16.12.1937
Neðri deild: 52. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í D-deild Alþingistíðinda. (2238)

137. mál, Háskóli Íslands

*Gísli Sveinsson:

Ég vil halda fast við þá ósk, sem borin hefir verið fram, og í rauninni verður að krefjast þess, að málið sé tekið upp á þeim grundvelli, og það því fremur, þegar einnig er komin fram ósk um það frá hæstv. atvmrh., sem fyrst hreyfði því, að hann vildi láta fara fram útvarpsumr. um málið. Ég sé ekki betur en að þeirri kröfu, að útvarpsumr. fari fram um málið síðdegis á laugardag, standi ekki aðeins stjórnarandstaðan, heldur einnig annar stjórnarflokkurinn. Ég tel þess vegna ekki hægt fyrir hæstv. forseta að neita að taka málið upp á þeim grundvelli, heldur tel ég, að honum beri það. Það geta ekki verið nægileg rök fyrir hæstv. forsetu til að andmæla því, að þessi þáltill. muni ekki komast fram, þar sem nokkrir dagar eru til þingslita. Ég vil þess vegna vænta þess, enda er það krafa Sjálfstfl., að þessu verði sinnt, og það er stutt af þeim, sem fyrst óskaði eftir útvarpsumr. Ég vil vænta þess, að hæstv. forseti breyti því, sem hann hefir lýst yfir, að hann muni taka málið til umr. nú, og færi það yfir í það horf, sem nú er komin ósk og krafa um.