20.12.1937
Neðri deild: 55. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í D-deild Alþingistíðinda. (2260)
137. mál, Háskóli Íslands
*Einar Olgeirsson:
Herra forseti! Heiðruðu tilheyrendur! Ef ég ætti að halda mér við líkingu hv. 1. þm. Skagf., Pálma Hannessonar, um strengleikana og undirspilið, yrði ég að segja, að falskastir hafi tónarnir komið frá íhaldinu. það virðist reyna að láta menn standa í þeirri meiningu, að háskólinn sé þess eigið musteri. Íhaldið hefir þá gert þetta musteri sitt að prangarabúð. Og ég veit ekki, hvar það hefir framkvæmt hrossakaup sín, ef ekki í háskólanum, og þá einmitt í guðfræðideild hér áður fyrr. Það þarf ekki að benda nema á það, þegar Sveinbirni Högnasyni var bægt burt. Eg veit, að hv. þm. V.-Sk. (GSv) telur það ekki ranglæti gagnvart sr. Sveinbirni. Kannske mætti til sanns vegar færa, að það hafi verið íhalds-réttlæti, sem hann varð fyrir og honum varð til góðs óviljandi.
Þá þótti hv. þm. (GSv) það einkennilegt með þessa rauðskjóttu í Framsfl., að þeir tækju til sín það, sem hann ætlaði rauðliðum. Ég er hissa á hv. þm., ef hann er búinn að gleyma því, að Framsfl. hefir af sumum verið talinn ekki aðeins rauðskjóttur, heldur rauður flokkur. Ég vildi, að það væri komið sjónvarp til að sýna Morgunblaðið, — málgagn hv. þm. V.Sk. og flokks hans —, þar sem grímunni af Hermanni Jónassyni er haldið fyrir andliti Stalíns til að tákna bolsevismann inni fyrir hjá hæstv. forsráðh. og flokki hans. Að vísu er þetta misskilningur hjá Morgunblaðinu. En við kommúnistar vonumst til þess engu síður, að Framsfl. eigi eftir að verða ekki aðeins rauðskjóttur flokkur, heldur virkilega rauður. Og líklegast er, að einmitt íhaldið komi því til leiðar með heimsku sinni. Það hefir stundum fyrri orðið til þess að reka góða menn inn í vinstri fylkinguna.
Hv. þm. (GSv) sagði, að það væri ekki nýtt að kirkjan yrði að láta í minni pokann. — Ef hann vill láta kirkjuna ráða sjálfa sínum málum og þar á meðal dósentsvali, verður hún að vera skilin frá ríkinu og njóta hvorki fjárstyrks né forstöðu af hálfu þess. Við kommúnistar viljum aðskilnað ríkis og kirkju. Við viljum láta hana taka við öllum sínum málum með fullu frelsi. Hún má þá hafa prestaskóla og ala upp starfsmenn sína eins og henni þóknast.
Hv. þm. var eitthvað að minnast á ógurlega meðferð á kirkjunni í Rússlandi. En sannleikurinn er, að þar fá prestarnir alveg að ráða kirkjulegum málum íhlutunarlaust. Þjóðfulltrúarnir rússnesku skipta sér ekki nokkurn skapaðan hlut af því, hverjir kenna í prestaskólum kirkjunnar. Þar er einmitt það skipulag, sem mér skilst hv. þm. V.-Sk. vilja í þessum efnum. Það eru 20–30 ár siðan frjálslyndir menn í borgarastétt og síðan frjálslyndir og góðir klerkar fóru að krefjast þess í fullri alvöru að skilja ríki og kirkju. Ég vil einnig minna á það, þegar sú kirkja var stofnuð, — þegar konungurinn sjálfur skipti sér af kirkjuskipun og breytti henni, en rændi eignum ísl. kirkjunnar í nafni heilagrar siðbótar. Ekki eru kommúnistar eins slæmir og hann. — Svo mætti minnast á, hvað verið hefir að gerast í næstu löndum, t. d. í Þýzkalandi. Þar eru ofsóttar allar trúarskoðanir, sem hindra þróun hernaðarandans og trúna á foringjann, Adolf Hitler. Í þessu landi, sem Morgunbl. er alltaf að dást að, hafa kaþólskir menn og lúterskir og kommúnistar orðið að standa saman til þess að verja trúfrelsið.
