21.12.1937
Efri deild: 54. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 75 í D-deild Alþingistíðinda. (2330)
142. mál, eignarnámsheimild á óræktuðum landsvæðum
*Flm. (Jón Baldvinsson):
Hæstv. forsrh. skildi till. alveg rétt, en hv. 1. þm. Reykv. hefir misskilið hana, ef honum finnst, að efni hennar stangist á við greinargerðina. Ég veit, að honum eru svo kunnugir staðhættir, að honum getur ekki dottið í hug, að fyrirætlunin sé að taka landsvæði hér í nágrenni Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Eða kannske hann vildi taka t. d. land við Keflavík, mylja hraunið og flytja á það mold austan yfir fjall? — Kringum Hafnarfjörð er brunahraun og auk þess nokkur jarðvegslítil malarholt. Kannske ætti líka að flytja þangað þá mold, sem þarf? — Í till. er talað um landsvæði hentug til jarðræktar handa þeim, sem vilji búa í sveit. Það sýnist nokkurn veginn greinilegt bæði í till. sjálfri og grg., hvað hér er farið fram á.
Þó að hæstv. forsrh. væri þetta ljóst, fannst mér hann taka till. verr en ég vænti og af miklum misskilningi á málefninu yfirleitt. Ég furða mig á, að hann skuli ekki skilja, hver þörf er fyrir kaupstaðina með stærstu atvinnuleysingjahópana að leita nýrra ráða til að skapa atvinnu og til að koma fólkinu aftur út í sveitirnar. Þar þarf það að geta skapað sér sjálfstæða atvinnu, í stað þess að vera hér upp á atvinnubótavinnu komið. Hv. 1. þm. Reykv. tók ekki þessari tillögu eins hlýlega og ég vonaðist eftir, og hann virtist mjög trúlítill á, að hún yrði að gagni. En hæstv. forsrh. virtist óttast hið gagnstæða, að þetta mundi verða framkvæmt, ef till. næði samþykki. Ég vona, að þeir eigi báðir eftir að skoða betur hug sinn, áður en þeir greiða atkv. móti till.
Ég hefi skilið till. eins að mestu leyti og hæstv. forsrh. gerir. En þetta á ekki að falla undir nýbýlalögin og þeirra yfirstjórn. Ég gæti hugsað mér að kosin yrði fyrir þetta sérstök stjórn, og að ríkið legði fé til þessa sérstaklega.
Ég get skilið eina ástæðu til mótstöðu hæstv. forsrh. fyrir hönd sveitanna. En þá ástæðu álít ég ekki á rökum reista. Hún er sú, að bændur óttist of mjög samkeppni þessara manna á nýbýlunum með nýtízku tækni og skipulag og e. t. v. betur ræktuð lönd, því að á smáum blettum tekst oft að ná meiri afrakstri en á viðlendum rýrðarslægjum og hálfræktuðum túnum. En það er of mikil þröngsýni að óttast slíka samkeppni. Nóg er landrýmið austan fjalls, og afurðasölulögin eru komin í það horf, að samkeppni eða offylltan markað er varla mjög að óttast. Auk þess má gera ráð fyrir, að á þessum nýbýlum mundu menn rækta sem mest handa sjálfum sér, svo sem grænmeti, og lítið sem ekki þrengja sér inn á mjólkurmarkaðinn. —
Þessi ástæða finnst mér ekki frambærileg móti þeirri höfuðnauðsyn að skapa nýja afkomumöguleika. Ég tel að vísu ekkert eitt ráð öruggt til þess að flytja fólkið aftur í sveitirnar, heldur þurfi til þess margskonar aðgerðir, eins og raunar segir í grg. till. Og þar er grg. alveg í samræmi við fyrirætlun till., eins og ég vona, að hv. þm. fari að sjá.
Það ríður á miklu, að kaupstaðirnir geti byrjað sem allra fyrst að undirbúa þetta mál. Ef þáltill. verður samþ., treysti ég því, að hæstv. landbrh. muni undirbúa löggjöf um málið fyrir næsta þing og fara þar að vilja deildarinnar, og að hann láti ekki málið liggja, vegna þess hve aðkallandi það er að gera í því hagnýtar ráðstafanir.