30.11.1937
Neðri deild: 39. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í D-deild Alþingistíðinda. (2374)

115. mál, ríkisatvinna skyldmenna

*Flm. (Jóhann G. Möller) :

Ég þarf ekki að eyða mörgum orðum að ræðu hv. 1. þm. Rang. Hún var eins og ræður hans eru yfirleitt, full að rætni og illkvittni. (Forseti hringir). Ég verð því miður að segja þetta eins og mér virðist það koma fyrir sjónir. En eitt vakti athygli í ræðu hans, þar sem hann sagðist hafa búizt við að geta fylgt þessari till., og eftir því, sem hann talaði, þá fann hann ekki nokkurn skapaðan hlut að till. eða því, sem hún fer fram á. Einasta gagnrýni hans og mótbára gegn því, að þessi till. næði fram að ganga, var sú, að það væri ástæðulaust fyrir Alþ. að fara að setja atvinnuúthlutunina hjá ríkinu í þær skorður, sem till. fer fram á, af því að einstaklingarnir í þjóðfélaginu og bæjarfélögin hafa ekki gengið á undan með fordæmi í þessu efni. Sami hv. þm. var að tala í þessu sambandi um siðabótarstarf og umbótastarf. Ég verð að segja, að ef hann skilur sitt hlutverk sem alþm. þannig, að hann geti ekki verið þekktur fyrir að bera fram neinar umbætur á þjóðháttum vorum nema því aðeins, að slíkar umbætur hafi verið gerðar hjá einstaklingum þjóðfélagsins, þá held ég, að hann misskilji algerlega þingsetu sína og það hlutverk, sem honum sem þjóðarfulltrúa er ætlað að vinna hér á Alþ. Ég verð að halda því fram, að þm. eigi að styðja að því, að ríkisvaldið gangi á undan í sem flestum efnum með góðum fordæmum fyrir einstaklinga, og það er ekkert annað, sem farið er fram á með þessari till. Það er algerlega rangt hjá hv. þm., að ég hafi ekki beinlínis tekið það fram, að sú misbeiting, sem ég gerði að umtalsefni og sumpart liggur til grundvallar fyrir flutningi þessarar till., væri að einhverju leyti öllum flokkum að kenna. Ég tók það líka fram, að í lýðræðisríki væru jafnan gerðar ráðstafanir, þó misbeiting hafi ekki átt sér stað, því annars mætti segja, að þm. ættu alls ekki að koma með neinar till., sem ganga í þá átt, að ríkið skapi örugg og góð fordæmi fyrir einstaklinga að fara eftir. Ég tók það skýrt fram í ræðu minni áðan að ég ætlaðist til, að fordæmi skapaðist í þjóðfélaginu með þessu. Ég benti á, að fyllsta ástæða er til að ætla, að hægt sé að ná samkomulagi milli einstakra bæjarfélaga og ríkisins um það, að atvinnuúthlutunin fari hjá báðum aðallega fram á þeim grundvelli, sem lagður er með þessari till. Ég sagði þetta vegna þess, að mér er kunnugt um, að vel myndi vera tekið í þetta af ýmsum einstaklingum og bæjarfélögum. Hitt er alveg rétt, sem hv. 1. þm. Rang. sagði, að það er erfitt fyrir einn aðilja að ganga hér á undan algerlega einn, og miklu betra að hafa sem flesta með sér. Einmitt þess vegna benti ég á þetta samkomulag, því ef hér er um óréttlæti og misbeitingu að ræða, sem hv. þm. viðurkenndi að væri, þá verður einhver að ganga á undan, og það er fyrst og fremst skylda ríkisins að gera það. Ég skil þess vegna ekki aðstöðu hv. þm. í því að ganga inn á hugsun og efni þessarar till., en vilja samt sem áður ekki láta hana ganga fram á þinginu, því hann telur óréttmætt, að ríkið gangi á undan öðrum í þjóðfélaginu í því að framkvæma þá réttlætishugsun og þá réttu skipun þessara mála, sem farið er fram á í þáltill.

Ég skal ekki fara út í að ræða við hv. þm. um það, hverjir séu upphaflega valdir að því, að þessum hlutum er svona komið í okkar þjóðfélagi. En mér finnst það hlægilegt af þm. Framsfl., og þá sérstaklega þessum hv. þm., að ætla sér að halda því fram, að það sé Sjálfsffl., sem fyrst hafi gengið inn á þær brautir að láta menn hljóta atvinnu eftir pólitískri skoðun. Allri þjóðinni er ljóst, að við valdatöku Framsfl. í þessu þjóðfélagi hófst sá háttur í atvinnuúthlutun hjá ríkinu, að menn voru valdir í opinberar stöður og störf eingöngu eftir því, hvort þeir fylgdu Framsfl. eða ekki. Man hv. þm. ekki eftir því, þegar öllum tollvörðunum var sagt upp aðeins til þess að ná úr tollstöðum 2 eða 3 mönnum, sem fylgdu Sjálfstfl., til þess að geta komið framsóknarmönnum í stöðurnar? Það mætti nefna mörg dæmi, sem eru talandi tákn um það óréttlæti, sem hans eiginn flokkur byrjaði að skapa í þessu landi í þessum efnum. En það er ástæðulaust fyrir mig að fara langt út í það, enda hefir hv. 6. þm. Reykv. svarað þessari hlið ræðu hans rækilega. Ég vildi í ræðu minni engum sérstökum flokki kenna eingöngu um, að svona er komið. Ég sagði, að þar ættu allir flokkar nokkra sök, þó hún væri mismunandi mikill. Ég ætla að fullyrða, að þar, sem Sjálfstfl. á sök í þessu máli, þá er það vegna þess, að það eru takmörk fyrir því. hvað menn geta lengi haldið áfram að láta berja sig á hægri vangann og rétta þann vinstri fram, án þess að spyrna á móti með sömu brögðum eins og þeir eru beittir. En hitt verð ég að fullyrða, að hlutur Sjálfstfl. í þessum efnum er mjög lítill. Sök hans er svo til engin, a. m. k. samanborið við það, hvernig flokkur hv. þm. hefir hagað sér í þessum efnum. (SvbH: Mér skildist það á fyrri ræðu hv. þm.). Það, sem farið er fram á í þessari till., er eingöngu það, að regla sé sköpuð í þessu landi, sem allir geti fundið, að á við fyllsta réttlæti að styðjast og allir geti gengið inn á án tillits til þess, hvaða flokki þeir tilheyra. Ég held einmitt, að í þessari þáltill. sé sú regla fólgin, og ekki sizt held ég það eftir að hafa heyrt ræðu hv. 1. þm. Rang., sem sagðist vera efni till. samþykkur, enda þótt hann vildi ekki samþykkja hana, af því hún væri, að því er mér skildist, frá sjálfstæðismanni. Ég get ekki öfundað hv. þm. af því umbótastarfi hans, sem honum varð svo tíðrætt um, sem byggist á því að bera aldrei fram neinar umbætur nema einhverjir aðrir hafi áður tekið þær upp, svo menn geti ekki verið þekktir fyrir annað en að taka þær upp. Ég vil enda orð mín á því að segja, að ég tel, að hann misskilji hlutverk þingmannsins, ef hann vill ekki láta ríkið í þessum efnum sem öðrum vera þann aðilja í þjóðfélaginu, sem gangi á undan í sem flestu með því að skapa góð fordæmi til eftirbreytni.