21.12.1937
Efri deild: 54. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í D-deild Alþingistíðinda. (2332)
142. mál, eignarnámsheimild á óræktuðum landsvæðum
*Flm. (Jón Baldvinsson):
Ég hafði ekki ætlazt til, að þetta yrði nein stefnuræða eða prógramræða við málið, eins og hv. þm. Vestm. hefir nú flutt um alllangan tíma. Hinsvegar er ekkert nýtt í minni ræðu, sem menn geta tekið til inntekta. Því að ég hefi oft sagt það áður og við margir alþýðuflokksmenn, að við teljum, að það sé þjóðinni hollast að atvinnuvegirnir geti fætt og klætt landsfólkið, og þurfi ekki neinar sérstakar fjárveitingar úr ríkissjóði til þess að halda uppi atvinnubótum utan við atvinnuvegina. (PZ: Það er bara neyðarúrræði). Þetta er það, sem við höfum alltaf haldið fram, — og við höfum sagt meira við höfum sagt, að það geti komið í staðinn fyrir atvinnuvegina, ef þeir gersamlega bregðast. Þá er það bara hrun og ekkert annað. En hitt teljum við sjálfsagt á erfiðum tímum, að styðja atvinnuvegina, eins og gert hefir verið undanfarið í stórum stíl, svo sem landbúnaðinn, bæði með kreppuhjálpinni, sem er ákaflega varasöm lánastarfsemi, og með því mikla fé, sem búið er að veita til þeirra, sem verða fyrir mestum skaða vegna fjárpestarinnar, o. fl. Það, sem sjálfstæðismenn hafa sagt og eru alltaf að segja, er, að þeir vilji fá að vera í friði — oftast orðað það svo —, svo að framtak hvers einstaklings fengi að njóta sin. En mér finnst þeir ekki vilja vera í friði sjálfir, því ég veit ekki betur en einmitt forsprakkar sjálfstæðismanna leiti til ríkissjóðs um margra millj. króna framlag til þess að styðja og reisa við atvinnuveg þeirra. Ég er ekki að lá þeim það, en mér finnst það koma illa heim við kenningu þeirra, að fá að vera í friði. Við alþýðuflokksmenn höfum alltaf sagt, að það, að skapa fólkinu sjálfstæða atvinnuvegi, sé það bezta. En það er ekki aðalstefna sjálfstæðismanna. Sjálfstæðismenn vilja skapa þannig atvinnu, að hinar almennu atvinnustéttir landsins séu háðar tiltölulega fámennum hóp hinna fjársterkustu manna í landinu. (PZ: Það er rétt). Þetta er þeirra stefna. Okkur alþýðuflokksmönnum hefir aldrei dottið í hug, eins og sumir hafa haldið fram, að fara að leggja allan búskap á smákotum undir ríkið, að hver bóndi ætti að vera ríkisbóndi og ríkið að bera ábyrgðina. En það er annað mál, að við höfum talið rétt, að ríkið hefði fyrirmyndarbú á einstaka stað, og yrði það þá sem kennslustofnun, þar sem bændur mættu læra að búa á þann hátt, sem vísindin, þekkingin og reynslan telur, að hentugast sé. (JJós: Með jafnrétti þegna fyrir kaupstaðabúana). Ég er ekki á móti jafnrétti þegna fyrir kaupstaðabúana, það veit hv. þm. vel. Það eru bara sumir svo heimaríkir fyrir sveitirnar. Svo ég þykist ekki hafa sagt neitt, sem kemur í bága við skoðun Alþfl. eða neitt af því, sem við höfum sagt undanfarið. Okkur hefir heldur ekki dottið í hug, að ríkið gerði út smábáta og mótorbáta, heldur að menn geri þá sjálfir út; mættu vera einstakir eigendur að þeim, eða samvinnufélög, eftir því sem verkast vildi. Aftur er það hitt, sem við teljum skaðlegt, að atvinnufyrirtæki, sem þurfa margar millj. og kannske tugi millj. til rekstrarfjár, sé lagt undir einstaka, örfáa menn, því ef hrun kemur af slíku, þá dregur það svo mikinn dilk á eftir sér fyrir þjóðfélagið. Þar teljum við, að hið opinbera eigi að hafa hlutdeild í. Enda er það eðlilegast í sjálfu sér, og þá ekki sízt í jafnfátæku landi eins og hjá okkur, að ríkið stuðli að því, að þeim atvinnufyrirtækjum, bæði til sjávar og sveita, bæri að stjórna á þann hátt, sem líklegastur er að gefa sem beztan arð. og það hafi þar að einhverju lyti forgöngu, eins og t. d. gert er með síldariðnaðinum, þar sem ríkið hefir komið þeim iðnaði á fót og hefir rekið hann, vegna þess að það var ekki á færi einstakra manna í svona fátæku landi að reisa þær miklu síldarverksmiðjur, sem ríkið hefir gert, sumpart með framlagi og sumpart með lánstrausti landsins. Svo prógramræðu hv. þm. Vestm. hefir verið svarað. En ég óska þess eins og fyrr, að þessi till. megi ná samþykki og að þá standi ríkisstj. ekki á móti því að undirbúa löggjöf svo sem fyrir er mælt í till.