03.12.1937
Neðri deild: 41. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í D-deild Alþingistíðinda. (2379)
115. mál, ríkisatvinna skyldmenna
*Flm. (Jóhann G. Möller):
Ég skal ekki tefja tíma hv. d. með langri ræðu að þessu sinni, enda hefir málið verið nokkuð rætt við fyrri hluta umr., og ég verð að segja, að undirtektir undir sjálft málið síðan það kom fram, bæði þá og eins utan þings, verð ég að telja mjög góðar. Það kom skýrt fram hjá hv. 1. þm. Rang. sem aðallega hefir talað úr hópi andstæðinga Sjálfstfl., að hann væri efni þáltill. samþykkur. Það, sem aðallega greindi á, var það, að ég í minni ræðu hefði farið út á annað svið, og mér skildist, að einna frekast vegna þess teldi hann sig ekki geta fylgt málinu fram öðruvísi en kemur fram í dagskránni, sem hann hefir lagt fram í málinu. Spurningin milli okkar er þess vegna, að því er mér skilst, ekki um réttmæti málsins, heldur um það, hvernig sé hægt að ná bezt tilganginum. Og út frá sínu sjónarmiði vill hann þá ekki samþ. þessa till., heldur afgreiða málið með dagskrá, sem fer fram á nánari og yfirgripsmeiri athugun á því, hvernig koma megi í veg fyrir atvinnukúgun í hverri mynd sem er. Sennilega skyldi þá leggja slíka athugun fyrir Alþingi, en það stendur held ég ekkert í dagskrártill. um það. Annars vil ég benda á það, að aðalorðið í dagskrártill. er atvinnukúgun, en í þáltill. er hvergi minnzt á atvinnukúgun, og hún fjallar í sjálfu sér ekki um það. Hitt er náttúrlega rétt, að það gæti komið fyrir í einstökum tilfellum, að framkvæmdasvið þessarar till. snerti einnig atvinnukúgun, en það þarf ekki yfirleitt svo að vera. Þess vegna þykir mér dálítil spurning, hvort dagskrártill. á beinlínis við efni þessarar till., vegna þessa orðs í henni.
Í öðru lagi vil ég benda á, að dagskráin fer fram á, að ríkisstj. láti fara fram nánari rannsókn og yfirgripsmeiri á þessu máli. Það er nú fyrst, að engin rannsókn hefir farið fram í þessu efni, og ekki þarf neinnar rannsóknar, vegna þess, að það, sem farið er fram á í þáltillögunni, er svo augljóst mál, að enda þótt — eins og ég sagði við fyrri hluta þessarar umr. — misbrestir í þessum efnum hefðu ekki gefið tilefni til þess almennt hér á landi ennþá, að slík ákvæði yrðu sett, þá er sjálfsagt að setja þau sem varúðarráðstöfun. Hitt get ég verið hv. 1. þm. Rang. fyllilega sammála um, að það er mikil ástæða til þess að gera yfirleitt athugun og rannsóknir á atvinnuúthlutuninni í landinu. Og ég tel, að við flutning þessarar till. sé nokkru náð, með því að fá þá almennu yfirlýsingu, að atvinnuúthlutuninni í landinu sé stórlega ábótavant, misbeiting hennar eigi sér stað. Þó að ég hinsvegar telji heppilegt og sjálfsagt að reyna að girða fyrir misbeitingu þegar í stað, og samkvæmt því samþ. þessa till.
