27.10.1937
Neðri deild: 12. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í D-deild Alþingistíðinda. (2420)

40. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég mun ekki mæla á móti því, að þessi till. verði athuguð í fjhn., en ég vil bara taka það fram út af ræðu hv. flm., að hann hefir rangar hugmyndir um afleiðingar þessarar till., og það ekki sízt vegna þess, að eins og nú standa sakir, eru það samvinnufélögin, sem hafa afgerandi áhrif á verðlag mestu nauðsynjavaranna, svo sem matvara og nýlenduvara. Og það vill svo til, að það er einmitt þessi verzlunargrein, sem heildsalarnir starfa mest að. — Hvað snertir þær vörur, sem einna mest er lagt á. eins og vefnaðarvörur, skófatnað og aðrar hliðstæðar vörur, þá er það svo, að á þeim er í rann og veru engin heildsöluverzlun til, heldur flytja þeir vöruna inn, sem selja hana til almennings, þannig að þessi regla mundi þar mjög litlu um breyta.

Þetta vildi ég taka fram, til þess að hv. þm. litu ekki allt öðrum augum á þetta mál heldur en vera ber. En þrátt fyrir það er ég ekkert á móti því, að till. fái að athugast í n., því að ég álít ekki óeðlilegt, að fjhn. þingsins kynni sér þetta nokkuð sérstaklega.