Þá sagði hv. þm. (GSv), að okkur muni vera farið að langa til þess að komast að kjötkötlunum og neyta réttanna með ráðandi flokkunum. Það er auðheyrt á þessu, hvernig lyktin af kjötkötlunum seiðir íhaldið. Það dæmir aðra eftir sjálfu sér. Það er búið að vera hungrað í 9 ár, svo þið getið nú ímyndað ykkur, hvort matarlystin muni ekki vera orðin nokkuð mikil. — En ef hann heldur, að við kommúnistar höfum löngun til að selja hugsjónir okkar fyrir hlutdeild í þeim gæðum, vil ég bara minna þennan boðanda orðsins á það, sem gerzt hefir víða um heim nú á síðustu tímum. Þeir menn, sem mesta fórnfýsi hafa sýnt í þjóðfélagsbaráttunni, það fólk, sem einna mest líkist gömlu píslarvottunum, eru einmitt kommúnistarnir. — En ég er hræddur um, að fulltrúum sjálfstæðismanna sé bezt að tala sem fæst um það, hverjir haldi bezt við hugsjónir sínar.
Þá brigzlaði hv. þm. mér um það að vilja verja Sigurð Einarsson og að þar gengi okkur kommúnistum trúleysi til. Þetta er að sönnu sitt hvað, það að vera trúrækinn, og hitt, að bera blak af manni, sem þessi hv. þm. ræðst á með persónulegum svívirðingum. — Og það fer vel á því, að hv. þm. V.-Sk., Gísli Sveinsson, saki okkur um trúleysi, því að hann var trúlaus sjálfur meðan hann var ungur. Þá var hann róttækur og trúlaus — nú er hann orðinn bæði afturhaldssamur og trúaður, — kominn í kirkjuráð. Það minnir á gömlu söguna: Þegar fjandinn varð gamall, gekk hann í klaustur.
Það er auðséð, að hv. þm. er einn af þeim, „sem þurrka burt á efri árum æsku sinnar frjálsu spor“.
Við kommúnistar berjumst fyrir skipulagi, sem þýðir sameign og bróðerni í stað stéttaþjóðfélagsins. Það eru hugsjónir hinnar fyrstu kristni. Mér finnst það því koma úr hörðustu átt, þegar þessi hv. kirkjuráðsmaður er að ráðast á okkur fyrir trúleysi.
Þá hefði aðalboðandi orðsins svarað honum: „Vei yður líka, þér lögvitringar, því að þér íþingið mönnum með lítt bærum byrðum og sjálfir snertið þér byrðarnar ekki með einum fingri“.
Það er ekkert andstæðara til en íhald og sönn kristileg breytni og bróðurkærleikur. — Mér er sem ég sjái upplitið á íhaldsmönnum, ef sjálfur höfundur kristninnar — sjálfur Jesús frá Nazaret — væri kominn til að þruma fjallræðuna í fátækrahverfi í Reykjavík — tilkynnandi: .,Vei yður, þér ríku, því að þér hafið tekið út huggun yðar!“ — Ja, hvernig haldið þið, að auðmönnum íhaldsins yrði við? — Þið vitið, að þeir ætla af göflum að ganga, þegar við kommúnistar segjum bara, að þeir eigi að borga. En ef farið yrði að segja við þá: „Þið munuð hungur líða. Þið munið sýta og gráta“. Ja, hvað haldið þið, að íhaldið gerði við mann, sem svona bryti í bág við allt velsæmi og boðaði tortímingu yfir þá ríku?
Mér er næst að halda, að annaðhvort myndi Helgi Tómasson setja slíkan mann á Klepp eða Gísli Sveinsson dæma hann í tugthúsið. En svo mikið er víst, að aldrei munn þeir gera hann að dósent í guðfræði við Háskóla Íslands.
Ég vil svo ljúka máli mínu með því að láta í ljós þá ósk, að sá tími nálgist, að allir þeir, sem fylgja sósíalisma, og allir þeir, sem vilja berjast fyrir framkvæmd hinna kristnu hugsjóna um bróðurkærleik og sameignarskipulag, eigi eftir að taka höndum saman í baráttunni fyrir því að skapa þjóðfélag, þar sem mennirnir vinna saman, — þar sem enginn sé lengur kúgaður, — þar sem frelsi og jöfnuður ríki. Góða nótt.