Hv. 1. þm. Rang. vildi halda fram, að ég flytti ekki þessa till. af heilum hug, og heilindi mín í málinu mundu koma í ljós í því, hvort ég greiddi dagskránni atkv. eða ekki. Ég verð nú að segja það, að ég hlýt að snúa þessu við: að heilindi hans við þetta mál sjáist á því, — því að grundvallarhugsjónina skilst mér við vera sammála um — hvort hann heldur þessari dagskrártill. til streitu eða gengur inn á að greiða þáltill. atkv. Þetta stafar af því, að með dagskránni fer hv. þm. fram á, að frekari athuganir verði gerðar á þessu máli og það rannsakað. En ég er hinsvegar alveg sannfærður um, að hvernig sem sú rannsókn verður og hverjar sem niðurstöður verða í einstökum atriðum, þá verður fyrsta sporið að setja ákvæði eins og í þessari till. eru, ef eitthvað verður gert til þess að hindra þá misbeitingu, sem við erum sammála um, að eigi sér stað. Það eru ákvæði, sem eru sjálfsögð réttlætismál. Og í öðru lagi er síðari liðurinn öryggisráðstöfun, sem gerð er í öðrum þjóðfélögum. Þess vegna má gjarnan láta fara fram rannsókn um málið í áframhaldi af þessari þáltill. Því að ég fæ ekki betur séð en að hún sé það sjálfsagðasta atriði í þessu máli. Þess vegna hefði mér þótt vænt um það, að þessi hv. þm. hefði komið með viðbótartill., um að ríkisstj. léti rannsaka þetta mál frekar og koma með till. um það fyrir þingið síðar, sem væri yfirgripsmeiri en þessi nú. En þessi till. er jafnréttmæt fyrir því.
Ég verð þess vegna að líta svo á, að dagskrártill. sé fyrst og fremst til þess að draga þetta mál á langinn, sem þáltill. fer fram á, og kannske til þess beinlínis að verða því að fótakefli. Þess vegna er það, að ég get ekki greitt dagskrártill. atkv. mitt, og verð að líta þannig á. að þeir menn, sem eru samþykkir efni þessarar till.. hefðu átt að koma með viðbótartill. við þáltill., en sýna stuðning sinn við málið með því að fylgja henni fram líka. Ég skal nefna eitt atriði, sem mér skildist vera höfuðrök hjá hv. 1. þm. Rang. fyrir andstöðu hans gegn þessari þáltill.: að þetta skapaði ranglæti. Hann tók eitt dæmi. En ég verð nú að hyggja, að það dæmi missti marks, en skal hinsvegar viðurkenna, að ef einstrengingslega er haldið á ákvæðum þessum, getur skapazt nokkurt ranglæti, ef annarsstaðar eru ekki teknar upp svipaðar reglur. En ég benti á, að það er hægur vandi að ná samningum við aðra aðilja í þessu máli um að framkvæma svipaðar reglur hjá sér, og byggi ég það meðal annars á því, að þessar reglur eru svo sjálfsagðar og réttlátar. Ég sé heldur ekki, hvað það ætti að skaða, ef t. d. ein fjölskylda, faðirinn, konan og börnin eru í vinnu í sömu stofnun, að konan sé látin fara úr vinnunni. Ég geri ráð fyrir, að það yrði gert með þeirri forsendu, að það, sem maðurinn hafi til síns heimilis að leggja, sé nægilegt. Ég skil ekki, hvaða óréttlæti gæti skapazt með því að láta hana hætta að vinna í slíku tilfelli og láta einhvern koma í hennar stað, einhvern fyrirvinnanda heimilis, sem ekki hefði atvinnu áður. Allra sízt get ég skilið þessa ástæðu, þar sem beinlínis er gert ráð fyrir í þáltill., að í einstökum tilfellum geti komið fyrir, að ekki sé heppilegt að framfylgja þessari reglu, að láta ekki fólk í sömu fjölskyldu hafa atvinnu hjá ríkinu. Og þá er vitanlega stj. og þeirra, sem hlut eiga að máli, að meta þær ástæður. Í stuttu máli, ég sé ekki, hvernig hv. 1. þm. Rang. getur ekki gengið inn á þessa till., enda þótt hann vilji fá rannsóku á þessu máli yfirleitt, rannsókn, sem gæti svo hiklaust verið sem framhald af þessari till.
Ég hefi svo ekki meira um þetta að segja. Ég tel ástæðulaust að svara ýmsu, sem fram hefir komið við umr., sem sumpart hafa verið þessu máli lítið skyldar, en afstaða mín til hinnar rökstuddu dagskrár er sú, að ég tel, að hún sé fyrst og fremst til að draga málið á langinn, og að ég sé samþ., að þetta mál verði rannsakað, tel ég till. spor í rétta átt og legg því til, að hún verði samþ.