einróma samþ. að skora á okkur þm. kjördæmisins að flytja frv. um, að ríkið taki að sér þessa verksmiðju og hún verði rekin alveg á sama hátt og verksmiðjur ríkisins á Sigluf. og undir sömu stjórn. Það má vel vera, að mörgum finnist, að hér sé gengið út á varasama braut að því leyti, að eins og menn vita, eru nú uppi mjög viða óskir um nýjar verksmiðjur, og með því að ríkið taki að sér þessa verksmiðju og fullkomni hana og reki á sama hátt og verksmiðjurnar á Siglufirði, Raufarhöfn og Sólbakka, sé stefnt inn á þá braut að verða við kröfum og óskum frá mörgum öðrum héruðum í þessu efni; en ég vil benda á, að hér stendur alveg sérstaklega á. Hér er um að ræða atvinnurekstur, sem engum dettur í hug að bera á móti, að sé nauðsynlegur á þessum stað, atvinnurekstur, sem leggst niður, nema því aðeins, að eitthvað verði að gert, og það hefir hingað til verið litið svo á, að það væri ríkinu ekki óviðkomandi, þegar svo stæði á, og ég vil minna á verksmiðjuna á Sólbakka t. d., sem nú sem stendur liggur sízt betur við til hagkvæms rekstrar heldur en þessi verksmiðja, þó að hún hafi á sinum tíma verið talin gera það, og ég tel óforsvaranlegt að láta þá starfsemi leggjast niður, og ég hygg, að það sé ekki flokksmál. Þó að sú verksmiðja liggi langverst allra síldarverksmiðja á landinu að því er snertir fjarlægð frá fiskimiðunum, þá veit ég ekki annað en að rekstur hennar gangi mjög sæmilega. Það má líka benda á Raufarhöfn. Það lá við, að starfsemin þar yrði lögð niður, en þá yfirtók ríkið verksmiðjuna og lét reka hana undir sömu stjórn og síldarbræðslur ríkisins á Siglufirði. Hér virðist því vera til staðar nákvæmlega sama ástandið og var til staðar, þegar verksmiðjurnar á Raufarhöfn og Sólbakka voru keyptar.

En auk þess er annað atriði, sem hér kemur mjög til greina, og það er það, að þessi verksmiðja er, eins og skiljanlegt er, byggð með lánum, sem hafa verið mjög litið afborguð, en lán til fóðurmjölsverksmiðjunnar hafa verið talsvert afborguð, og ríkissjóður er í ábyrgð fyrir lánunum. Hann hefir að vísu 2. veðrétt í öllum eignum, og ég tel, að tryggingin fyrir þeim lánum sé mjög sæmileg, en það, sem hvílir á 1. veðrétti, mun vera um 30000 kr. Ég þori ekki að segja með fullri vissu, hve byggingarlánin eru mikil, sem hvíla á verksmiðjunni — ég hefi ekki skýrslu um það við hendina sem stendur —, en ég hygg, að þau lán, sem ríkissjóður stendur í ábyrgð fyrir og hefir að tryggingu 2. veðrétt í verksmiðjunni, muni vera eitthvað yfir 100 þús. kr. Ef starfsemi þessarar verksmiðju leggst niður og bærinn ætti að reka verksmiðjuna, sem hann er neyddur til, því að hann hefir enga von um að geta fengið þau lán, sem nauðsynleg væru til þess að stækka verksmiðjuna, þar sem á bænum hvíla ýms önnur verkefni, sem hann verður óhjákvæmilega að rækja, þá mundi af því leiða, að verksmiðjan legðist niður, því að enda þótt ég geti ímyndað mér, að mörgum dytti í hug. að það mætti stofna hlutafélag utan um fyrirtækið, ef það er sæmilega arðvænlegt, þá er það svo, að á Austfjörðum er ekki til fjármagn í slíkt hlutafélag. Ástandið er þannig þar, og þó að fullur vilji sé fyrir hendi í þessu etni, þá vantar fjármagnið. Það getur vel verið, að mönnum þyki þetta vera heldur mikil gjaldþrotsyfirlýsing fyrir Austfirðinga, en ég vil spyrja, hvaða landsfjórðungur mundi belur staddur en Austfirðir eftir að hafa haft fiskileysi í 7 ár. Eitt skal ég játa, að það eru til margir menn á Austurlandi, er stunda aðra atvinnu en sjávarútveg, t. d. margir bændur um héraðið, sem gætu til samans lagt fram 500 þús. kr. í slíkt fyrirtæki, en það er ekki þeirra hlutverk. Þeir, sem eiga að standa undir þessu. eru þeir menn, sem verja kröftum sínum og fé í sjávarútveginn, og ég hika ekki við að segja, að þessi lýsing sé rétt. Það má vera, að fé sé til annarsstaðar, en ég hygg, að það mundi verða erfitt að fá það, og auðvitað mundi það sízt hryggja mig. þó að árangurinn af þessari málaleitun yrði sá, að stofnað yrði hlutafélag utan um þetta fyrirtæki, ef það yrði þá ekki aðeins á pappírnum, því að ég hygg, að það hafi lítið að segja, þó að menn skrifi sig fyrir hlutum, ef ekkert fé er innborgað.

Niðurstaða þessara hugleiðinga — og hygg ég, að fleiri hafi komizt að svipaðri niðurstöðu, –verður þá sú, að eina ráðið til þess að tryggja það, að þessi verksmiðja verði rekin áfram, er það, að ríkissjóður yfirtaki verksmiðjuna og ríkissjóður eða stjórn síldarbræðslnanna á Siglufirði láti stækka hana, svo að hún verði fær um að vinna úr því síldarmagni, sem getur gefið sæmilega afkomu. Ég þykist ekki þurfa að minna á, að það er töluvert athugavert á stað eins og Austfjörðum, þar sem veiðiskapurinn hefir gengið svo hörmulega á undanförnum árum, þegar við borð liggur, að fyrirtæki, sem hefir skapað mikla vinnu og talsverðan gjaldeyri, og telja má víst, að slík starfsemi leggist algerlega niður, ef ekkert verður að gert. Ég held því, að hv. þdm. hljóti við nánari áthugun að komast að þeirri sömu niðurstöðu og ég, að hér verður að taka til ráðstafana, og ég er sannfærður um það, að þær ráðstafanir, sem hægt er að gera, eru ekki aðrar en þær, sem farið er fram á í þessu frv.

Ég hefi í þessum fáu orðum reynt að skýra málið, svo sem mér hefir verið unnt, auk þess sem gert er í grg. frv., og ég treysti því, að hv. d. taki þessu máli vel og vísi því til hv. sjútvn. að umr. lokinni.