22.12.1937
Efri deild: 56. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í D-deild Alþingistíðinda. (2341)
142. mál, eignarnámsheimild á óræktuðum landsvæðum
*Forsrh. (Hermann Jónasson):
Ég ætla ekki að lengja þessar umr. meira, en vildi aðeins taka það fram, af því að tilefni hefir gefizt til þess, að það er fullkominn misskilningur, að ég sé mótfallinn þeirri hugsun, sem liggur til grundvallar fyrir till., að þetta land verði tekið til ræktunar, eins og mér virtist koma fram hjá hv. fyrri flm. En ég er aðeins mótfallinn því, eins og ég hefi skýrt tekið fram, að þetta sé framkvæmt á þann hátt, sem hér er gert ráð fyrir. Og ef flm. þessarar till. og aðrir hv. alþm. vilja vera því fylgjandi, að þetta land eða eitthvert annað land verði tekið eignarnámi og verði séð fyrir fé til þess, og jafnframt séð fyrir fé til þess að byggja þessi nýbýli, — sem nú er ekki gert og hefir ekki verið gert hingað til, — þá stendur ekki á mér að fylgja því; og að framkvæmdir verði síðan almennar, og ekki fyrir neinn sérstakan aðilja. Og þá koma þessir menn, sem búa í þeim kaupstöðum, sem till. ræðir um, að sjálfsögðu til álita eins og aðrir, og ekki síður. Þetta er aðalatriðið fyrir mér.
Því, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði um ofsókn á ræktunina, ætla ég ekki að svara. Það hefir verið gert út af umr. um mjólkurmálið. En ég get minnt á það, að það sitja engir við svipuð kjör og þeir. sem búa á ræktuðu landi í Reykjavík, neinstaðar þar, sem mjólkurskipulag gildir í nágrannalöndunum. Þessi undanþága er alveg sérstök. Og henni hefir verið haldið frá byrjun vegna þess, að því var lofað af mér, að þetta skyldi verða gert. Það er hárrétt, sem hv. flm. sagði um landið kringum Reykjavík, að það er illa notað, og slíkt er vissulega rannsóknarefni, og ekki minna en till., sem hér liggur fyrir. Sem betur fer eru augu manna að opnast fyrir því. A. m. k. einn maður hér í nágrenni er byrjaður á þeim búskap að sameina garðrækt og mjólkurframleiðslu. Og það mun sýna sig, að það er ekki sambærilegt, sem hann hefir upp úr sínu landi, við það, sem eingöngu er notað til mjólkurframleiðslu. Það er hart að geta ekki hér fengið algenga garðávexti, þegar nauðsynlegt er að geta fengið þá, seinni part sumars. Þetta væri auðvelt, ef nokkur forsjá væri um ræktun þeirra. Þess vegna er þess skammt að bíða, að miklu af Því landi, sem nú er komið í tún kringum bæinn, verði breytt í garða, svo að það geti margfalt meira af sér. Þá er túnræktin góð undirstaða undir garðræktina, bæði framræslan og ræktin í landinu.