14.12.1937
Sameinað þing: 14. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í D-deild Alþingistíðinda. (2270)
138. mál, jarðhitarannsókn
*Bjarni Bjarnason:
Fyrir hv. Nd. var lagt frv. snemma á þessu þingi um eignar- og notkunarrétt á jarðhita. Frv. var flutt af hv. 1. þm. Árn. og mér, og var því vísað til landbn. Í frv. eru mörg mikilsverð atriði. Er þar gert ráð fyrir rétti ríkisstj. til að láta rannsaka jarðhita og hveraorku, hvar sem er á landinu. Í 11. gr. er gert ráð fyrir, að eigendur jarðhita geti leitað aðstoðar ríkisins um rannsóknir í þessum efnum. Ætlunin er, ef þetta verður samþ., að fá nokkra fjárhæð á fjárl. í þessu skyni.
Þó að þetta sé annað þingið, sem falið hefir landbn. meðferð þessa máls, hefir samt ekki unnizt tími til að afgreiða það. En þó tel ég rétt, að þessi þáltill. sé borin fram. Samt sem áður verð ég að láta í ljós óánægju yfir því, að landbn. hefir ekki afgr. frv., en það hefði sparað flutning þessarar þáltill.