29.10.1937
Sameinað þing: 4. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í D-deild Alþingistíðinda. (2443)
19. mál, Bolungavíkurhöfn
Vilmundur Jónsson:
Mér ber að sjálfsögðu framar öðrum skylda til að þakka þá rausn, sem kjósendum mínum í Norður-Ísafjarðarsýslu, og þá einkum Bolvíkingum, er sýnd með flutningi þessarar till. Ég á hér ekki við það, að farið er fram á, að gerðar séu áætlanir og athuganir, heldur hitt, að með till. eru vaktar vonir um, að hin stórfenglegu hafnarvirki, sem hún ræðir um, verði rétt byggðarfélaginu að gjöf, án nokkurs framlags þess á móti. Það eitt skyggir á, að ég er öldungis ekki óttalaus um, að þeirra framkvæmda verði nokkuð langt að bíða. Og þó að skömm sé frá að segja, er ástæðum þessa þorps þannig háttað, að íbúar þess yrðu að gera sig ánægðari með skjótar framkvæmdir, þó að litlar væru, en stórkostlegar áætlanir, sem engar horfur eru á, að framkvæmdar yrðu í náinni framtið. Ég vil í því sambandi minna á og óska góðra undirtekta undir umsókn hreppsnefndar Hólshrepps um að þingið veiti hreppnum aðstoð við greiðslu á skuld, sem enn er ógreidd, vegna síðustu aðgerðanna á öldubrjótnum í Bolungavík.
Um hafnargerð í Bolungavík hafa komið fram tvær hugmyndir. Ég legg að svo stöddu minna upp úr þeirri hugmynd, að gera höfnina einhverntíma í ófyrirsjáanlegri framtíð að öruggu fægi fyrir 1000 tonna skip en hinni: að gera á næstunni í sambandi við brimbrjótinn litla smábátakví, svo að ekki þurfi nær alltaf eftir hverja sjóferð að setja á land smábátana, sem nú eru gerðir út úr þorpinu, enda gerði kleift að stunda þaðan sjó stærri bátum, 30–60 tonna. Útgerðarmenn í Bolungavík líta svo á, að útvegurinn þar sé dauðadæmdur, ef ekki verður hægt að gera þaðan út slíka stærri báta og alveg á næstunni. Í sambandi við þessa hugmynd gerði verkfræðingur af vitamálaskrifstofunni, sem átti erindi vestur í sumar, nokkrar bráðabirgðamælingar, eftir beiðni minni, en þær mælingar mundu þó nægja sem undirstaða undir uppdrætti og áætlanir, ef horfið yrði að hugmyndinni um smábátakví. Þegar verkfræðingurinn kom suður og ég hafði kynnt mér athuganir hans, tók ég það upp hjá mér sjálfum að rita hæstv. atvmrh. bréf, sem ég vil leyfa mér að lesa hér upp, með leyfi hæstv. forseta:
„Til brimbrjótsins í Bolungavík mun nú hafa verið varið ca. ½ milljón króna, og að vísu gerir hann lendingarskilyrði þar stórum betri en þau annars væru. Hinsvegar er það enn útilokað, að út séu gerð frá Bolungavík stærri skip en svo, að unnt sé að setja þau upp á kamb, jafnvel hvað litið sem er að veðri, að því ógleymdu, hvílík feikna fyrirhöfn, erfiði og slysahætta er þeim uppsetningi samfara. Nú horfir svo um sjávarútveg og afkomu í Bolungavík, að lífsspursmál er fyrir þorpið, að þaðan verði unnt að gera út fleiri eða færri stærri skip en unnt sé að ráða við til daglegs uppsetnings, — skip, er geti víðar leitað veiða en á næstu miðum og tekið þátt í síldv. með herpinót að sumrinu. En það er óhugsandi nema með þeim endurbótum á lendingunni, að slík skip geti legið þar á höfn í öllum veðrum. Hefir verið stungið upp á, að því mætti koma til vegar með því að gera kví í lendingunni, þar sem brimbrjóturinn sé varnargarður móti norðvestri, en hlaðinn verði tiltölulega einfaldur veggur skáhallt á móti frá suðvestri — og mundi þetta verða viðráðanlegur kostnaður, þannig, að að því gerðu yrði miklu bjargað aftur af fé því, er kostað hefir verið í þessi hafnarmannvirki, sem vafasamt framtíðargildi hafa án slíkra aðgerða.
Nú eru það tilmæli mín til hins háttvirta atvinnumálaráðuneytis, að það láti sérfræðinga sína um hafnarmannvirki athuga þetta mál sem gaumgæfilegast, í því skyni að rökstuddar niðurstöður fáist um, hvað unnt sé að gera í hafnarmálum Bolvíkinga til stuðnings framtíðarsjávarútvegi þaðan og þar á meðal hvort uppástunga sú, sem hér hefir verið drepið á, eigi við rök að styðjast, hvernig hana ætti þá að framkvæma og hver kostnaður yrði því samfara“.
Mér er það ánægja að geta skýrt frá því, að ég hefi fengið svar við þessu erindi minn frá hæstv. atvmrh., þar sem hann tekur vel í þessa málaleitun, kveðst hafa skrifað vitamálaskrifstofunni og lagt fyrir hana að láta gera þær athuganir, er þyrfti veit ég ekki betur en að það verk sé þegar hafið.
Þetta er að vísu ákaflega fátæklegt, borið saman við þá uppástungu, sem felst í till. hv. 6. þm. Reykv., og ég er honum að vísu mjög þakklátur fyrir, því að ég álít, að þessar tvær till. þurfi alls ekki að rekast hvor á aðra. Verði till. samþ., þá er þar með staðfesting þingsins fengin á því, að það, sem þegar hefir verið hafið í þessu sambandi, sé heimilt, og þótt meira væri. Og það sé fjarri mér að meta það draumóra að vænta þess, að slík höfn, sem till. gerir ráð fyrir, verði einhverntíma gerð í þessari að fornu og nýju merkilegu og oft farsælu verstöð. Ég álít sjálfsagt, ef þessi litla kví verður gerð, að henni verði hagað svo, að bygging hennar komi ekki á neinn hátt illa við þær meiri háttar hafnargerðarframkvæmdir, sem kæmu til mála síðar.
Ég hefi svo ekki öðru við að bæta en því, að biðja vel fyrir till., þó að ég hinsvegar sé tortrygginn á, að samþykkt hennar geti bjargað þorpinu frá yfirvofandi vandræðum. Með því að flytja þessa tili. hefir hv. flm. gefið mér von um, að hann mundi fylgja minni háttar ráðstöfunum til bjargar þessu þorpi, og hann liðstyrk met ég ekki lítils.