21.12.1937
Efri deild: 55. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í D-deild Alþingistíðinda. (2317)

134. mál, sjúkrahúsrúm fyrir geðveika menn

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég vil taka undir það með hv. 2. landsk. þm., að það er orðið alveg bráðnauðsynlegt að fara að rýmka eitthvað til um húsrúm fyrir geðveikt fólk eða andlega vanheilt, þótt ekki sé vitskert. Það er sannast að segja, að það eru orðin hin mestu vandræði með geðveika sjúklinga. Ég veit t. d. um einn hrepp í Dalasýslu, þar sem eru þrír sjúklingar, sem biða eftir hælis- eða sjúkrahúsvist. Og svona er það víðar. Þetta er orðið svo tilfinnanlegt. að umbætur á þessu sviði mega alls ekki dragast lengi. Á sumum þeim heimilum, þar sem þessir veslingar eiga heima, er jafnvel svo ástatt, að ættingjar þeirra eru einnig veikir fyrir og þola ekki að vera með þessu fólki, og verða kannske sjálfir geðveikir af því að umgangast geðveikisjúklinga. Og ef nokkurt fé væri fyrir hendi til þess að hjálpa þessu máli af stað, þá væri það afar nauðsynlegt.