17.11.1937
Efri deild: 29. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í C-deild Alþingistíðinda. (2172)
94. mál, alþýðutryggingar
*Flm. (Magnús Jónsson):
Ég hefi leyft mér að koma fram með tvær breyt. á l. um alþýðutryggingar, og þarf ég ekki að hafa langa framsögu fyrir þeim, því bæði atriðin eru vafalaust kunn hv. þm.
Það hafa komið fram raddir um bæði þessi atriði, að þau væru ekki sanngjörn eins og þau eru í l., og það þyrfti því að leiðrétta þau.
Fyrra atriðið er um sjúkratryggingarnar, að þeir menn, sem nú standa utan við tryggingarnar og geta ekki notið þeirra, þó þeir gjaldi til þeirra, verði teknir með í tryggingarnar. Það eru þeir menn, sem hafa yfir 4500 kr. skattskyldar tekjur. Það er augljóst, að ef á að byggja l. á tryggingargrundvelli á annað borð, þá er sjálfsagt, að allir, sem l. ná til, séu með að öllu leyti í tryggingunum. Ef á að koma l. á fullkominn tryggingargrundvöll, þá verður annaðhvort að fara þessa leið eða þá leið, að láta l. ekki ná til annara en þeirra, sem hafa undir 4500 kr. skattskyldar tekjur. Þessi leið er fær, enda tíðkaðist hún hjá sjúkrasamlögum þeim, sem störfuðu áður en alþýðutryggingal. komu. Þar var sett víst tekjumark fyrir þá, sem leyfi höfðu til þess að vera með. Maður getur því hugsað sér, að hinar almennu sjúkratryggingar miði einnig við vissa tekjuhæð manna. Þar er gengið út frá þeim forsendum, að þeir, sem hafa meiri tekjur, geti séð sér fyrir læknishjálp sjálfir, og ekki ástæða til að gera þeim að skyldu að tryggja sig. Hin leiðin aftur á móti er sú, að láta alla vera með og láta alla gjalda í tryggingarnar og líka njóta þeirra. Mér fannst réttara, þar sem l. eru svo víðtæk sem þau eru, að fara þessa leið og taka alla með. Sannleikurinn er sá, að þeir, sem af þessum ástæðum eru utan við sjúkratryggingarnar, eru miklu færri en menn almennt halda. Ég hefi spurzt fyrir um það, og hefir mér verið sagt, að í Reykjavík væru um 900 gjaldendur, sem af þessum ástæðum lenda utan við að njóta trygginganna. Það munu því ekki vera nema um 2000 manns í Rvík, sem þarna koma til greina. Það er því vitanlegt, að það, hvort þessir menn eru teknir með eða ekki, hefir ekki áhrif á afkomu sjúkrasamlagsins hér á þann hátt, að það myndi á nokkurn hátt gera þetta erfiðara.
Ég vil vekja athygli á því, að í grg. frv. stendur, með leyfi hæstv. forseta:
„Hér er hvort sem er ekki um nema tiltölulega fámennan hóp að ræða, og t. d. í Reykjavík er enginn vafi á, að sjúkrasamlagið myndi vel þola það, að þessir menn nytu réttinda þess, að svo miklu leyti sem þeir myndu óska þess.“
Það mætti ef til vill skilja þetta svo, að sjúkrasamlögin í hinum kaupstöðunum myndu ekki þola þetta, en það er fjarri sanni, því langflestir af þessum mönnum eru í Reykjavík. Í hinum kaupstöðunum er það hverfandi lítill hópur, sem er fyrir utan sjúkrasamlögin af þessum ástæðum. Ég tek þetta fram af því, að menn gætu kannske haldið, að þetta hefði alvarlegri afleiðingar þar.
Það hefir stundum heyrzt talað um, að það væri ekki ósanngjarnt, að þeir, sem hafa hærri tekjur, greiddu hærra iðgjald. Ég var að leita við að finna aðferð til þess og gera till. um það. En ég er hræddur um, að það verði nokkuð erfitt að finna grundvöll fyrir slíku, sem geri ákvæðin ekki of flókin. En ég álít réttara að sleppa þessu alveg, þar sem fullyrt er af þeim, sem til þekkja, að sjúkrasamlögin muni vei þola þessa breyt. Þetta yrði áreiðanlega til þess að taka burtu eina af ástæðunum fyrir því, að menn eru með réttu óánægðir með lögin.
Hitt ákvæðið finnst mér, að ætti að orka enn minna tvímælis. Það eru sem sé til, fyrir utan lífeyrissjóð embættismanna og barnakennara, nokkrir sjóðir bæjarfélaga og einstakra stofnana, sem tryggja starfsmönnum sínum eftirlaun eða ellistyrk. Ég man í svipinn eftir því, að bæjarsjóður Reykjavíkur hefir slíkan sjóð, Eimskipafélag Íslands, Landsbankinn og Útvegsbankinn. Í alla þessa sjóði er tekið af starfsfólkinu töluvert hærra iðgjald og því tryggður töluvert meiri lífeyrir en það fær með því að tryggja sig í hinum almenna lífeyrissjóði. Það er von, að starfsfólk, sem borgar allhá iðgjöld, sé óánægt með, að það sé krafið um gjald í annan lífeyrissjóð, þar sem engin eða hverfandi lítil von er um, að það fái nokkurntíma nokkuð í aðra hönd. Nú er þannig búið um ákvæðin í alþýðutryggingal. viðvíkjandi því, hvernig menn skuli njóta lífeyris úr lífeyrissjóði, að það er óhugsandi, að þetta fólk geti nema undir alveg óvenjulegum kringumstæðum notið nokkurs lífeyris á sínum tíma. Það hafa þess vegna borizt mjög eindregin tilmæli frá þessu fólki um það, að það fái að njóta sömu réttinda og embættismenn og starfsmenn ríkisins og barnakennarar, að svo lengi sem þeir eru tryggðir í lífeyrissjóðum ríkisins, þá eru þeir undanþegnir gjaldi til hins almenna lífeyrissjóðs.
Ég vil mjög mæla með því, að þessu atriði verði breytt, hvað svo sem öðru liður um breyt. á alþýðutryggingal.
Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta. Ég sé í blaði, að alþýðutryggingal. séu ein af þeim l., sem stjórnarflokkarnir hafi komið sér saman um að breyta, án þess að getið sé um það frekar. En ég býst við, að þær till., sem ná fram að ganga um þessi atriði, fari í svipaða átt og frv. mitt.
Ég vil vænta þess, að frv. þessu yrði vísað til 2. umr. og til allshn., og tekið tillit til þess, þegar afgreiddar verða breyt. á sömu atriðum í alþýðutryggingalögunum.