21.12.1937
Sameinað þing: 18. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 62 í D-deild Alþingistíðinda. (2293)

130. mál, hlutdeildar- og arðskiptifyrirkomulag á atvinnurekstri

Bergur Jónsson:

Ég vil bara lýsa ánægju minni yfir því, að úr hópi sjálfstæðismanna skuli koma till., sem eru hér um bil nákvæmlega í samræmi við stefnuskrá framsóknarmanna. Ég geri ráð fyrir, að hv. þm. Snæf. hafi Ford fyrir augum, þegar hann ber þessa till. fram. Á síðustu árum hefir Framsfl. borið fram frv. um samvinnuútgerð, þar sem byggt var á, að menn fái greiðslu fyrir það verk, sem þeir leggja fram í útgerðinni, í hlutfalli við það, sem fæst inn, þ. e. a. s. hrein hlutaskipti, og það er stefna okkar framsóknarmanna. Nú hefir Sjálfstfl., eða a. m. k. einn af aðalmönnum þess flokks, tekið upp þessa stefnu, og ég vil leggja blessun mína yfir það, að svo skuli vera. En ég vil bara benda á, að það er dálítið einkennilegt, að komið skuli vera með þetta úrræði einmitt á þeim tíma. sem útgerðarmenn sjálfir hafa lýst yfir, að ekki sé hægt að reka útgerð með neinum hagnaði hér á landi, heldur með 110 þús. kr. tapi á hverjum einasta togara hér á landi. Þá eiga sjómenn að fara að fá arðinn. En hver er arðurinn, ef það er rétt, að 110 þús. kr. tap sé á hverjum einasta togara, sem gerður er út hér á landi og hér um bil hlutfallslega það sama á hverjum einasta mótorbát, hvort sem það er dekkbátur eða opinn bátur, sem gerður er út? Ég vil beina þeirri spurningu til hv. þm. Snæf., sem er nú einn orðinn af flm. þessarar till., hvort honum finnist nú alveg sérstaklega ástæða til að gera samþykkt um, að sjómenn skuli fá hlutdeild í arði útgerðarinnar, þegar flokksbræður þessa hv. þm. eru búnir að sýna fram á það skriflega og með skýrslum, að 110 þús. kr. tap sé á hverjum togara. Hvað verður það mikið, sem sjómenn fá þá á ári ?